„Hann er sár út í þetta allt saman. Ég skil það að mörgu leyti. Ég er líka sár og reið yfir að það sé verið að brigsla manni um ýmislegt sem á ekki við rök að styðjast.“ Þetta segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, um ummæli Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi ráðherra, um að hún hefði krafist afsagnar hans meðan hann lá á sjúkrahúsi í desember. Sagði sig úr flokknum í vor Guðmundur Ingi, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra og fyrrverandi varaformaður Flokks fólksins, greindi frá því í dag að hann hefði hætt í flokknum eftir að Inga krafðist afsagnar hans úr ráðherrastól. Þetta segir hann að Inga hafi gert á milli jóla og nýárs í fyrra, níu dögum eftir að hann gekkst undir hjartaaðgerð. Guðmundur Ingi fór í tímabundið veikindaleyfi vegna aðgerðarinnar 9. desember. Inga sagði við fjölmiðla 15. desember að óvíst væri hvort Guðmundur Ingi sneri aftur í ráðuneytið að leyfinu loknu. Hann sneri aftur á þing í mars en tilkynnti afsögn sína úr Flokki fólksins 13. apríl á þessu ári. Hann situr nú á þingi utan flokka. Ólíkar upplifanir Inga segir hann hafa stigið fram í dag og lýst sinni upplifun en hennar sé allt önnur. „Það er ekkert um sannleika að ræða, það er bara upplifun. Ég er ekki að upplifa þessa hluti eins og Guðmundur Ingi Kristinsson gerir.“ Hún segist ekki hafa sagt honum að segja af sér ráðherraembætti. Það hafi komið henni í opna skjöldu þegar hann sagði sig úr Flokki fólksins. Fréttin verður uppfærð.