Kröftugur hagvöxtur og blómlegt atvinnulíf eru forsendur sjálfbærrar tekjuöflunar ríkissjóðs til lengri tíma og stöðugt og fyrirsjáanlegt skattaumhverfi skiptir þar lykilmáli. Þetta sagði dr. Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og stofnandi Intellecon, á fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu á mánudag þar sem fyrirhuguð hækkun bankaskattsins var til umræðu. Ríkisstjórnin hyggst hækka sérstakan skatt á skuldir fjármálafyrirtækja úr 0,145% í 0,254%, eða um 75%, frá næstu áramótum. Gert er ráð fyrir að breytingin skili ríkissjóði sex milljörðum króna í viðbótartekjur á næsta ári. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift