Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Hakkarar tóku niður vef norska stórþingsins

The threat is a DDoS attack by the Russia-linked group Server Killers, which overwhelms a target website or service with traffic from multiple devices to cause an outage. The article does not provide a CVSS score, specific affected software versions, fixed versions, or technical workarounds.
Read Full Article →

Tölvuhakkarahópurinn Server Killers, sem hefur tengsl við Rússland, segist hafa valdið því að vefur norska stórþingsins liggur niðri. Hakkararnir segja á samfélagsmiðlinum Telegram að þeir ætli að loka vef þingsins í þrjár klukkustundir. Norski fjölmiðillinn VG greindi frá árás rússnesku hakkaranna. Þeir eru sagðir hafa gert DDoS-árás sem byggir á því að mörg tæki senda mjög mikla umferð á vefsíðu eða þjónustu, svo mikla að vefir geta legið niðri ef varnirnar við tölvuárásinni duga ekki. VG segir að Server Killers-hópurinn hafi lýst yfir netstríði gegn Noregi í sumar vegna stuðnings Norðmanna við Úkraínu og að hópurinn hafi ráðist á vefi norskra háskóla og framhaldsskóla fyrir nokkrum dögum.

Share this article