Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Helgi til liðs við LOGOS endur­skoðun og ráðgjöf

Read Full Article →

Helgi Einar Karlsson hefur gengið til liðs við LOGOS endurskoðun og ráðgjöf ehf. og kemur inn í eigendahóp félagsins. Hann starfaði áður í 16 ár hjá Deloitte við endurskoðun og ráðgjöf, þar af sem yfirmaður reikningsskila frá árinu 2019. Helgi er löggiltur endurskoðandi og með meistaragráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands. Hann hefur um árabil verið meðal leiðandi sérfræðinga landsins á sviði reikningsskila og leiddi hjá Deloitte fjölbreytt verkefni tengd reikningsskilum, innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS), skattaráðgjöf, áreiðanleikakönnunum, kaupverðsútdeilingum og annarri sérhæfðri fjármálaráðgjöf. Á starfsferli sínum hefur Helgi veitt fjölmörgum fyrirtækjum ráðgjöf, einkum stærri félögum í íslensku atvinnulífi. Að því er segir í tilkynningu fellur sú reynsla vel að áherslu LOGOS endurskoðunar og ráðgjafar á að byggja upp þjónustu við stærri og skráð félög sem þurfa á sérhæfðri ráðgjöf að halda. Helgi hafi einnig lagt sitt af mörkum til þróunar fagsins með þátttöku í reikningsskilanefnd Félags löggiltra endurskoðenda og tekið þátt í prófhaldi og prófnefndarstörfum fyrir Endurskoðendaráð vegna löggildingarprófa í endurskoðun, ásamt kennslu á háskólastigi. Þorsteinn Pétur Guðjónsson, framkvæmdastjóri LOGOS endurskoðunar og ráðgjafar, segir þau ánægð með liðsaukann en Helgi búi yfir reynslu og sérþekkingu á reikningsskilum og fjármálatengdri ráðgjöf sem muni styrkja þjónustuframboðið enn frekar. „Sérfræðiþekking Helga og reynsla af ráðgjöf við stór og meðalstór fyrirtæki fellur afar vel að stefnu félagsins um að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og stuðning í sífellt flóknara rekstrarumhverfi. Við hlökkum til að njóta krafta hans við áframhaldandi uppbyggingu félagsins,“ segir Þorsteinn Pétur.

Share this article