Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

ESB aðild hefði „veruleg neikvæð áhrif á hagsmuni íslenskra bænda“

Read Full Article →

Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtakanna segir samtökin ekki setja sig upp á móti því að þjóðin fái að taka ákvörðun um hvort halda eigi áfram viðræðum um inngöngu í Evrópusambandið. Hins vegar velti hann fyrir sér hvort þetta sé rétti tíminn, þegar óvissa og ólga er í alþjóðamálum. Samtöl við bændur og samtök þeirra í löndum innan ESB sýni óánægju með málefni landbúnaðarins innan sambandsins. Ekki að sjá tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB „Við höfum ekki komið auga á nein sérstök tækifæri fyrir heildarhagsmuni íslensks landbúnaðar með aðild að ESB,“ segir Trausti. „Það er hins vegar þannig að ef það verður farið í þessa vinnu þá munu Bændasamtökin að sjálfsögðu ekki skorast undan því að taka virkan þátt í því samtali, hvort sem er við stjórnvöld eða almenning í landinu, og upplýsa þá eftir bestu getu um afleiðingar af inngöngu fyrir íslenskan landbúnað,“ segir Trausti. Skökk samkeppnisskaða gagnvart stóru matvælaframleiðslulöndunum Bændasamtökin hafi fyrst og fremst verið að horfa til skakkrar samkeppnisstöðu íslenskra bænda gagnvart stóru matvælaframleiðslulöndunum innan ESB. „Galopnun landamæranna hér á innflutningi á matvöru eða landbúnarafurðum mun að öllum líkindum hafa veruleg neikvæð áhrif á hagsmuni íslenskra bænda og það er það sem blasir við okkur eins og staðan er núna,“ segir Trausti.

Share this article