Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ekki hægt að mæta launakröfum flugvirkja

  • What: Dispute over wages between airline workers and Icelandair
  • Impact: Potential for prolonged strikes affecting air travel
Read Full Article →

Atkvæðagreiðslu félagsmanna Flugvirkjafélags Íslands lauk í hádeginu. Niðurstaðan var afgerandi, verkfallsboðun var samþykkt með áttatíu og átta komma þremur prósentum greiddra atkvæða. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er ekki bjartsýnn á að samningar náist milli flugvirkja og Icelandair, enda sé félagið ekki í neinni stöðu til að mæta kröfum flugvirkja. „Þetta er mjög þröng staða vegna þess að það ber mikið í milli samningsaðilanna og mér líst bara ekkert allt of vel á stöðuna.“ Flugvirkjar hjá Icelandair fara að óbreyttu í verkfall frá og með miðvikudeginum í næstu viku. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekki hægt að mæta launakröfum flugvirkja. Kröfurnar langt umfram svigrúm félagsins Ótímabundin verkföll flugvirkja hjá Icelandair hefjast á miðnætti 23. september. Bjarni segir kröfur flugvirkja langt umfram það svigrúm sem Icelandair hefur. Í tilkynningu Icelandair segir að félagið hafi lagt fram sanngjarnt og ábyrgt samningstilboð. Bjarni segist ekki búast við að frekari tilboð verði lögð fram. „Ég held að Icelandair muni halda sig við það tilboð sem er á borðinu og samrýmist öðru því sem samið hefur verið um.“ Nái Icelandair ekki að gera samning við Flugvirkjafélag Íslands áður en verkfall skellur á hefur það veruleg áhrif á flugáætlun Icelandair. Félagið segist nú ætla að meta möguleg áhrif verkfalls á farþega. Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands og samninganefndar félagsins, segir ljóst að verkfall komi til með að hafa áhrif á starfsemi Icelandair, endanlegt markmið sé að fá Icelandair að samningaborðinu. „Við erum ekki að dagsetja neitt eða telja eitthvað í dögum, tilgangurinn er að ná kjarasamningi og við erum tilbúin að setjast að samningaborðinu um leið og kallið berst.“

Share this article