Rússneskum dróna var skotið á farþegalest sem var á leið frá Kyiv til Varsjár í Póllandi í morgun. Lestin var Úkraínumegin við landamærin en aðeins tveimur kílómetrum frá landamærunum að Póllandi. Pólska lestarfyrirtækið PKP segir að 206 farþegar hafi verið um borð. Engan sakaði. Annar rússneskur dróni sprakk nærri einni af landamærastöðvunum. Úkraínsku járnbrautirnar vöruðu við því í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum að kerfisbundin árás á lestarkerfið stæði yfir um allt landið og starfsfólkið væri á viðbragðsstöðu. Þegar er farið að beina ákveðnum lestum annað. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu segir Rússa hafa gert árásir á borgaralega innviði í vesturhluta Úkraínu. Tveir voru drepnir í árásum Rússa á landið í nótt og í morgun.
This article describes a kinetic, state-sponsored attack vector targeting civilian rail infrastructure, involving drone strikes on passenger trains and border stations. Ukrainian rail authorities have declared a nationwide systemic threat and placed staff on high alert, warning of potential widespread disruption to the rail system. No technical vulnerability, CVSS score, affected software versions, patch, or workaround is provided in the incident report.