- What: Article on nutritional benefits of sardines
- Impact: General health information for readers
Sardínur eru ekki endilega efstar á innkaupalistanum hjá flestum en þær leyna töluvert á sér þegar kemur að næringargildi. Fiskurinn er meðal annars góð uppspretta prótíns, omega--3-fitusýra, kalks, D-vítamíns, járns og B12-vítamíns. Ein dós gefur um 20 grömm af prótíni og um 350 milligrömm af kalki. Kalkið fæst að hluta úr beinunum, sem mýkjast við niðursuðu og eru borðuð með fiskinum. D-vítamínið, sem er einnig að finna í sardínum, hjálpar líkamanum að nýta kalkið. Til samanburðar er túnfiskur einnig góður prótíngjafi en þar vantar kalkið sem fylgir beinunum í sardínunum. Þar sem sardínur eru smáfiskar safna þær ekki upp jafn miklu kvikasilfri og stærri fiskar. Omega-3 fitusýrurnar eru annar stór kostur. Sardínur innihalda meira af þessum fitusýrum en margar aðrar fisktegundir og þær hafa meðal annars verið tengdar við lægri blóðþrýsting, betra kólesteról og minni hættu á hjartasjúkdómum. Í einni dós eru tæplega þrjú milligrömm af járni og um átta míkrógrömm af B12-vítamíni. Járn gegnir meðal annars mikilvægu hlutverki við flutning súrefnis um líkamann en B12-vítamín er mikilvægt fyrir myndun rauðra blóðkorna og starfsemi tauga og vöðva. Sardínur þurfa svo ekki mikla fyrirhöfn í eldhúsinu. Það má borða fiskinn beint úr dósinni eða nota í salat, á ristað brauð og í aðra einfalda rétti.