Innlent | Sunnudagsblað | 12.9.2026 | 12:41 Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Stund milli stríða hjá Ólafi og Alberti í Fuglar (og menn). Orri Páll Ormarsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta var góð stund í bíóinu,“ segir Ólafur Aðalsteinsson æðarbóndi en hann var í vikunni viðstaddur frumsýningu á heimildarmyndinni Fuglar (og menn), þar sem hann er í stóru hlutverki, ásamt perluvini sínum, Alberti Hauki Gunnarssyni, sem undanfarin ár hefur aðstoðað við dúntekjuna í Loðmundarfirði. „Æ, mér fannst nú hálfhallærislegt að sjá sjálfan mig á hvíta tjaldinu,“ segir Albert. „Það voru allir að þakka manni fyrir en maður gerði ekkert nema að vera á staðnum.“ Þeim þótti þó afar vænt um allar góðu kveðjurnar, ekki síst frá einni fremstu leikkonu Íslandssögunnar, Kristbjörgu Kjeld, sem gaf sig á tal við þá að sýningu lokinni. „Hún kom til okkar blessunin.“ Einn boðsgesta, sem án efa hefði gaman af myndinni, átti ekki heimangengt, sir David Attenborough. „Ég hringdi í hann en hann treysti sér ekki en bað fyrir góðar kveðjur. Ég á eftir að senda honum myndina,“ segir Ingvar Þórðarson, sem leikstýrir myndinni ásamt Ragnari Axelssyni og Finnanum Mika Kaurismäki, auk þess að skrifa handrit og framleiða. Æðarfugl á heilsubótargöngu í Loðmundarfirði. Ljósmynd/RAX Ingvar heimsótti Ólaf og eiginkonu hans, Jóhönnu Óladóttur, fyrst 2019. Þá kviknaði hugmynd að myndinni sem síðan þróaðist. „Annars plataði hann okkur eiginlega. Myndin átti fyrst að vera bara um fuglinn en ekki okkur mennina,“ segir Ólafur. „Svakaleg plága“ Að sögn Ólafs var það til að byrja með „svakaleg plága“ að hafa Ingvar fyrir austan. „En svo vandist það, hann er svo skapgóður, hann Ingvar,“ segir hann og Albert bætir við að fagmennskan hafi skinið af öllum sem að verkefninu komu. Þeir nefna sérstaklega kvikmyndatökumanninn Birgit Guðjónsdóttur en hún hafði enga reynslu af dúntekju áður. „Það var eins og að Birgit hefði umgengist æðarvarp frá barnæsku. Hún kunni strax að lesa í aðstæður og féll bara inn í umhverfið,“ segir Albert og Ólafur bætir við að hún hafi virt allar reglur. „Fuglinn tók ekki einu sinni haus undan væng þegar hún gekk hjá.“ Ingvar tekur undir þetta. „Birgit er heimsklassatökumaður.“ Ýmsir hafa mælt með myndinni eftir að hún var frumsýnd. Þeirra á meðal Engilbert Sigurðsson geðlæknir sem segir hana einstaklega fallega og hreinlega mannbætandi og Kristbjörg Kjeld sem segir hana alveg yndislega. Nánar er rætt við Ólaf, Albert og Ingvar í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Lestarslys í Frakklandi: Grunur um skemmdarverk Veit ekki hvað maður er að fara út í Berjast gegn „pervertískum“ gervigreindargleraugum Tímabært að tryggja svigrúm Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump: „Þess vegna berjumst við í dag“ Samþykktu að nefna völlinn eftir Dolly Parton Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Verða að koma böndum á gervigreindina Mest lesið Í gær Í vikunni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Hellisheiði lokuð vegna slyss Algjörlega óviðunandi staða Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Slydda til fjalla Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan Ríkið stillir af leikreglur en er eigandi Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Minningarstund um Hönnuh Jane Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nýjast á mbl.is » Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Lestarslys í Frakklandi: Grunur um skemmdarverk Veit ekki hvað maður er að fara út í Berjast gegn „pervertískum“ gervigreindargleraugum Tímabært að tryggja svigrúm Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Starfsmenn krefjast afsagnar stjórnar SÁÁ Hefðu víðtæk áhrif á atvinnulífið og samfélagið Eldisleyfi í höfn þrátt fyrir fordæmalausa andstöðu Mest lesið Í gær Í vikunni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Hellisheiði lokuð vegna slyss Algjörlega óviðunandi staða Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Slydda til fjalla Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan Ríkið stillir af leikreglur en er eigandi Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Minningarstund um Hönnuh Jane Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ