Innlent | Morgunblaðið | 12.9.2026 | 13:30 Vinna undir brú og sigla á pramma Pramminn lónar rétt fyrir innan brúna. Þegar aðstæður leyfa er siglt að brúnni og menn eru þá við vinnu í körfunni sem er fremst á nökkvanum. Fara þarf að öllu með gát og sæta lagi með tilliti til öryggismála. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Unnið er um þessar mundir að endurnýjun lagna og strengja undir Borgarfjarðarbrúnni og þar eru á vettvangi starfsmenn Borgarverks hf. Á uppfyllingu við vesturenda brúarinnar hefur flái verið lagður niður að vatnsborðinu og þar hefur vinnuskúrum einnig verið komið fyrir. Skammt frá er svo prammi, eins konar skip, sem er þarfaþing í verkefninu. Verkinu miðar vel Verk þetta er unnið fyrir Veitur, Rarik og fjarskiptafyrirtæki, en í starfinu nú einbeita menn sér að því að endurnýja heitavatnslögnina undir brúnni. Tekin eru niður 250 mm stálrör og önnur 100 mm breiðari sett í þeirra stað. Á meðan er bráðabirgðalögn á brúargólfinu, en sú flytur vatn úr Deildartunguhver í Reykholtsdal. Leiðslum fyrir rafmagn, kalt vatn og ljósleiðara verður komið fyrir þegar heita vatnið er klárt. Verkinu miðar vel. Nú þegar hefur hitaveiturörum verið skipt út á alls 150 metrum undir brúnni, sem er alls 520 metra löng. Framvinda verksins er stöðug og öllum miðar áfram í samræmi við áætlanir. „Aðstæður eru hér krefjandi og því þarf í raun að fikra sig áfram, stig af stigi. Finna þannig hvernig best er að vinna hlutina. Á pöllunum undir brúnni eru þrengsli og vinna erfið. Þar er líka mikilvægt að huga að fallvörnum, enda eru menn með fallvarnir og í flotvestum. Björgunarbátar eru svo nærri, bæði á prammanum og hér á grjótgarðinum við brúna,“ segir Þorvaldur Jóhannesson verkstjóri Borgarverks hf. Þorvaldur Jóhannsson og Haukur Birgisson frá Borgarverki eru í eldlínu i þessu flókna verkefni. Straumarnir þungir og viðsjárverðir Vinnupöllum er komið fyrir undir brúnni og þar bisa menn við að rífa burt gömlu lögnina og setja þá nýju í staðinn. Þá eru nýju rörin sett í hólk og þau svo dregin áfram inn undir brúargólfið og þar rafsoðin saman. Einnig er notaður þarna áðurnefndur stálprammi sem Borgarverk keypti sérstaklega vegna þessarar framkvæmdar. Prammanum, sem er 90 tonn að þyngd, er siglt að brúnni og á palli sem festur er á lyftubúnað hans rífa menn rör burt og festa ný. Um þrjár vikur eru síðan komið var með prammann á staðinn, vonum seinna, en mikla pappírs- og kerfisvinnu þurfti svo hann væri leyfilegur til notkunar. „Eins og þú sérð núna lónar pramminn hér aðeins fyrir innan brúna inni á Borgarfirðinum. Eins og stendur er bara of hvasst til að hann geti verið við brúna og nýst þannig við vinnuna, því straumarnir hér á mótum ár og sjávar eru mjög þungir og viðsjárverðir,“ sagði Þorvaldur þegar hann sýndi blaðamanni aðstæður á verkstað. Flái hefur verið lagður niður að vatnsborði og brú og svo er hægt að ganga á pöllum á vinnupallana. Tímapressan hættuleg Tíu karlar eru í hópnum sem þessu verkefni sinnir og vinnudagurinn er langur. Fyrstu menn hefjast handa um klukkan sex á morgnana og vinnudegi lýkur ekki fyrr en dimmt er orðið að kveldi. „Við eigum að skila þessu verki af okkur í lok nóvember og leggjum okkur alla fram. Hins vegar verður að segjast að tímapressa er hættuleg í þessu svona flóknu og hættulega verkefni. En auðvitað náum við þessu á tilsettum tíma,“ segir Þorvaldur og að síðustu: „Það sem sérstaklega hefur valdið vanda hjá er umferð stóru flutningabílanna þegar þeir koma á urrandi siglingu, kannski 90 kílómetra hraða, og aka yfir brúna. Einmitt þá nötrar brúin öll: menn undir gólfi hennar finna vel fyrir því og eru jafnvel í hættu. Því erum við í góðu samstarfi við lögregluna og reynt er að halda hraðanum niðri. Mest er þetta síðla dags og fram á kvöldið þegar stóru bílarnir eru að koma úr Reykjavík og á leiðinni vestur á bóginn eða norður í land – ella þá að koma úr gagnstæðri átt á leiðinni inn á höfðborgarsvæðið “ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Three-car collision: Hellisheiði reopened Listsköpunin aldrei verið val Vinna undir brú og sigla á pramma Frábærar fréttir fyrir Liverpool Færri fá fjárhagsaðstoð en í fyrra Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump: „Þess vegna berjumst við í dag“ Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Tímabært að tryggja svigrúm Beint: Minningarathöfn í New York Mest lesið Í gær Í vikunni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Hellisheiði lokuð vegna slyss Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Algjörlega óviðunandi staða Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan Slydda til fjalla Ríkið stillir af leikreglur en er eigandi Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Minningarstund um Hönnuh Jane Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nýjast á mbl.is » Three-car collision: Hellisheiði reopened Listsköpunin aldrei verið val Vinna undir brú og sigla á pramma Frábærar fréttir fyrir Liverpool Færri fá fjárhagsaðstoð en í fyrra Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Lestarslys í Frakklandi: Grunur um skemmdarverk Samþykktu að nefna völlinn eftir Dolly Parton Tímabært að tryggja svigrúm Mest lesið Í gær Í vikunni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Hellisheiði lokuð vegna slyss Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Algjörlega óviðunandi staða Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan Slydda til fjalla Ríkið stillir af leikreglur en er eigandi Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Minningarstund um Hönnuh Jane Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ