Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Fjöldi Jemena á flótta undan stríðsátökum

This article is a news report on the Yemeni conflict and resulting refugee crisis; it does not describe a technical vulnerability, threat, or software flaw. Therefore, a technical security summary containing CVSS scores, affected versions, or remediation steps cannot be provided from this content.
Read Full Article →

Um 1.400 flúðu frá Jemen til Djibútí á einum sólarhring vegna átaka milli stjórnarhersins í Jemen og uppreisnarsveita Húta. Efnahagsráðuneyti Djibútí greindi frá þessu í gær. Safiya Ibrahim hjá Alþjóðlegu fólksflutningastofnuninni segir að margir viðkvæmir hópar fólks, líkt og konur og börn, hafi flúið til Obock í Djibútí og búist er við fleirum á næstu dögum. Uppreisnarsveitir Húta ráða stórum hluta norður Jemen, auk Sanaa og Hodeida í vestri. Þær hafa náð að hertaka fleiri svæði meðfram ströndinni á undanförnum dögum, þar með talið borgina Mokha við Rauðahaf og þrjár eyjur í Rauðahafi. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum hafa að minnsta kosti 76.000 Jemenar neyðst til að yfirgefa heimili sín síðan í júlí. Sá fjöldi fjórfaldaðist í síðustu viku þegar átök hófust milli stjórnarhersins, sem nýtur stuðnings Sádi-Araba, og uppreisnarsveita Húta sem njóta stuðnings Írana. Hundruð manna hafa fallið í átökunum.

Share this article