Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 21 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Dæmdur fyrir peningaþvætti vegna fíkniefnabrota Brynjólfur Þór Guðmundsson Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann í gær til 15 mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti. Hann var ákærður fyrir að taka ítrekað við og geyma peninga sem voru til komnir vegna sölu og dreifingar fíkniefna auk annarra brota. Hann ýmist tók við peningunum í reiðufé eða fékk þá millifærða inn á bankareikning sinn. Peningana afhenti hann svo öðru fólki. Maðurinn sætti gæsluvarðhaldi frá 4. febrúar og dregst það frá refsingu hans. Héraðsdómur Reykjaness. Ruv.is / Anton Brink Fyrir 19 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Saga 90 ár frá strandi Pourquoi Pas? 90 ár eru síðan franska rannsóknaskipið Pourquoi Pas? strandaði í Straumfirði með franska vísindamanninn Jean Baptiste Charcot innanborðs. Franska sendiráðið minntist slyssins á strandstað í dag. Fyrir 32 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar „Burðardýr“ sem hafi ekki þorað öðru en að klára verkefnið Skipverjarnir tveir, sem eru meðal ákærðu í Dettifossmálinu, gáfu skýrslu fyrir dómi í morgun. Þeir eru taldir hafa smyglað 14 lítrum af amfetamínbasa til landsins með Dettifossi, fragtskipi Eimskips. Tveir aðrir eru taldir hafa skipulagt smyglið. Fyrir 34 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Wolt sendlar lögðu niður störf – Segjast tapa á því að sendast með pantanir Um 60 sendlar sem starfa fyrir heimsendingarfyrirtækið Wolt hér á landi lögðu niður störf fyrr í dag. Þeir segja fyrirtækið hafa lækkað laun þeirra um 40 prósent á einu ári. Fyrir 55 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð EFTA-dómstóllinn tekur undir með MAST gegn Ísteka EFTA-dómstóllinn segir að blóðtaka Ísteka á fylfullum hryssum falli undir tilskipun Evrópusambandsins um dýr sem notuð eru í tilraunaskyni. Ísteka hefur hafnað þessari skilgreiningu Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Landsliðshópurinn: Rúnar Alex, Arnór og Andri snúa aftur Landsliðshópur karla í fótbolta fyrir Þjóðadeildina hefur verið tilkynntur. Rúnar Alex Rúnarsson og Arnór Sigurðsson snúa aftur í hópinn. Auk þess er Ísak Snær Þorvaldsson valinn. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjanesbær Bæjarstjóri um brottfararstöð: „Staðsetning og útfærsla skipta okkur miklu máli“ Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir ekkert fast í hendi með staðsetningu brottfararstöðvar í bænum. Dómsmálaráðuneytið hafi valið fýsilegasta kost. Margt þurfi að skýrast til þess að bæjarstjórn geti tekið afstöðu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur „Suður-Kórea er að fara að greiða fyrir rafvæðingu íslenskra strandveiðibáta“ Samstarfssamningur milli fyrirtækisins Grænafls á Siglufirði og suður-kóresks aðila um rafvæðingu íslenska strandveiðiflotans verður undirritaður í dag. Framkvæmdastjóri Grænafls segir verkefnið færast á framleiðslustig eftir langan undirbúning. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjanesbær Einstaklingar í brottvísunarstöð verða vistaðir á Ásbrú Búið er að finna fyrirhugaðri brottvísunarstöð fyrir einstaklinga húsnæði á Ásbrú. Náist samningar er stefnt á að stöðin taki til starfa 1. desember. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Ók of hratt miðað við aðstæður og missti stjórn á bíl í banaslysi Meginorsök banaslyss á Fjarðarheiði síðasta vetur er að bíll fór yfir á vitlausa akrein. Rannsóknarnefnd segir hann hafa keyrt of hratt miðað við aðstæður þó að hann hafi verið á hraða rétt undir ráðlögðum hámarkshraða. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Nýnemum í tölvunarfræði og tengdum greinum fækkaði um þriðjung milli ára Nemendum sem hófu nám í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði og tengdum greinum við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík fækkaði um þriðjung á milli 2025 og 2026. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Borgarbyggð Borgarbyggð vill ekki að Alviðra fari í nýtingarflokk Sveitarstjórn Borgarbyggðar efast um ágæti þess að byggja upp vindorkuver við Alviðru. Hún telur óvissu ríkja um raunverulegt framlag til orkuöryggis landsins og segir að áhrifin á landslag og ásýnd verði veruleg. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður Langur vegur lambanna í slátrun Lömb af Suður- og Austurlandi eru mörg flutt hundruð kílómetra til slátrunar þar sem ekkert stórt sláturhús er milli Selfoss og Húsavíkur eða Kópaskers. Kostnaður við flutningana nemur tugum milljóna á hverju ári. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Leggja til stórfjölgun jöfnunarsæta – Kraginn fengi 18 þingmenn Starfshópur sem dómsmálaráðherra skipaði vill stórfjölga jöfnunarsætum til að jafna vægi atkvæða, án þess þó að fjölga þingmönnum. Þá er lagt til að þingsæti verði færð af Norðurlandi á höfuðborgarsvæðið. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti „Jafn ömurlegt og þessi úrslitakeppni er“ Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram í Bestu deild karla í fótbolta, var ekki sáttur með spilamennsku sinni manna í 1-3 tapi fyrir Breiðabliki í gærkvöld. Hann er heldur ekki ánægður með fyrirkomulagið í Bestu deildinni. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Þrír létust þegar fréttaþyrla hrapaði í Los Angeles Þrír létust, tveir úr fréttateymi um borð í þyrlu, og einn vegfarandi á jörðu niðri, þegar þyrla hrapaði til jarðar í Los Angeles í gær. Fréttateymið var að flytja fregnir í beinni af banaslysi á jörðu niðri þegar þyrlan hrapaði. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Ekki verið boðað til fundar – verkfall hefst að óbreyttu eftir viku Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair. Að öllu óbreyttu fara flugvirkjar Icelandair í ótímabundið verkfall eftir slétta viku. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Súdan 60 námuverkamenn látnir í Súdan Oddur Þórðarson Minnst 60 námuverkamenn létust í Súdan þegar hrun varð í gullnámu í gær. Óttast er um afdrif fjölda annarra og gert ráð fyrir að fleiri finnist látnir í rústunum. Hrunið varð í Al-Zaraa-námunni nærri bænum El-Nahud í Vestur-Kordófan-héraði í gær og í morgun höfðu 60 lík verið grafin upp úr rústum hennar. „Við vitum ekki hversu margir til viðbótar eru enn þarna undir,“ segir einn eftirlifenda við AFP. Námuverkamenn sinntu björgunarstarfi í alla nótt og gera enn. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Þeir sem skipulögðu glæpi gegn mannúð verða að svara til saka Æðstu stjórnendum Írans og embættismönnum sem frömdu glæpi gegn mannúð með mikilli harðneskju ber að svara til saka fyrir alþjóðlegum dómstólum. Mannréttindasamtök segja skipulegt refsileysi gera almenning berskjaldaðan fyrir brotum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Viðrar hugmynd um aukaaðild Kanada að ESB Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins opnaði í dag á þann möguleika að Kanada yrði fyrsta ríkið til að fá aukaaðild að Evrópusambandinu. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Palestína Tólf fórust og hundrað er saknað eftir að hús hrundi Í það minnsta tólf fórust þegar sex hæða fjölbýlishús hrundi í Gazaborg í nótt. Húsið skemmdist mikið í árásum Ísraela fyrir vopnahlé á Gaza. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Suður-Afríka „Sýndi hvað bjó í Suður-Afríku“ Rúmir fjórir áratugir eru síðan Graceland kom út. Tveir Suður-Afríkumenn, einn sem lifði apartheid-tímann og önnur sem fæddist eftir að honum lauk, segja að platan eigi sér enn sérstakan stað í hjörtum íbúa því hún sýndi hvað Suður-Afríka er fær um. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Er sími næsta manns að taka þig upp? Forstjóri Persónuverndar telur að ný tegund upptökutækja sem njóta aðstoðar gervigreindar veki upp spurningar um friðhelgi einkalífsins. Staldra verði við og athuga afleiðingar þegar ný tækni er tekin í notkun. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Ég þurfti að labba í burtu og allir horfðu á eftir mér“ Snjólaug Lúðvíksdóttir sigraði í fyrstu uppistandskeppninni sem hún tók þátt í. Í annað sinn sem hún kom fram með grín var í matsal í framhaldsskóla þar sem hún segir unglinga hafa horft á sig með vorkunnaraugum og ekki stokkið bros á vör. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tvö ákærð vegna stórfellds smygls í Norrænu Belgískur karl og kona hafa verið ákærð fyrir smygl á tæplega 70 kílóum af fíkniefnum. Efnin voru falin á þremur stöðum í húsbíl sem fólkið var á við komuna til Íslands með Norrænu. Konan fór úr landi sama dag og hún kom hingað. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Talsverð rigning í dag Það blæs hressilega í dag og rignir mikið um tíma. Íbúar á suðvestanverðu landinu fá drýgstu skammtana af hvoru tveggja. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúruvá 50 skjálftar í hrinu á Reykjaneshrygg Brynjólfur Þór Guðmundsson Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg þegar klukkuna vantaði fimm mínútur í tíu í gærkvöld. Hún er um 50 kílómetra suðvestur af Edley. Stærstu skjálftar hrinunnar voru 3,2 og 3,1 að stærð. Alls hafa tæplega 50 skjálftar mælst frá því hrinan hófst. Hlé hafa orðið inn á milli í hrinunni. Síðasta hrina á þessum slóðum varð 25. júlí. Jarðskjálftahrinur eru algengar á flekaskilum sem hryggurinn liggur á. Upptök stærsta jarðskjálftans. RÚV Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Hútar segjast hafa grandað sádiarabískri herþotu Markús Þ. Þórhallsson Uppreisnarsveitir Húta í Jemen segjast hafa skotið niður F15 orrustuþotu sádiarabíska flughersins í morgun með heimagerðri eldflaug. F-15 orrustuþota sömu gerðar og Hútar segjast hafa grandað. EPA / ABIR SULTAN Í yfirlýsingu talsmanns Húta á samfélagsmiðlum var þotunni grandað yfir Marib-héraði þar sem hún var við hernaðaraðgerðir. Hútar saka Sáda um að hafa gert hundruð árása á Jemen í nótt eftir að fjölþjóðaherinn undir þeirra stjórn skaut niður dróna sem sagður var á leið til Mekka, helgustu borgar múslíma, í nótt. Hútar sögðust ekki bera ábyrgð á för drónans. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Maður handtekinn fyrir að beita slökkvitæki sem vopni Markús Þ. Þórhallsson Maður var handtekinn í austurhluta höfuðborgarsvæðisins eftir að hann réðst með slökkvitæki að vopni á mann sem sat í bíl sínum. Lögreglumenn að störfum í miðbor