Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Því þar eru peningarnir“

  • What: A report discusses potential tax increases on financial institutions.
  • Impact: Could affect bank lending and government revenue.
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 16.9.2026 | 7:45 „Því þar eru peningarnir“ Mótvindur mælist víðar en í veðrinu á Íslandi þessa dagana. mbl.is/Eyþór Matthías Johannessen [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Markmið ríkisstjórnarinnar muni ekki nást „Minnst slæmu“ skattarnir urðu fyrir valinu Stóraukin gjaldtaka í þjóðgörðum „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ Hann er eflaust betri söngvari » Fleiri tengdar fréttir Fyrirhuguð hækkun bankaskatts gæti dregið úr útlánagetu íslenskra banka um 50 milljarða króna, samkvæmt mati ráðgjafarfyrirtækisins Intellecon, sem dr. Gunnar Haraldsson hagfræðingur kynnti á ráðstefnu Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) í vikunni um boðaða skattahækkun á fjármálafyrirtæki. Hækkunin á að skila ríkissjóði sex milljörðum króna í auknar tekjur með 75% hækkun skatts á skuldir fjármálafyrirtækja í 0,254%. Gunnar sagði að hækkunin gæti haft neikvæð áhrif á hagvöxt og þá geti endanlegar tekjur ríkissjóðs orðið minni en áætlað er. Bæði vegna afleiddra áhrifa og þeirrar staðreyndar að ríkið er stærsti hluthafi viðskiptabankanna ásamt lífeyrissjóðum. „Líkt og fram kom í greiningu Intellecon er töluverð óvissa um hvað skattahækkunin skili ríkinu miklum tekjum í reynd,“ segir Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri SFF. Þá bendir Heiðrún á að sértækir skattar á banka á Íslandi séu fimmfaldir á við það sem þekkist í öðrum löndum Vestur-Evrópu líkt og fram kom í greiningu KPMG á fundinum. Ísland sé eitt ríkja Vestur-Evrópu sem skattleggi í senn skuldir, hagnað og laun fjármálafyrirtækja umfram aðrar atvinnugreinar. „Stjórnvöld ættu að huga vel að varnaðarorðum þeirra erlendu og innlendu sérfræðinga sem komu fram á fundinum. Aðgerð sem haft getur áhrif á efnahagslífið og víðtæk áhrif á þjóðfélagið í heild þarf að byggjast á fullnægjandi greiningu á áhrifum á bæði ríkið og hagkerfið í heild og það er von okkar að ráðist verði í slíka greiningu áður en lengra er haldið,“ segir Heiðrún. Reynsla Evrópuríkja Dr. Lev Ratnovski, hagfræðingur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS), fjallaði á fundinum um reynslu Evrópuríkja af bankasköttum. Ratnovski rakti dæmi þar sem AGS hefur í úttektum varað ríki við að leggja á sérstaka bankaskatta og hvatt til að þeir séu endurskoðaðir eða falli úr gildi. Í sumum tilvikum hefur verið bent á hættu á röskun á miðlun fjármagns og í öðrum hvatt til þess að tímabundnir skattar verði ekki framlengdir umfram upphaflegan gildistíma. Vísaði Ratnovski til rannsókna sem hafa tengt bankaskatta við hærri útlánsvexti og minna framboð lánsfjár, auk minni fjárfestingar hjá fyrirtækjum sem reiða sig á bankafjármögnun. Hann benti þó einnig á að rök geti verið fyrir sérstakri skattlagningu banka. Miklu skipti hvernig slíkir skattar væru útfærðir og að meta ætti þá með hliðsjón af öðrum leiðum ríkisins til tekjuöflunar. Bankaræninginn Ratnovski nefndi að ein af röksemdafærslunum fyrir bankasköttum væri jafnan eignuð bandaríska bankaræningjanum Willie Sutton. Sutton var spurður hvers vegna hann rændi banka og á að hafa svarað: „Því þar eru peningarnir.“ Þessu neitaði reyndar Sutton síðar og taldi blaðamann hafa skáldað setninguna. Hún lifir þó enn og er eignuð honum. Kallast það að nokkru á við ummæli Örnu Láru Jónsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar og formanns efnahags- og viðskiptanefndar, í pallborðsumræðum á fundinum sem Morgunblaðið fjallaði um í gær þar sem Arna Lára sagðist ekki þjást af neinni „skattahræðslu“ og það „væri nóg til hjá bönkunum“. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Markmið ríkisstjórnarinnar muni ekki nást „Minnst slæmu“ skattarnir urðu fyrir valinu Stóraukin gjaldtaka í þjóðgörðum „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ Hann er eflaust betri söngvari » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Því þar eru peningarnir“ Leita að tugum manna eftir að fjölbýlishús hrundi Fimm létust í drónaárás Rússa á rútu Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg Þrír létust þegar fréttaþyrla hrapaði Umræðan Æska mín í Sovétríkjunum Fjárhagsleg sjálfbærni velferðarkerfisins í hættu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Frægasti skafl landsins horfinn Markmið ríkisstjórnarinnar muni ekki nást Afstaða Samkeppniseftirlitsins kom á óvart Miðlunartillaga ekki tímabær Mest lesið Í gær Í vikunni Áhyggjur af eldri Úkraínumönnum í sveitarfélaginu Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Hótelstjórinn Atlas er týndur og sárt saknað Borgarstjórinn kynnti ný skilti til leiks Misbauð málflutningur andstæðinga Vopnað rán í Breiðholti Fénu fækkaði um fimmtung á sex árum Miðlunartillaga ekki tímabær Frægasti skafl landsins horfinn Varað við snörpum vindhviðum Andlát: Hólmbert Friðjónsson Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Segja ákvörðunina „þungt högg“ Vopnað rán í Breiðholti Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Frægasti skafl landsins horfinn Undirbúinn fyrir komu út í samfélagið Leggja til skerðingu húsnæðisbóta Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Þiggja fé án þess að vinna handtak Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Björgunarsveit komin upp við vegg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Nýjast á mbl.is » „Því þar eru peningarnir“ Leita að tugum manna eftir að fjölbýlishús hrundi Fimm létust í drónaárás Rússa á rútu Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg Þrír létust þegar fréttaþyrla hrapaði Umræðan Æska mín í Sovétríkjunum Fjárhagsleg sjálfbærni velferðarkerfisins í hættu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Misbauð málflutningur andstæðinga „Hvað viljum við verja?“ Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Afstaða Samkeppniseftirlitsins kom á óvart Mest lesið Í gær Í vikunni Áhyggjur af eldri Úkraínumönnum í sveitarfélaginu Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Hótelstjórinn Atlas er týndur og sárt saknað Borgarstjórinn kynnti ný skilti til leiks Misbauð málflutningur andstæðinga Vopnað rán í Breiðholti Fénu fækkaði um fimmtung á sex árum Miðlunartillaga ekki tímabær Frægasti skafl landsins horfinn Varað við snörpum vindhviðum Andlát: Hólmbert Friðjónsson Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Segja ákvörðunina „þungt högg“ Vopnað rán í Breiðholti Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Frægasti skafl landsins horfinn Undirbúinn fyrir komu út í samfélagið Leggja til skerðingu húsnæðisbóta Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Þiggja fé án þess að vinna handtak Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Björgunarsveit komin upp við vegg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Skattarnir meiri en fólk áttar sig á

Share this article