Innlent | mbl | 13.9.2026 | 13:00 Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Báturinn Jökull sökk í nótt í þriðja skiptið á sama stað bundinn við bryggju við Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd/Guðmundur Fylkisson Brynhildur Glúmsdóttir [email protected] Setja bókamerki Báturinn Jökull, sem hefur verið bundinn við sömu bryggju við Hafnarfjarðarhöfn í mörg ár, sökk í nótt í þriðja skiptið að sögn Guðmundar Fylkissonar, lögreglumanns og stjórnarmanns hafnarinnar. „Hann sökk fyrir sex til sjö árum, svo liðu fimm ár, þá sökk hann aftur. Ég held það hafi aldrei fundist skýring á því, það var ekki gat á honum eða eitthvað slíkt,“ segir Guðmundur við mbl.is. Hann segir bátinn hafa verið bundinn á sama stað við bryggjuna í ansi mörg ár. Hann sé ekki í notkun og hafi honum hvorki verið siglt né hann lagfærður milli þess sem hann hafi sokkið í öll þrjú skiptin. „Það hefur bara verið dælt úr honum þannig að hann fari á flot. Hann hefur aldrei verið tekinn á land eða neitt slíkt.“ Jökull var kominn á bólakaf klukkan sjö í morgun. Ljósmynd/Guðmundur Fylkisson Átti að farga bátnum á næstu dögum Guðmundur segir eigendur bátsins ekki hafa viljað farga honum, en eftir að hann sökk í annað skiptið hafi þeim verið gert að fjarlægja hann. „Það átti að gerast á næstu dögum, farga honum,“ segir Guðmundur og bætir við að í gær hafi birst mynd á Facebook-síðu íbúa í Hafnarfirði þar sem mátti sjá að báturinn var farinn að síga. „Sjálfur renndi ég nú niður á höfn um kvöldmatarleytið og þá voru dælur í gangi og báturinn hafði lyfst frá því yfir daginn, en klukkan sjö í morgun var hann kominn niður.“ Nú er fjara svo Jökull stendur að stærstum hluta til upp úr sjónum. Ljósmynd/Guðmundur Fylkisson Hér má sjá Jökul byrja að síga ofan í spegilsléttan sjóinn við Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd/Guðmundur Fylkisson Snemma í morgun var báturinn á bólakafi. Ljósmynd/Guðmundur Fylkisson Jökull við Hafnarfjarðarhöfn í dag. Ljósmynd/Guðmundur Fylkisson Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lagði upp mark og styrkti stöðina á toppnum Rannsóknir fyrir karla bornar á borð fyrir konur Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn FH – KA kl. 14, bein lýsing Ronaldo heimtar lífstíðarbann eftir hrottalega hegðun stuðningsmanna Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir sérhvert dráp hörmulegan missi Átt þú skilið orðu? Efnahagurinn lamaður vegna árása Rússa Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Mest lesið Í gær Í vikunni Þriðjudagarnir urðu heilagir Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Átt þú skilið orðu? Einn fær 2,5 milljónir í vasann „Þakklæti er orðið sem stendur upp úr“ „Einfaldlega almannahagsmunamál“ Átökin á Austurvelli 1949 í nýju ljósi Bæjaryfirvöld vilja fleiri bílakjallara Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Hellisheiði lokuð vegna slyss Stórir hópar lækna hætta störfum Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný Algjörlega óviðunandi staða Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Rannsakað sem alvarlegt atvik Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nýjast á mbl.is » Lagði upp mark og styrkti stöðina á toppnum Rannsóknir fyrir karla bornar á borð fyrir konur Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn FH – KA kl. 14, bein lýsing Ronaldo heimtar lífstíðarbann eftir hrottalega hegðun stuðningsmanna Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hættu þessu meikrugli og drífðu þig heim Lifði á gruggugu vatni í tíu daga Ríkið beggja vegna borðsins Segir sérhvert dráp hörmulegan missi Mest lesið Í gær Í vikunni Þriðjudagarnir urðu heilagir Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Átt þú skilið orðu? Einn fær 2,5 milljónir í vasann „Þakklæti er orðið sem stendur upp úr“ „Einfaldlega almannahagsmunamál“ Átökin á Austurvelli 1949 í nýju ljósi Bæjaryfirvöld vilja fleiri bílakjallara Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Hellisheiði lokuð vegna slyss Stórir hópar lækna hætta störfum Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný Algjörlega óviðunandi staða Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Rannsakað sem alvarlegt atvik Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð