- What: Animation festival in Siglufjordur
- Impact: Local cultural event
Innlent | Morgunblaðið | 12.9.2026 | 20:52 Líklega nyrsta teiknimyndahátíð í heimi Hér virðir ungur áhugamaður um myndasögur fyrir sér mismunandi myndasögur á Myndasöguhátíð Siglufjarðar í fyrra. Ljósmyndir/Tasos Gkoletsos Dóra Ósk Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Myndasöguhátíð Siglufjarðar er nú haldin í þriðja skipti, en hún hófst í gær. Hátíðin er hugarfóstur Grikkjans Lefteris Yakoumakis, myndasögusmiðs og myndlistarmanns, sem kom til Siglufjarðar fyrst árið 2013 og hefur búið þar alfarið frá árinu 2020. Hann segir að þótt ekki séu margir myndasögusmiðir í bænum sé gaman að halda hátíðina á Siglufirði, því myndasögur tengist sögu bæjarins beint. Frumkvöðlar á Siglufirði „Sagan segir að Siglufjarðarprentsmiðja hafi verið fyrst til að prenta og gefa út myndasögur á íslensku á sjötta áratug síðustu aldar, að ég held, svo mér finnst mikilvægt að halda þeirri sögu á lofti. Þessi þrjú ár höfum við haft litla sýningu um Siglufjarðarprentsmiðju sem Örlygur Kristfinnsson myndlistarmaður sá um. Fólki finnst áhugavert að skoða hana, því margir hafa ekki vitað af þessari tengingu við bæjarfélagið.“ Við ræðum aðeins um myndasögur og rifjum upp að fyrst þegar Andrés önd var gefinn út hérlendis var hann alltaf á dönsku. Þá var talað um að íslensk börn hefðu orðið altalandi á dönsku því áhuginn á myndasögunum var svo mikill. „Það gæti verið gott að auka lesskilning með aðstoð myndmáls með því að láta börn lesa meira af myndasögum,“ segir Lefteris. „Þar sem ég er myndlistarmaður fannst mér tilvalið að skapa einhvern vettvang fyrir myndasögusmiði til að hittast, eins og algengt er að gert sé erlendis, eins og í Frakklandi og Belgíu þar sem myndasöguhefðin er mjög öflug. Ég er líka viss um að hátíðin okkar sé nyrsta teiknimyndahátíð í heimi,“ segir hann. Líflegt í bænum Það er að vonum mikið um að vera í bænum og fjöldi gesta þessa helgi. „Flestir myndasögusmiðirnir koma frá höfuðborgarsvæðinu og á hverju ári fáum við líka gesti að utan sem heimsækja okkur á hátíðina,“ segir Lefteris og segir aðeins frá dagskránni. Í gær var hátíðin opnuð með opnunarsýningu í Söluturninum Gallery með sýningunum Psychedelia for Morons eftir Fannar Örn Karlsson og Myrkva, sýningu Íslenska myndasögusamfélagsins (ÍMS). Í dag heldur einn erlendu gestanna, Christopher Steininger, fyrirlestur um samvinnu listamanna í myndasögum í Ráðhússalnum kl. 11. „Síðan opnum við Listamannaportið í Ráðhússalnum kl. 13, sem kalla má hjarta hátíðarinnar, þar sem allir listamennirnir sýna verk sín og hægt er að ræða við listamennina. Þar er líka hægt að sjá sýninguna um Siglufjarðarprentsmiðju,“ segir hann. Á sunnudaginn verður námskeið í myndasögugerð fyrir börn með Ursulu Murray Hused í Ráðhússalnum og dagskránni lýkur síðan með fyrirlestri Jeans Antoines Posoccos myndasögusmiðs, Hugmynd verður að veruleika , en hann hefur verið mjög virkur í myndasögugerð hérlendis og kemur með mikilvægt innlegg fyrir yngri teiknara um það hvernig hægt sé að koma sér á framfæri í þessum geira. Það er líf og fjör í Listamannaportinu þar sem hjarta Myndasöguhátíðar Siglufjarðar slær og gaman að ræða við listamennina. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Líklega nyrsta teiknimyndahátíð í heimi Níræð stjarna á frumsýningu Sunderland - Arsenal, staðan er 0:1 „Með stærra hjarta og meiri liðsheild til að vinna“ Danir fengu Gullna ljónið í Feneyjum Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Efnahagurinn lamaður vegna árása Rússa Segir sérhvert dráp hörmulegan missi Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Hellisheiði lokuð vegna slyss Stórir hópar lækna hætta störfum Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný Algjörlega óviðunandi staða Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Minningarstund um Hönnuh Jane Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nýjast á mbl.is » Líklega nyrsta teiknimyndahátíð í heimi Níræð stjarna á frumsýningu Sunderland - Arsenal, staðan er 0:1 „Með stærra hjarta og meiri liðsheild til að vinna“ Danir fengu Gullna ljónið í Feneyjum Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Býður sig fram til varaformanns „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Óttast þyngri vetur fyrir heimilin Lestarslys í Frakklandi: Grunur um skemmdarverk Mest lesið Í gær Í vikunni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Hellisheiði lokuð vegna slyss Stórir hópar lækna hætta störfum Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný Algjörlega óviðunandi staða Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Minningarstund um Hönnuh Jane Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ