Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Stefnir á að verða hundrað ára

  • What: Profile of an elderly man who loves music
  • Impact: Personal story about a 93-year-old music enthusiast
Read Full Article →

Innlent | Sunnudagsblað | 12.9.2026 | 11:25 Stefnir á að verða hundrað ára Þorvaldur er sprækur maður á tíræðisaldri sem sækir mikið tónleika og menningarviðburði. mbl.is/Ásdís Ásdís Ásgeirsdóttir Setja bókamerki Ég þakka bara fyrir á hverjum degi og reyni að standa mig,“ segir öldungurinn síungi, arkitektinn Þorvaldur S. Þorvaldsson við blaðamann þegar hann mætti í heimsókn til hans nýlega. Þorvaldur er fæddur árið 1933 og er því 93 ára en ber aldurinn vel og er sprækur. Þorvaldur er bæði drífandi og duglegur, sækir tónleika reglulega, er með spjall og tónlistarþætti í Mörkinni þar sem hann býr og býður gjarnan kærri vinkonu á stefnumót. Vinkona á tíræðisaldri Þorvaldur hefur alla tíð verið tónelskur, enda var móðir hans dugleg að fara með hann á alla tónleika Tónlistarfélagsins í Hafnarfirði þar sem hann er alinn upp. Tónlistin var og er helsta áhugamálið. „Ég hef verið á tónleikum síðan ég man eftir mér. Ég hef fylgst með Sinfóníuhljómsveitinni síðan hún var stofnuð 1950 og gekk strax í vinafélagið. Ég var sextán ára þegar hún var stofnuð og mamma segir að ég hafi komið fram eftir að hafa heyrt þetta í útvarpinu með tárin í augunum. Ég faðmaði mömmu og hún spurði dauðhrædd hvað hefði gerst. Ég sagði þá: „Mamma, mamma, veistu hvað? Það er búið að stofna sinfóníuhljómsveit á Íslandi.“ Og ég grét,“ segir hann. Eiginkona hans, Steinunn Jónsdóttir, lést fyrir fimm árum eftir baráttu við alzheimer. „Það var erfitt en við áttum saman yndisleg sjötíu ár. Það má þakka fyrir það.“ Nú á Þorvaldur vinkonu sem hefur jafn gaman af tónleikum og menningarviðburðum og hann. „Ég á kæra vinkonu sem var líka með okkur í menntaskólanum og heitir Unnur María Figved, kölluð Unna Maja, fyrrverandi framhaldsskólakennari. Það gefur okkur gríðarlega mikið að styðja við hvort annað á lokasprettinum. Við lesum saman ljóð, förum á menningarviðburði, í ræktina og njótum lífsins. Við kunnum það vel.“ Það er þá hægt að eignast kærustu á tíræðisaldri? „Leikandi!“ segir hann og hlær. Ætlar þú að verða hundrað ára? „Já, ég stefni á það. Mér finnst ég ekki vera gamall. Læknirinn minn segir að ef ég vakni ekki með verki, þá sé ég ekki hérna megin. Svo ég vakna bara kátur með mína verki á morgnana og þá veit ég hvoru megin ég er,“ segir hann og hlær. Ítarlegt viðtal er við Þorvald í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Stefnir á að verða hundrað ára 28,5% stöðugilda eru hjá ríki og sveitarfélögum Enn skiptir James um félag „Fyrir mér snýst lífið svolítið um að taka áhættu“ Trump vill sjá sameinað Írland Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslenskt velferðarkerfi er misnotað Trump: „Þess vegna berjumst við í dag“ Kourani afplánaði þriðjung dómsins Eldisleyfi í höfn þrátt fyrir fordæmalausa andstöðu Mest lesið Í gær Í vikunni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Hellisheiði lokuð vegna slyss Algjörlega óviðunandi staða Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Slydda til fjalla Ríkið stillir af leikreglur en er eigandi „Þurfum öll að vera vör um okkur“ Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Minningarstund um Hönnuh Jane Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nýjast á mbl.is » Stefnir á að verða hundrað ára 28,5% stöðugilda eru hjá ríki og sveitarfélögum Enn skiptir James um félag „Fyrir mér snýst lífið svolítið um að taka áhættu“ Trump vill sjá sameinað Írland Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verða að koma böndum á gervigreindina Beint: Minningarathöfn í New York „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Mest lesið Í gær Í vikunni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Hellisheiði lokuð vegna slyss Algjörlega óviðunandi staða Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Slydda til fjalla Ríkið stillir af leikreglur en er eigandi „Þurfum öll að vera vör um okkur“ Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Minningarstund um Hönnuh Jane Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ

Share this article