Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf

Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.9.2026 | 15:06 Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf Einstaklingur úr áhöfn erlends þjónustuskips veiktist. mbl.is/Árni Sæberg Brynhildur Glúmsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Landhelgisgæslan Slasaðist eftir fall í gil við Háafoss Alvarlegt hestaslys við Kirkjubæjarklaustur Bandero fært úr Sundahöfn Þyrlan kölluð út: Slasaður göngumaður Maður á sjó reyndist vera heimagerð skúta » Fleiri tengdar fréttir Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru sendar langt út á haf rétt fyrir hádegi í dag, en veikindi komu upp hjá einstaklingi úr áhöfn erlends þjónustuskips. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslu Íslands. „Þetta er í raun og veru útkall sem á sér töluverðan aðdraganda. Það er haft samband við okkur í gær og þá fengum við veður af því að þetta gæti mögulega orðið og svo í morgun voru þyrlurnar kallaðar út,“ segir Ásgeir við mbl.is. Skipið töluvert utan efnahagslögsögunnar Hann segir skipið hafa verið töluvert fyrir utan íslensku efnahagslögsöguna þegar málið kom upp og var það því beðið um að halda nær landi og tóku þyrlurnar á loft rétt fyrir hádegi. „Þetta var töluvert flug í átt að skipinu sem var um tvö hundruð sjómílur suður af landinu. Í ljósi þess að þetta var langt flug og langt frá landi þá voru báðar þyrlur sendar. Önnur þyrlan sá um útkallið og hin fylgdi í raun og veru bara til þess að gæta fyllsta öryggis.“ Aðgerðin gekk vel Ásgeir bætir við að aðgerðin hafi gengið vel en búið er að ná í hinn veika og er gert ráð fyrir því að þyrlurnar lendi aftur í Reykjavík á fjórða tímanum og verður viðkomandi fluttur á Landspítalann. „Þetta er þannig að það þarf töluvert skipulag þegar það er verið að fara í svona aðgerð. Hún er flókin. Hún krefst þess að það þurfi að fara vel yfir, í raun og veru nákvæmlega hvernig hlutirnir eru unnir enda ertu kominn langt frá landi og flugið er langt og þú hefur ákveðinn tíma á staðnum af því að þú ert náttúrulega bundinn við að vera með ákveðið mikið eldsneyti,“ segir Ásgeir. Segir hann þyrlur Gæslunnar sérstaklega gerðar til þess að komast út í ystu mörk efnahagslögsögunnar, koma fólki þar til bjargar og fljúga aftur til baka. „En það er svo sem ekki á hverjum degi sem við sendum báðar þyrlur. Oftast dugir að önnur þyrlan sé þá bara til taks í bænum.“ Tengdar fréttir Landhelgisgæslan Slasaðist eftir fall í gil við Háafoss Alvarlegt hestaslys við Kirkjubæjarklaustur Bandero fært úr Sundahöfn Þyrlan kölluð út: Slasaður göngumaður Maður á sjó reyndist vera heimagerð skúta » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » FH - KA, staðan er 3:0 Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf Fjörugir Brighton-menn rústuðu nýliðunum Fimm einföld ráð Inu Garten fyrir fallegra eldhús Amin kom við sögu er Viking skoraði átta Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump biður Selenskí að hætta árásum Efnahagurinn lamaður vegna árása Rússa Átti von á góðri þátttöku flugvirkja Hvenær verða óbyggðir að óbyggðum víðernum? Mest lesið Í gær Í vikunni Þriðjudagarnir urðu heilagir Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Átt þú skilið orðu? Einn fær 2,5 milljónir í vasann „Þakklæti er orðið sem stendur upp úr“ „Einfaldlega almannahagsmunamál“ Átökin á Austurvelli 1949 í nýju ljósi Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Hellisheiði lokuð vegna slyss Stórir hópar lækna hætta störfum Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný Algjörlega óviðunandi staða Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Rannsakað sem alvarlegt atvik Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nýjast á mbl.is » FH - KA, staðan er 3:0 Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf Fjörugir Brighton-menn rústuðu nýliðunum Fimm einföld ráð Inu Garten fyrir fallegra eldhús Amin kom við sögu er Viking skoraði átta Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Þorgerður ekki sú eina sem bregst við Taka höndum saman: 1.800 fermetra stækkun Trump sussar á gervigreindargagnrýnendur Mest lesið Í gær Í vikunni Þriðjudagarnir urðu heilagir Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Átt þú skilið orðu? Einn fær 2,5 milljónir í vasann „Þakklæti er orðið sem stendur upp úr“ „Einfaldlega almannahagsmunamál“ Átökin á Austurvelli 1949 í nýju ljósi Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Hellisheiði lokuð vegna slyss Stórir hópar lækna hætta störfum Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný Algjörlega óviðunandi staða Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Rannsakað sem alvarlegt atvik Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð

Share this article