Liðskonur KR tryggðu sæti sitt í Bestu deild kvenna í fótbolta rétt í þessu. Liðið vann 1-0 sigur gegn Keflavík og endar því í 2. sæti Lengjudeildar. KR féll úr efstu deild árið 2022 og féll niður í 2. deild en hefur nú farið upp um tvær deildir á tveimur árum. Grótta vann deildina og hafði nú þegar tryggt sæti í efstu deild. Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir skoraði eina mark leiksins á 76. mínútu, sem hún kláraði vel eftir að boltinn barst til hennar í miðjum teignum. KR-ingar blésu til veislu á Meistaravöllum í dag. Fyrir leik var skemmtun í boði fyrir fjölskylduna og Floni tók lagið. 807 manns mættu á leikinn.