Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þriðjudagarnir urðu heilagir

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.9.2026 | 7:00 Þriðjudagarnir urðu heilagir Útskrifuð Hildur Lóa er nú komin á leikskóla en Marta María segir heimsóknirnar í Memmm hafa verið nauðsynlegan hluta af orlofinu og hafi undirbúið þær báðar vel fyrir breytinguna. Rósa Margrét Tryggvadóttir [email protected] Setja bókamerki Þriðjudagarnir á Aflagranda urðu fljótt fastur punktur í vikunni hjá Mörtu Maríu Arnarsdóttur og Hildi Lóu dóttur hennar. Þær búa á Seltjarnarnesi en sóttu Opna leikskólann Memmm yfir sveitarfélagamörkin á meðan fjölskyldan beið eftir leikskólaplássi. „Það var alltaf alveg fast á þriðjudögum, algjörlega heilagt,“ segir Marta María, skólameistari Hússtjórnarskólans í Reykjavík. Hildur Lóa fékk loks leikskólapláss í ágúst, þá 17 mánaða gömul. Fram að því vissi fjölskyldan ekki hvernig veturinn myndi raðast saman. Hún frétti sjálf af Memmmi í mæðrahópi og síðar á samfélagsmiðlum. Eftir fyrstu heimsóknina varð opni leikskólinn fljótt hluti af rútínu mæðgnanna. Opni leikskólinn Memmm er gjaldfrjáls samverustaður fyrir ung börn og þá sem annast þau. Ekki þarf að forskrá sig og fullorðinn dvelur á staðnum með barninu og ber ábyrgð á því meðan á heimsókninni stendur. Hefðbundin opnun stendur í tvær klukkustundir. Börnin fá að leika, föndra og taka þátt í söng- og lestrarstundum á meðan fullorðna fólkið hittist og deilir reynslu sinni. „Þetta er ekki bara eins og að fara á kaffihús og hitta önnur börn. Þetta er skipulagt og faglegt starf,“ segir Marta María. Marta María telur heimsóknirnar hafa undirbúið Hildi Lóu vel undir leikskólann. Þar hafi hún vanist öðrum börnum og sameiginlegri dagskrá, auk þess að læra lög og handahreyfingar sem þær tóku með sér heim. „Núna labbar hún bara keik beint inn á deild og dýrkar þetta,“ segir Marta stolt. Marta María segir þjónustuna einnig rjúfa einangrun og gefa vikunni ramma. Þá skipti gjaldfrjáls aðgangur miklu og telur hún sveitarfélög eiga að tryggja fjölskyldum slíka þjónustu. „Þetta er fyrirkomulag sem er komið til að vera, held ég,“ segir hún. Yfir 4.700 heimsóknir Ný greining Gunnars Úlfarssonar hagfræðings á starfsemi Memmm, sem birt var í gær, föstudag, á memmm.is, sýnir að yfir 4.700 fjölskylduheimsóknir voru skráðar skólaárið 2025-2026. Að meðaltali komu 31 fjölskylda í hverja opnun. Aðsókn jókst úr 24 fjölskyldum að meðaltali í ágúst í 57 í júní. Í greiningunni er þróunin meðal annars tengd við vaxandi þörf fjölskyldna eftir því sem lengra líður frá haustinnritun leikskólanna. Alls svöruðu 151 þjónustukönnun Memmms í vor. Rúmlega 93% þeirra sem tóku afstöðu gáfu því einkunnina fjóra eða fimm af fimm og sögðu að opni leikskólinn hjálpaði til við að búa börnin undir aðlögun að leikskóla. „Útskrifast“ á haustin Kristín Stefánsdóttir, iðjuþjálfi og einn stjórnenda Memmms, segir algengt að börn byrji að mæta um sjö til níu mánaða aldur og haldi áfram þar til þau fái leikskólapláss. „Á haustin getum við eiginlega sagt í gamni að þau sem eru að byrja í leikskóla útskrifist. Svo kemur nýr hópur inn.“ Þjónustan er þó ekki aðeins sótt af foreldrum sem bíða eftir leikskólaplássi. Sumir kjósa að vera lengur heima með börnum sínum og auk foreldra koma ömmur, afar, dagforeldrar og au pair-fólk með börn. Um fjórðungur fjölskyldna er með erlendan bakgrunn og segir Kristín starfið stuðla að tengslamyndun og þátttöku. Þar geti fólk myndað tengsl, heyrt íslensku og tekið þátt í sameiginlegri dagskrá. Memmm hefur jafnframt verið í samstarfi við Vinnumálastofnun um þjónustu við fjölskyldur á flótta. Kristín segir opna leikskólann geta skipt sérstaklega miklu fyrir fólk sem er nýkomið til landsins. Hluti af kerfinu í Svíþjóð Hún leggur áherslu á að þörfin fyrir starfsemina myndi ekki hverfa þótt öll börn fengju leikskólapláss fyrr. „Það hittist eiginlega bara þannig á að það er þessi leikskólakrísa. Það verður ekkert alltaf leikskólakrísa. Þetta er vettvangur fyrir foreldra til að hittast með ungbörn. Foreldrarnir hafa alveg jafn gott af þessu og börnin.“ Starfið byggist á sænsku fyrirmyndinni Öppen förskola. Kristín kynntist þjónustunni þegar hún bjó í Svíþjóð fyrir rúmum tveimur áratugum og segist enn rækta tengsl við fólk sem hún kynntist þar. Í Svíþjóð sé foreldrum bent á opna leikskóla í gegnum ungbarnavernd. Hér á landi sé aftur á móti nokkuð undir hælinn lagt hvort fólk frétti af þjónustunni, enda berist upplýsingarnar enn að mestu manna á milli og á samfélagsmiðlum. Draumurinn að vera í öllum sveitarfélögum Starfsemi Memmms fer nú fram fjórum sinnum í viku: á bókasafninu í Hafnarfirði á mánudögum og fimmtudögum, á Aflagranda á þriðjudögum og í Gerðubergi á miðvikudögum. Opnanirnar voru þó sjö á síðasta skólaári. Stjórnendur vilja opna aftur í Spönginni og Bólstaðarhlíð og vonast til að fleiri sveitarfélög bætist í hóp þeirra sem styðja verkefnið. Kristín segir stuðning Reykjavíkur og Hafnarfjarðar hafa haft mikla þýðingu fyrir starfið. Framtíðarsýnin sé þó að þjónustan standi fjölskyldum til boða um allt land. „Draumurinn er að þetta verði í öllum sveitarfélögum. Þannig á það auðvitað að vera,“ segir hún. Faglegt Börnin fá að leika og skapa saman í örvandi umhverfi með foreldrum sínum, undir leiðsögn fagfólks á svæðinu. Stjórnendur Kristín Stefánsdóttir, Helga Hreiðarsdóttir og María Ösp Ómarsdóttir standa að baki Opna leikskólanum. Vinsælt Að meðaltali kom 31 fjölskylda á hverja opnun Memmms síðasta skólaár. Yfir 4.799 heimsóknir voru skráðar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Þriðjudagarnir urðu heilagir „Ég gaf mér ekki tíma til þess að syrgja“ Drukknar í sundlaug við lúxusbústað Selur brauðhleifinn á rúmar 7000 krónur í New York „Ég upplifi mig svolítið á tímamótum“ Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Býður sig fram til varaformanns Stefnir í æsispennandi kosningavöku Ríkið stillir af leikreglur en er eigandi Stórir hópar lækna hætta störfum Mest lesið Í gær Í vikunni Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Átt þú skilið orðu? Einn fær 2,5 milljónir í vasann Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Megum ekki láta óttann stöðva umræðuna Malbikun við Jökulsárlón frestað Stórir hópar lækna hætta störfum Bæjaryfirvöld vilja fleiri bílakjallara Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Gengu 10 km: Segja sniðgöngu langtímaverkefni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Hellisheiði lokuð vegna slyss Stórir hópar lækna hætta störfum Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný Algjörlega óviðunandi staða Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Rannsakað sem alvarlegt atvik Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Nýjast á mbl.is » Þriðjudagarnir urðu heilagir „Ég gaf mér ekki tíma til þess að syrgja“ Drukknar í sundlaug við lúxusbústað Selur brauðhleifinn á rúmar 7000 krónur í New York „Ég upplifi mig svolítið á tímamótum“ Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bæjaryfirvöld vilja fleiri bílakjallara „Þurfum öll að vera vör um okkur“ Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Megum ekki láta óttann stöðva umræðuna Mest lesið Í gær Í vikunni Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Átt þú skilið orðu? Einn fær 2,5 milljónir í vasann Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Megum ekki láta óttann stöðva umræðuna Malbikun við Jökulsárlón frestað Stórir hópar lækna hætta störfum Bæjaryfirvöld vilja fleiri bílakjallara Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Gengu 10 km: Segja sniðgöngu langtímaverkefni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Hellisheiði lokuð vegna slyss Stórir hópar lækna hætta störfum Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný Algjörlega óviðunandi staða Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Rannsakað sem alvarlegt atvik Skattarnir meiri en fólk áttar sig á

Share this article