Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin

  • What: Discussion about potential U.S. agreements with Iceland
  • Impact: Focus on geopolitical and strategic considerations
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 15.9.2026 | 8:30 Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Hjörtur J. Guðmundsson mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Vangaveltur um mögulegan fríverzlunarsamning við Bandaríkin hafa reglulega stungið upp kollinum á liðnum árum og áratugum. Til að mynda greindi fréttavefurinn Axios frá því haustið 2019 að bandarísk stjórnvöld væru að velta fyrir sér möguleikanum á slíkum samningi við Ísland. Ekki þó vegna viðskiptahagsmuna heldur vegna mikilvægrar landfræðilegrar stöðu landsins og áhuga ráðamanna í Washington til þess að styrkja stöðu Bandaríkjanna á norðurslóðum. Flest bendir hins vegar til þess að fríverzlunarsamningur við Bandaríkin sé ekki í kortunum á meðan Ísland er aðili að EES-samningnum. Vandséð er þannig að stjórnvöld í Washington gætu fallizt á það að innfluttar bandarískar vörur til Íslands þyrftu að taka mið af regluverki Evrópusambandsins sem taka þarf upp í gegnum hann og við getum ekki breytt, sem er oft mjög ólíkt því sem gengur og gerist vestra og gjarnan beinlínis hannað til þess að vernda framleiðslu innan ESB. Hafa ber í huga í þessu sambandi að Evrópusambandið er í grunninn tollabandalag. Slík bandalög eru í eðli sínu andstaðan við frjáls milliríkjaviðskipti, enda markmiðið með þeim fyrst og fremst að vernda framleiðslu innan þeirra fyrir utanaðkomandi samkeppni. Í seinni tíð, samhliða lengst af lækkun tolla á heimsvísu þar til undir það síðasta, hafa tæknilegar viðskiptahindranir í formi regluverks tekið við sem helzta leiðin til þess að viðhalda verndarhyggju í milliríkjaviðskiptum. Verulegur hluti regluverks Evrópusambandsins á sviði viðskipta er hannaður sem tæknilegar viðskiptahindranir með það fyrir augum að vernda framleiðslu í ríkjum þess en iðulega sagður snúast um neytendavernd. Þar er allajafna um að ræða framleiðslu sem tengist á engan hátt íslenzkum hagsmunum. Misheppnaðar fríverzlunarviðræður Bandaríkjanna og sambandsins á sínum tíma, sem náðu í raun aldrei flugi, snerust enda fyrst og fremst um slíkar tæknilegar viðskiptahindranir. Þegar Costco rakst á EES-samninginn Fyrir vikið eru íslenzk stjórnvöld í þeirri stöðu að þurfa að gera viðsemjendum sínum um mögulega fríverzlunarsamninga grein fyrir því, áður en formlegar viðræður geta farið af stað, að vegna aðildar Íslands að EES-samningnum þurfi Ísland að taka upp umfangsmikla löggjöf Evrópusambandsins á sviði viðskiptamála sem sé ekki þeirra og þau geti fyrir vikið ekki samið um. Viðsemjendurnir eru því í þeirri stöðu að þurfa að sætta sig við það eða hætta við að hefja viðræður. Fram kom í greinargerð með drögum að reglugerð um árið, sem breyta átti reglum um matvælamerkingar þannig að nóg væri að hægt væri að nálgast innihaldslýsingar með því að skanna vörur með appi en náðu ekki fram að ganga vegna EES-samningsins, að regluverk sem tekið hafi verið upp í gegnum hann hafi „skapað viðskiptahindrun við nánustu viðskiptalönd Íslands utan EES og minnkað svigrúm EFTA-EES ríkjanna til að gera viðskiptasamninga við ríki utan EES.“ Til stóð upphaflega að Costco á Íslandi yrði útibú frá starfsemi fyrirtækisins í Kanada. Þegar stjórnendur Costco ráku sig hins vegar á EES-samninginn var ákveðið að í staðinn yrði um að ræða útibú frá Bretlandi sem þá var enn innan Evrópusambandsins. Litlu munaði að hætt yrði við opnun verzlunarinnar. Fyrir vikið hafa fyrst og fremst evrópskar vörur verið í boði í Costco á Íslandi, ekki sízt brezkar, en mun minna af bandarískum og kanadískum en hugmyndin var upphaflega. Hlutdeild vöruinnflutnings frá Bandaríkjunum í veltu heildsölufyrirtækisins Innnes hefur dregizt verulega saman á liðnum árum. Ástæðan er einkum regluverk Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn og mikill kostnaður vegna þess. Ekki sízt við endurmerkingar varnings. Til að mynda hætti Innnes að flytja inn bandarískt kex a sínum tíma af þeim sökum. Mörg fleiri dæmi er hæglega hægt að nefna í þessum efnum um viðskiptahindranir í regluverki í gegnum samninginn. Samkeppnishæft eða samkeppnishæfara? Með öðrum orðum er EES-samningurinn, sem greiða átti fyrir viðskiptum við Evrópusambandið, í vaxandi mæli hindrun í vegi viðskipta við aðra markaði sem eru miklu fremur markaðir til framtíðar. Ísland er utan tollamúra sambandsins en vegna aðildarinnar að samningnum innan regluverksmúra þess. Regluverkið sem taka þarf upp í gegnum hann markar þannig í raun svigrúmið sem íslenzk stjórnvöld hafa til þess að semja um fríverzlun við önnur lönd og markaðssvæði. Við þetta bætist að regluverkið í gegnum EES-samninginn er gjarnan afar íþyngjandi fyrir íslenzkt atvinnulíf, óháð allri gullhúðun. Fram hefur komið í skýrslum fyrir Evrópusambandið, líkt og Draghi-skýrslunni, að regluverk þess skaði verulega samkeppnishæfni þess. Gjarnan er sagt að samningurinn geri íslenzkt atvinnulíf samkeppnishæft á við atvinnulíf annarra ríkja innan EES en nær er að segja að hann geri hérlent atvinnulíf jafn ósamkeppnishæft og það. Til að mynda kemur fram í skýrslu ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur frá árinu 2016, einu rannsókn sinnar tegundar, að mikill meirihluti íþyngjandi löggjafar fyrir atvinnulífið kæmi frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn og að dræman árangur í einföldun íþyngjandi regluverks hér á landi mætti einkum rekja til þess að slíkt regluverk kæmi aðallega þaðan og væri ekki hægt að breyta. Þá hefði gullhúðun á regluverki frá sambandinu átt sér stað í þriðjungi tilvika. Hins vegar er leið út úr þessum aðstæðum, sem ríki heimsins kjósa allajafna að fara þegar þau semja um viðskipti sín á milli. Ekki sízt stærstu efnahagsveldin með sína miklu viðskiptahagsmuni. Nútímalegur víðtækur fríverzlunarsamningur eins og við gerðum með góðum árangri við Bretland í stað EES-samningsins. Leið sem ólíkt EES-samningnum felur ekki í sér hindranir í viðskiptum við önnur ríki, upptöku íþyngjandi regluverks eða vaxandi framsal valds yfir eigin málum. Hjörtur J. Guðmundsson er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur og heldur úti vefsíðunni www.Stjornmalin.is Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Zlatan og eiginkonan töpuðu dómsmáli Segja ákvörðunina „þungt högg“ Matthew Rhys skráði sig á spjöld sögunnar Fjórar hræódýrar borgarferðir í haust Umræðan Þegar vísitalan skilar sér í veskið Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Er hægt að hægja á þróun gervigreindar? Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Mest lesið Í gær Í vikunni Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Andlát: Hólmbert Friðjónsson Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Snjallgleraugun gætu orðið að næstu tæknibyltingu Landvörður á Hornströndum í 26 sumur Hildur vill bjóða Tækniskólanum lóð í Úlfarsárdal Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Íslensk börn einu og hálfu ári eftir á Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hópslagsmál í bílakjallara Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Björgunarsveit komin upp við vegg Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Zlatan og eiginkonan töpuðu dómsmáli Segja ákvörðunina „þungt högg“ Matthew Rhys skráði sig á spjöld sögunnar Fjórar hræódýrar borgarferðir í haust Umræðan Þegar vísitalan skilar sér í veskið Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd „Langvarandi ósiður“ hins opinbera Mest lesið Í gær Í vikunni Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Andlát: Hólmbert Friðjónsson Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Snjallgleraugun gætu orðið að næstu tæknibyltingu Landvörður á Hornströndum í 26 sumur Hildur vill bjóða Tækniskólanum lóð í Úlfarsárdal Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Íslensk börn einu og hálfu ári eftir á Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hópslagsmál í bílakjallara Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótry

Share this article