Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ekið á hjólreiðamann

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 12 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Ekið á hjól­reiða­mann Ragnhildur Helgadóttir Ekið var á hjólreiðamann við Gránufélagsgötu á Akureyri á sjötta tímanum í dag. Þetta staðfestir lögreglan á Norðurlandi eystra. Lögregla og sjúkrabíll voru kölluð á vettvang. Hjólreiðamaðurinn var skoðaður af sjúkraflutningamönnum og boðið að fara á sjúkrahús en hann afþakkaði það, að sögn Heimis Heiðarssonar varðstjóra. Aðsend Fréttin hefur verið uppfærð. Fyrir 41 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Fann vel fyrir skjálft­an­um: „Glamr­aði í gleri í skápum og hristist hressi­lega“ Skjálftinn sem reið yfir í Langjökli í dag fannst vel í nágrenni jökulsins. Skjálftinn er stærsti skjálfti í Langjökli frá árinu 2022. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Um hvað snúast deil­urn­ar innan SÁÁ? Fyrrverandi fagstjóri og fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga segja deilurnar innan SÁÁ tengjast afskiptum stjórnar af faglegu starfi. Formaðurinn hafnar því hins vegar. Afsagnir og vantraustsyfirlýsing starfsfólks hafa skekið SÁÁ undanfarið. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Filippseyjar Dut­er­te ber fyrir sig minn­is­leysi og vill að rétt­ar­höld­um verði aflýst Verjendur fyrrverandi forseta Filippseyja segja hann ekki færan um að sitja réttarhöld fyrir Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Haag vegna minnisleysis. Hann er sagður ekki muna hvað verjandi hans heitir. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Fyrsta vind­orku­ver­ið gang­sett í blíð­viðri Vaðölduver var gangsett við hátíðlega athöfn í dag. Þetta er fyrsta vindorkuver landsins. Veðurguðirnir brostu aðeins of mikið við gestum þar sem blankalogn var nánast allsráðandi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Bókmenntir Vill vita hver fram­tíð­ar­sýn ráð­herra er um stuðn­ing við bóka­út­gáfu Þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram fyrirspurn á þingi um Bókasafnssjóð höfunda. Hún vill vita hvernig ráðherra ætlar að stuðla að aukinni útgáfu bóka á íslensku, nýlegar PISA-niðurstöður sýni að ekki sé vanþörf á. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Matvælastofnun Inn­kalla fæðu­bót­ar­efni vegna að­skota­efna Hugrún Hannesdóttir Diego Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur tegundum af fæðubótarefnum frá vörumerkinu Guli miðinn sem Heilsa ehf. flytur inn. Aðskotaefnið pyrrolizidine alkalóíða mældist yfir mörkum í vörunum Husk með lotunúmer 25/16/11 og Colon Cleanser með lotunúmer 25/5/59. Neytendur sem hafa keypt umræddar vörur eru beðnir um að hætta notkun þeirra og farga en einnig má skila þeim í versluninni þar sem þær voru keyptar eða hjá Heilsu ehf. mast.is / Matvælastofnun Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Stærsti jarð­skjálfti í Lang­jökli síðan 2022 Jarðskjálfti, 4,2 að stærð, sem varð um tuttugu mínútur eftir tvö í dag er sá stærsti jöklinum síðan í júní 2022. Skjálftinn fannst víða á Suðvesturlandi. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar HM í frjáls­um í fyrsta sinn í Afríku 2029 Einar Örn Jónsson Alþjóða frjálsíþróttasambandið, World Athletics, ákvað á fundi sínum í dag að heimsmeistaramótið í frjálsíþróttum 2029 verði haldið í Naírobí í Kenía. Þetta er í fyrsta sinn sem HM í frjálsum er haldið í Afríku. Það er vel við hæfi að Kenía verði fyrir valinu því þessi gríðarlega hlaupaþjóð hefur unnið næstflest verðlaun allra á heimsmeistaramótunum. Aðeins Bandaríkin hafa fleiri verðlaun; 469 á móti 182 hjá Kenía. Naíróbí hafði betur í baráttu við Lundúnir, Róm og München. München fékk mótið 2031. Næsta heimsmeistaramót er Beijing í Kína næsta sumar. Beatrice Chebet og Faith Kipyegon, tvær af fremstu hlaupakonum Kenía. EPA Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Áfram­hald­andi land­ris undir Svarts­engi Hugrún Hannesdóttir Diego Landris undir Svartsengi hefur mælst um fimm sentimetrar undanfarna þrjá mánuði og líklegasta sviðsmyndin er áfram að kvikuhlaup verði yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti leitt til eldgoss. Þetta kemur fram í uppfærðu hættumati Veðurstofu Íslands. Ekki er hægt að segja til um hvenær slíkur atburður gæti orðið. Þrýstingur byggist enn upp á nokkurra kílómetra dýpi en eftir því sem lengra líður frá síðasta gosi eykst óvissa um tímasetningu þess næsta. „Gera þarf áfram ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og fyrir fyrri gos á Sundhnúksgígaröðinni.“ Guðmundur Bergkvist Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Jarð­skjálfti 4,2 að stærð í vest­an­verð­um Lang­jökli Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Jarðskjálfti 4,2 að stærð var í vestanverðum Langjökli klukkan átján mínútur yfir tvö. Þetta er stærsti skjálfti á svæðinu síðan í júní 2022. Sá skjálfti var 4,6 að stærð. Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir ekki óþekkt að skjálfti af þessari stærðargráðu mælist á svæðinu. Á þessu ári hafi verið töluverð virkni í Langjökli, sérstaklega í Þórsjökli og Geitlandsjökli, sem eru aðeins sunnar en þessi skjálfti varð. Síðast varð skjálfti á svipuðum slóðum og þessi í dag, 31. ágúst, þá 2,4 að stærð. Jarðskjálftinn varð í vestanverðum Langjökli. Veðurstofa Íslands Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Ís­lands­meist­ararn­ir án fyr­ir­lið­ans í upp­hafi móts Einar Örn Jónsson Íslandsmeistarar karla í körfubolta, Grindavík, verða án fyrirliða síns í fyrstu leikjum Íslandsmótsins. Ólafur Ólafsson meiddist í úrslitaeinvígi deildarinnar gegn Tindastóli í vor. Í viðtali við Vísi segir Ólafur að bein í ristinni hafi farið í tvennt. Slík brot taki lengri tíma að jafna sig en hefðbundin álagsbrot í fæti og gæti hann verið frá til jóla „Ég ætla ekkert að flýta mér og fara of snemma of stað. Þetta er leiðinlegt brot og ég ætla að leyfa því að gróa alveg,“ segir Ólafur við Vísi. Ólafur leiddi Grindavík til titilsins í vor og fékk svo fálkaorðuna frá Forseta Íslands í júní fyrir þjónustu við heimabyggð á erfiðum tímum. Ólafur Ólafsson lyftir Íslandsbikarnum síðastliðið vor. Mummi Lú Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Þetta fá bæjar- og sveit­ar­stjór­ar lands­ins í laun Meðallaun sveitarstjóra á Íslandi eru rétt rúmar tvær milljónir króna á mánuði. Nær öll sveitarfélög landsins hafa gengið frá ráðningu sveitarstjóra eftir kosningarnar í vor. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Þrír ung­lings­dreng­ir sak­að­ir um aðild að ráða­bruggi um laun­morð 19 ára norskur maður var dæmdur fyrir að leggja á ráðin um að manndráp í Bretlandi árið 2025 fyrir hönd glæpasamtakanna Foxtrot. Þrjú ungmenni eru ákærð í Noregi fyrir að aðstoða manninn. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Tel­en­or sakað um þátt­töku í glæpum her­for­ingja­stjórn­ar Mj­an­mar Húsleit var gerð í höfuðstöðvum norska fjarskiptafyrirtækisins Telenor vegna gruns um að dótturfélag þess í Mjanmar hafi átt hlutdeild í glæpum herforingjastjórnar landsins gegn mannkyni. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti „Förum ekki að fagna fyrr en þetta er klárt“ Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, segir liðið hafa unnið sér inn góða stöðu í Bestudeildinni. Þó sé ekki tímabært að fara að fagna titli. Víkingur getur orðið Íslandsmeistari um helgina, svo tekur við þriggja vikna landsleikjahlé. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Áætl­an­ir um Topp­stöð­ina óbreytt­ar þrátt fyrir bruna Illa gekk að finna eldsupptök í Toppstöðinni í Elliðaárdal í gær vegna mikils reyks. Slökkvistarf gekk þó vel og áætlanir um starfsemi í húsinu haldast óbreyttar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Þurfa ekki um­hverf­is­mat fyrir gagna­ver Brynjólfur Þór Guðmundsson Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði í síðustu viku kröfu Náttúrugriða um að ekki þyrfti umhverfismat vegna byggingar gagnavers í Reykjanesbæ. Verne Global hyggst reisa þar gagnaver með 20.000 fermetra gólfflöt. Úrskurðarnefndin vísaði til mats Náttúrufræðistofnunar sem taldi ekki að framkvæmdin hefði umtalsverð umhverfisáhrif. Svæðinu hefur þegar verið raskað og þar eru meðal annars 15.000 fermetrar af malbiki sem þarf að fjarlægja. Helstu áhrifin eru á hljóðvist og ásýnd. Hávaðinn er að mestu bundinn við það þegar varaaflstöð er keyrð en það verður í undantekningartilfellum. Horft yfir Reykjanesbæ. RÚV / Arnhildur Hálfdánardóttir Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Gervigreind Segir áhyggj­ur um þróun gervi­greind­ar vera land­ráð og svik Bandaríkjaforseti kallar þá landráðamenn sem lýsa áhyggjum af þróun gervigreindar. Eftir dómsdagsspár fyrrverandi starfsmanna í geiranum hafa topparnir í stærstu fyrirtækjunum vestanhafs sagst opnir fyrir því að hægja á þróun gervigreindar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Bret­arn­ir hugs­an­lega að selja sig út úr HS Orku Ancala Partners undirbúa sölu á helmingshlut fyrirtækisins í HS Orku. Þeir hafa átt orkufyrirtækið til helminga á móti fjórtán lífeyrissjóðum frá 2019. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Engar sigl­ing­ar yfir Breiða­fjörð á meðan Baldur er í slipp Breiðafjarðarferjan Baldur fer í slipp í október. Farþegaskipið Ingólfur frá Ísafirði sinnir siglingum út í Flatey á meðan. Engar siglingar verða milli Stykkishólms og Brjánslækjar meðan Baldur verður í slipp. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndagagnrýni Um tímann og vatnið: „Ljóð­rænn óður til minn­inga, nátt­úr­unn­ar og ást­ar­inn­ar“ Um tímann og vatnið er nýjasta heimildarmynd Söru Dosa. Myndin er að hluta til byggð á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar sem kom út 2019. Kolbeinn Rastrick rýnir í Um tímann og vatnið í Lestinni á Rás 1. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Verk­áætl­un í við­ræð­um FÍA og Ic­elandair gekk ekki eftir Icelandair og FÍA stefndu að því að klára kjarasamninga fyrir daginn í dag. Ríkissáttasemjari segist bjartsýnn þrátt fyrir að það hafi ekki tekist. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Þrír starfs­menn á Vogi komnir í veik­inda­leyfi Þrír starfsmenn á sjúkrahúsinu Vogi eru komnir í veikindaleyfi eftir að aðalstjórn SÁÁ lýsti í gær yfir stuðningi við framkvæmdastjórn samtakanna. Á sjöunda tug starfsmanna höfðu áður lýst yfir vantrausti á framkvæmdastjórnina. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Koma hefði mátt í veg f

Share this article