Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bíll alelda í Kópavogi

Read Full Article →

Bíll varð alelda við Fífuhvammsveg í Kópavogi í kvöld. Vísir greinir frá. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um eldinn skömmu fyrir klukkan hálf ellefu og var komið á vettvang um hálf ellefu. Einn dælubíll var sendur á vettvang. „Við fáum tilkynningu um bíl og hann er alelda,“ segir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í samtali við fréttastofu. Samkvæmt Lárusi barst eldurinn í annan bíl sem var lagt við hliðina á bílnum sem varð alelda. Búið er að ná tökum á eldinum en ekki liggur fyrir hvað olli honum. Lárus segir að um lítið atvik sé að ræða og að íbúar þurfi ekki að hafa áhyggjur af reyk. Myndin er úr safni.RÚV / Ragnar Visage

Share this article