Innlent | mbl | 16.9.2026 | 15:33 Brjóta land undir Keflavíkurborgir Vilhjámur Árnason bæjarstjóri Reyjanesbæjar hélt tölu á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Samett mynd/mbl.is/Árni Sæberg/Aðsend Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki × Hlustun á fréttir er aðeins í boði fyrir áskrifendur. Skoða áskriftarleiðir Nýtt hverfi, Keflavíkurborgir, var meðal þess sem kynnt var á atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar í dag. Þar gætu hátt í 300 lóðir rúmast þegar hverfið er fullbyggt. Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segist í samtali við mbl.is vonast til að framkvæmdir hefjist á næsta ári. Hann játar aðspurður því að mikil þörf sé á fleiri íbúðum í Reykjanesbæ. „Við finnum að ungt fólk og lítil og meðalstór fyrirtæki vilja fara í framkvæmdir á sérbýlislóðum,“ segir hann og bætir við: „Við erum bara að undirbúa okkur að vera tilbúin fyrir þessa miklu uppbyggingu sem er hér og hafa íbúðir sem að fjölskyldufólk er að kalla eftir.“ Frétt af mbl.is Beint streymi: Nýtt hverfi kynnt í Reykjanesbæ Græna svæðið er það sem verður úthlutað á næsta ári af Keflavíkurborgum. Keflavíkurborgir í heild sinni eru innan rauða hringsins. Ljósmynd/Aðsend Hátt í 300 íbúðir Fyrsti áfangi Keflavíkurborga telur 4 til 5 götur eða 40 til 60 sérbýlishúsalóðir á 20 hektara svæði nyrst í sveitarfélaginu. Þar gætu um 300 íbúðir rúmast samkvæmt Vilhjálmi. Hluti fyrsta áfangans er þegar kominn í aðalskipulag og áframhaldið í undirbúningi. Stærra svæði er þó áætlað að verði brotið undir Keflavíkurborgir í framtíðinni. Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs Reykjanesbæjar, kynnti áformin í Reykjanesbæ í dag. Hann sagði 14 sérbýlislóðir einnig vera klárar til úthlutunar á næsta ári í Trölladal og Asparlundi. Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs Reykjanesbæjar, kynnir nýja hverfið. mbl.is/Árni Sæberg Milljarðaframkvæmdir Stór framkvæmdaþörf sveitarfélagsins var rædd sem og fjárfestingaráform atvinnulífsins. Ýmis áform voru reifuð eins og bygging Myllubakkaskóla, stækkun fimleikahússins í bænum og lóðir fyrir atvinnuhúsnæði. Áætlaðar fjárfestingar næstu árin eru tveir grunnskólar, tveir til þrír leikskólar, framkvæmdir við íþróttamannvirki, stækkun Fjölbrautaskóla Suðurnesja auk mikilla framkvæmda í fráveitumálum, meðal annars ný hreinsistöð í Helguvík sem á að bera heitið Helga. „Þetta eru milljarða framkvæmdir,“ sagði Guðlaugur. Viljayfirlýsing um að flýta byggingu nýs sérbýlishúsnæðishverfis á Ásbrú verður jafnframt undirrituð af Daða Má Kristóferssyni fjármála- og efnahagsráðherra, Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar og Pálma Frey Randverssyni, framkvæmdastjóra Kadeco. Þar eru 37 sérbýlislóðir tilbúnar til úthlutunar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Dræm miðasala á landsleikina Undirbúa mögulegan fiskidauða í eldi Brjóta land undir Keflavíkurborgir Karl Gauti vill svör um heimför Sýrlendinga Ófært frá Vestmannaeyjum og leik frestað Umræðan Æska mín í Sovétríkjunum Fjárhagsleg sjálfbærni velferðarkerfisins í hættu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jóhann: „Nýr kafli í íslenskri orkusögu“ Markmið ríkisstjórnarinnar muni ekki nást „Ég er bifvélavirki sem byrjaði með báðar hendur tómar“ Brjóta land undir Keflavíkurborgir Mest lesið Í gær Í vikunni Áhyggjur af eldri Úkraínumönnum í sveitarfélaginu Misbauð málflutningur andstæðinga Blikur á lofti í rekstri Sorpu Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Apple TV loksins komið til Íslands Hótelstjórinn Atlas er týndur og sárt saknað Vopnað rán í Breiðholti Ók of hratt þegar banaslys varð Borgarstjórinn kynnti ný skilti til leiks „Því þar eru peningarnir“ Andlát: Hólmbert Friðjónsson Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Segja ákvörðunina „þungt högg“ Vopnað rán í Breiðholti Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Frægasti skafl landsins horfinn Undirbúinn fyrir komu út í samfélagið Leggja til skerðingu húsnæðisbóta Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Þiggja fé án þess að vinna handtak Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Björgunarsveit komin upp við vegg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Vopnað rán í Breiðholti Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Nýjast á mbl.is » Dræm miðasala á landsleikina Undirbúa mögulegan fiskidauða í eldi Brjóta land undir Keflavíkurborgir Karl Gauti vill svör um heimför Sýrlendinga Ófært frá Vestmannaeyjum og leik frestað Umræðan Æska mín í Sovétríkjunum Fjárhagsleg sjálfbærni velferðarkerfisins í hættu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sævar: „Ég árétta sakleysi mitt“ Hótelstjórinn Atlas er týndur og sárt saknað Brjóta land undir Keflavíkurborgir Hvorki bruni né asbest breyti áformunum Mest lesið Í gær Í vikunni Áhyggjur af eldri Úkraínumönnum í sveitarfélaginu Misbauð málflutningur andstæðinga Blikur á lofti í rekstri Sorpu Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Apple TV loksins komið til Íslands Hótelstjórinn Atlas er týndur og sárt saknað Vopnað rán í Breiðholti Ók of hratt þegar banaslys varð Borgarstjórinn kynnti ný skilti til leiks „Því þar eru peningarnir“ Andlát: Hólmbert Friðjónsson Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Segja ákvörðunina „þungt högg“ Vopnað rán í Breiðholti Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Frægasti skafl landsins horfinn Undirbúinn fyrir komu út í samfélagið Leggja til skerðingu húsnæðisbóta Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Þiggja fé án þess að vinna handtak Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Björgunarsveit komin upp við vegg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Vopnað rán í Breiðholti Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn