Í meira en ár hefur verið varað við því á þessum vettvangi að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur aldrei náð neinum tökum á stjórn ríkisfjármála þrátt fyrir digurbarkalegar yfirlýsingar um hið gagnstæða. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra minnir sífellt meira á Jón sterka í leikriti Matthíasar Jochumssonar um útilegumennina þar sem hann stærir sig á því að hafa skilað hallalausu fjárlagafrumvarpi sem á aldrei eftir að raungerast: Sáuð þið hvernig ég tók hann, piltar? Fleyg orð sem lýsir þeim sem gengur frá tapaðri viðureign eigi að síður sannfærður um eigin snilld. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift