Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hvorki bruni né asbest breyti áformunum

  • What: Fire at Toppstöð house
  • Impact: Investigation ongoing
Read Full Article →

Innlent | mbl | 15.9.2026 | 19:24 Hvorki bruni né asbest breyti áformunum Forsvarsmenn Toppstöðvarinnar hafa ekki enn fengið að skoða húsið að innan eftir brunann á mánudag. Því liggur ekki fyrir hvort eldurinn hafi skemmt sérstætt burðarvirki hússins. mbl.is/Eggert Jóhannesson Rósa Margrét Tryggvadóttir [email protected] Setja bókamerki Forsvarsmenn Toppstöðvarinnar hafa ekki enn fengið að skoða húsið að innan eftir brunann á mánudag. Því liggur ekki fyrir hvort eldurinn hafi skemmt sérstætt burðarvirki hússins. Bruninn tefur þó ekki skipulagsvinnu vegna fyrirhugaðrar miðstöðvar útivistar og jaðaríþrótta, að sögn Brynjólfs Þorkels Brynjólfssonar hjá Eignabyggð. Enn er stefnt að opnun fyrir lok árs 2028. Brynjólfur Þorkell Brynjólfsson ásamt Heiðu Björg Hilmisdóttir fyrrverandi borgarstjóra Reykjavíkurborgar við kaupsamning á sölu á Toppstöðinni í febrúar á þessu ári. Ljósmynd/Reykjavíkurborg „Það hefur ekkert breyst,“ segir Brynjólfur. Unnið sé með Reykjavíkurborg að skipulagi, útliti hússins og byggingarheimildum. „Þetta er ekkert að tefja neitt.“ Brynjólfur segir forsvarsmenn verkefnisins aðeins hafa séð skemmdirnar utan frá. Lögregla sé enn með vettvanginn og gert sé ráð fyrir að fulltrúar tryggingafélagsins skoði húsið á morgun. Frétt af mbl.is Ekki útilokað að asbest hafi borist með reyknum Óvíst hvort stálgrindin hafi skemmst Áformin hafa miðað að því að varðveita megnið af burðarvirki Toppstöðvarinnar, meðal annars hina sérstæðu hnoðuðu stálgrind. „Við ætluðum að reyna að halda í mestan hlutann af burðarvirkinu,“ segir Brynjólfur. Ekki verði ljóst fyrr en húsið hefur verið skoðað hvort hitinn hafi skemmt stálgrindina og hvort fjarlægja þurfi hluta hennar. Því sé heldur ekki hægt að segja að svo stöddu hversu stór hluti hússins verði rifinn. „Okkar markmið er náttúrulega bara að fjarlægja asbest úr húsinu,“ segir Brynjólfur. Unnið sé að málinu í samráði við Vinnueftirlitið og Reykjavíkurborg. Endanleg útfærsla ráðist meðal annars af ástandi hússins og þeim kröfum sem gerðar verði vegna framkvæmdanna. „Endalaus varnarstaða“ Bruninn var að minnsta kosti sá þriðji sem slökkviliðið hefur sinnt í Toppstöðinni. Brynjólfur segir eigendurna hafa reynt að loka öllum mögulegum leiðum inn í húsið síðan þeir tóku við því. „Við erum búin að vera í endalausri varnarstöðu að byrgja fyrir að fólk komist inn í húsið,“ segir hann. Frétt af mbl.is Aðalmálið að húsið „sé vel lokað“ Bruninn á mánudag var að minnsta kosti sá þriðji sem slökkviliðið hefur sinnt í Toppstöðinni. Að sögn slökkviliðsstjóra var hann jafnframt sá umfangsmesti. mbl.is/Eggert Jóhannesson Eignin hafi verið girt af og inngönguleiðum lokað en óviðkomandi hafi engu að síður komist inn og valdið skemmdum. Hilmar Ingimundarson, sem hefur unnið að verkefninu undanfarin átta ár, tekur í sama streng og segir brunann ekki breyta framtíðaráformunum. „Þetta á ekkert að breyta þeim plönum að neinu leyti,“ segir Hilmar. „Perla í Reykjavík“ „Draumurinn er að losna við asbestið og rífa niður það sem þarf að rífa niður til þess að geta byggt upp nýtt og betra húsnæði,“ segir hann. Áformað er að í Toppstöðinni verði meðal annars klifurhús ásamt annarri starfsemi tengdri útivist og jaðaríþróttum, verslun og veitingarekstri. „Þetta á eftir að verða perla í Reykjavík og frábært fyrir bæði íþróttir og útivist í dalnum,“ segir Hilmar. „Þetta á eftir að verða perla í Reykjavík og frábært fyrir bæði íþróttir og útivist í dalnum,“ segir Hilmar Ingimundarson, athafnamaður, um áformin fyrir Toppstöðina. Ljósmynd/Aðsend Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Frábær innkoma í Danmörku Fram – Breiðablik, staðan er 0:0 Jóhann: „Nýr kafli í íslenskri orkusögu“ 57 ára og sjaldan litið betur út Tók Íslendinginn sex mínútur að stimpla sig inn Umræðan Þegar vísitalan skilar sér í veskið Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stóraukin gjaldtaka í þjóðgörðum Leiguverð úr öllu samhengi við önnur lönd Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Biðja fólk að halda sig inni og loka gluggum Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hólmbert Friðjónsson Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Segja ákvörðunina „þungt högg“ Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Undirbúinn fyrir komu út í samfélagið Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Leggja til skerðingu húsnæðisbóta Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Leiguverð úr öllu samhengi við önnur lönd „Við erum illa stödd sem mannkyn“ Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hópslagsmál í bílakjallara Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Björgunarsveit komin upp við vegg Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Nýjast á mbl.is » Frábær innkoma í Danmörku Fram – Breiðablik, staðan er 0:0 Jóhann: „Nýr kafli í íslenskri orkusögu“ 57 ára og sjaldan litið betur út Tók Íslendinginn sex mínútur að stimpla sig inn Umræðan Þegar vísitalan skilar sér í veskið Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðalmálið að húsið „sé vel lokað“ Íslensk börn einu og hálfu ári eftir á Afstaða Samkeppniseftirlitsins kom á óvart „Hvað viljum við verja?“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hólmbert Friðjónsson Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Segja ákvörðunina „þungt högg“ Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Undirbúinn fyrir komu út í samfélagið Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Leggja til skerðingu húsnæðisbóta Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Leiguverð úr öllu samhengi við önnur lönd „Við erum illa stödd sem mannkyn“ Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hópslagsmál í bílakjallara Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Björgunarsveit komin upp við vegg Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn

Share this article