- What: Hafdís Hilmarsdóttir joins Sahara as a digital marketing expert
- Impact: Professional career move in digital marketing
Hafdís Hilmarsdóttir hefur verið ráðin sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu hjá Sahara, með sérstaka áherslu á Google Ads. Hún er með BA-gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá VIA University College á Mið-Jótlandi og Síðast starfaði Hafdís hjá stafrænu markaðsstofunni Web2Media í Árósum. Þar vann hún með fjölbreyttum hópi viðskiptavina, allt frá málurum til Michelin-veitingastaða, til stærri fyrirtækja á borð við Meta. Hafdís býr yfir fimm ára reynslu af leitarvélamarkaðssetningu og hefur undanfarin ár unnið við uppbyggingu, umsjón og bestun Google Ads-herferða. „Ég er virkilega ánægð að vera gengin til liðs við Sahara og hlakka til að vinna að þeim skemmtilegu og krefjandi verkefnum sem framundan eru með frábæru teymi,“ segir Hafdís. Ferill Hafdísar í stafrænni markaðssetningu hófst hjá dönsku vefversluninni Trendhim, fyrst í starfsnámi og síðar í fullu starfi. Þar bar hún ábyrgð á Google Ads-herferðum fyrirtækisins á 27 mörkuðum, með sérstakri áherslu á Google Shopping, auk annarra herferðategunda innan Google Ads. „Hafdís kemur til okkar með mikla reynslu af Google Ads sem fellur vel að þörfum okkar viðskiptavina. Við erum mjög spennt að fá hana til liðs við teymið,“ segir Sigurður Svansson, framkvæmdastjóri Sahara.