Víkingur þokast nær Íslandsmeistaratitlinum í fótbolta eftir 4-1 sigur á Keflavík í 1. umferð úrslitahluta Bestu deildar karla í kvöld. Víkingur komst í 4-0 með mörkum Daníels Hafsteinssonar, Róberts Orra Þorkelssonar og tveimur frá Stíg Diljan Þórðarsyni. Muhammed Alghoul minnkaði muninn í 4-1 á 58. mínútu fyrir Keflavík en sigur Víkings var aldrei í hættu. Með sigrinum hefur Víkingur nú 56 stig í efsta sæti deildarinnar, níu stigum meira en KR sem er í 2. sæti þegar fjórir leikir eru eftir af Íslandsmótinu. Fram er í 3. sæti 11 stigum á eftir Víkingi, en á leik til góða á móti nýkrýndum bikarmeisturum Breiðabliks annað kvöld.