Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Haustið boðið velkomið í glænýrri stiklu

Read Full Article →

Nú þegar hillir undir haustið þá er fátt eins kærkomið og spennandi dagskrá sjónvarps og útvarps sem hægt er að hjúfra sig að þegar kólnar í veðri. Jafnan er haustið nýtt til þess að kynna ýmsar nýungar, stóraukna og fjölbreytta dagskrá, innlenda dagskrárgerð og spennandi frumsýningar skemmti- og fræðsluþátta eða kvikmynda. Haustdagskrá RÚV var hleypt af stokkunum í vikunni og sjá má glænýja stiklu í sjónvarpi um þessar mundir sem sýnir að einhverju leyti hverju sjónvarpsáhorfendur eiga von á. Og það má með sanni segja að spennandi tímar séu fram undan þar sem bæði ný andlit munu sjást á skjánum í bland við góðkunningja okkar heima í stofu. Horfðu á stikluna hér fyrir neðan . Það kennir ýmissa grasa í haustdagskrá sjónvarpsins. Nýr spennandi spurningaþáttur, pabbahelgar, perlur úr safni sjónvarps og margt fleira. Haustdagskránni hefur verið þjappað saman í skemmtilega stiklu sem gefur glögga mynd af því sem koma skal. Landsleikarnir er nýr spurningaþáttur Strax í september eigum við von á nýjum en þó kunnuglegum andlitum, sem verða án efa samstundis aufúsugestir í stofum landsmanna þegar þau Guðmundur Pálsson, sem er einn af Baggalútum og sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir munu stýra spennandi spurningaþætti í beinni útsendingu á laugardagskvöldum. Þar munu fulltrúar bæjarfélaga um allt land spreyta sig á spurningum, glíma við heilabrot og leysa ýmsar þrautir. Þátturinn hefur fengið nafnið Landsleikarnir og fyrsti þáttur fer í loftið 26. september. Fleiri pabbahelgar Þáttaröðin Pabbahelgar sló í gegn þegar hún var frumsýnd á RÚV árið 2019 og nú er kominn tími til að gleðja fjölmarga áhangendur þáttana með Fleiri pabbahelgum. Önnur þáttaröð hefst í október og þá hefur Karen fengið sig fullsadda af Tinder og leitinni að hinni einu sönnu ást. Hún ákveður að segja skilið við stefnumótabransann og læra frekar að elska sjálfa sig en klisjan um að setja sjálfa sig í fyrsta sæti reynist flóknari en sýndist í fyrstu. Með aðalhlutverk fara Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Fjörutíu ár frá leiðtogafundinum í Höfða Nú í október verða liðin 40 ár frá leiðtogafundi risaveldanna úr austri og vestri sem haldinn var í Höfða. Að því tilefni sýnum við nýja íslenska heimildaþætti um aðdraganda þess að þeir Ronald Reagan forseti Bandaríkjanna og Mikhail Gorbatsjev leiðtogi Sovétríkjanna ákváðu að funda í Reykjavík, öllum að óvörum. Í þáttunum Stríð og friður í Reykjavík sem hefja göngu sína í október verður fjallað um hvernig Íslendingar lögðu allt undir við að halda leiðtogafund risaveldanna með aðeins tólf daga fyrirvara. Perlurnar fægðar á sextíu ára afmæli Sjónvarps Í safni sjónvarpsins er að finna efni allt frá stofnun þess en sjónvarpið hefur fylgt þjóðinni í sextíu ár. Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir demba sér á kaf í safnkostinn og sýna þjóðinni valda gullmola í þáttunum Perlur sjónvarpsins. Áhugaverð, forvitnileg og óvenjuleg brot úr sjónvarpssögunni sem sum hafa nýlega verið gerð aðgengileg. Nýjar þáttaraðir af ferðaþáttunum Úti og af Á gamans aldri Ragnhildur Steinunn snýr aftur með aðra þáttaröð af hinum frábæru viðtalsþáttum Á gamans aldri, þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því að eldast. Úti heita svo ferðaþættir í umsjón Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall og hófu þeir göngu sína árið 2018. Nú er þriðja þáttaröðin farin í loftið og að þessu sinni fara þau hjónin með gönguhóp um stórbrotið fjalllendi heima og erlendis. Það reynir á líkama, sál og samheldni í ólíkum tegundum útivistar. Viktoría hittir áhugavert fólk og íslenskt hugvit skoðað Viktoría Hermannsdóttir mun spjalla af sinni alkunnu snilli við áhugavert fólk í viðtalsþættinum Svona er lífið sem hefst í október. Þar verður Viktoría á einlægum nótum og fær að heyra alls konar sögur. Í september fáum við að kynnast íslensku hugviti í heimildarþáttunum Hugvit, þar sem saga íslenskrar hönnunar er rakin, allt frá fyrstu brautryðjendum til yngri kynslóða. Í hverjum þætti er sjónum beint að áhrifamiklum hönnuðum og verkum þeirra, samhengi þeirra við samtímann og arfleifð. Góðkunningjar íslenskra heimila birtast á ný Vikan með Gísla Marteini er einn vinsælasti skemmtiþáttur í sjónvarpi síðustu ára og snýr þátturinn úr sumarfríi núna í septemberlok. Þar tekur Gísli Marteinn á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Kiljan verður á sínum stað á miðvikudagskvöldum og vitaskuld í stjórn Egils Helgasonar. Þessi langlífi þáttur er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu og brátt fer fimmhundraðasti þáttur Egils í loftið. Á fimmtudögum fáum við svo aftur Miðstöðina á skjáinn, en þar stýrir Siggi Gunnars lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Loks er það Landinn sem ekki er að baki dottinn og hefst ný þáttaröð í lok septembermánaðar. Við bjóðum því haustið velkomið og hlökkum til að hjúfra okkur saman í sófanum yfir sjónvarpinu í allan vetur.

Share this article