Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

SS slátrar um 100 þúsund fjár í sláturhúsi sínu á Selfossi

Read Full Article →

Dagarnir eru oft langir hjá starfsmönnum sláturhússins þegar haustslátrun stendur yfir. Lömbin eru falleg og koma væn af fjalli. „Nú er mikil skemmtun í gangi því það er alltaf gaman þegar þetta byrjar á hverju hausti. Við fáum hérna um það bil 120 auka starfsmenn bara í sláturtíðinni í þessa rétt um tvo mánuði. Við fáum mikið af erlendu fólki en flestir koma frá Póllandi,” segir Benedikt Benediktsson, framleiðslustjóri hjá SS. Enda er pólska fánanum og þeim íslenska, ásamt SS fánanum flaggað við sláturhúsið yfir sláturtíðina. Hvernig líst þér á lömbin? „Bara mjög vel, mjög vel, þau koma falleg af fjalli,” segir Benedikt. Hvað er svona skemmtilegast við þennan tíma? „Það er bara yfirleitt að hitta fólkið, sem kemur ár eftir ár og þetta er alltaf stór hópur af sama fólki sem er að koma. Það er alltaf gaman að hitta það, það eru allir hressir og kátir og hlakka til verkefna haustsins,” segir Benedikt. Þá má geta þess að SS stefnir á að fara að byggja nýtt stórgripasláturhús á Selfossi. „Já, það er á teikniborðinu en við erum að hanna nýtt stórgripasláturhús sem verður byggt hér við vonandi á næstu árum,” segir Benedikt. Um hundrað þúsund fjár verður slátrað í sláturtíðinni sem stendur nú yfir hjá Sláturfélagi Suðurlands í sláturhúsinu á Selfossi. Féð kemur vænt af fjalli. Um 120 erlendir starfsmenn komu sérstaklega til landsins til að vinna í sláturtíðinni.

Share this article