Innlent | mbl | 9.3.2026 | 14:53 Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Samantekt 07:09 Frétt: Ríkisstjórnin horfir inn á við en ekki til Evrópu 13:23 Frétt: ESB frestar tollum á járnblendi 22:45 Frétt: „Birtingarmynd efnahagslegrar stöðnunar“ 10:04 Frétt: Kristrún segir ákvörðun ESB ekki vera léttvæga Þingfundur fer senn að hefjast og þar á dagskrá er þingsályktunartillaga utanríkisráðherra sem snýr að þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. Ríkisstjórnin samþykkti tillöguna á fundi sínum síðasta föstudag og hefur verið boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Ef marka má viðbrögð formanna stjórnarandstöðuflokkanna þriggja á föstudaginn við tillögunni munu mætast stálin stinn í umræðu þingsins í dag og ekki er ólíklegt að vikið verði að Evrópuvegferðinni í óundirbúnum fyrirspurnum einnig en þær hefjast klukkan 15. Hér fyrir neðan má fylgjast með tengdum fréttum og viðbrögðum í dag: 14:53 Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu Þingfundur fer senn að hefjast og þar á dagskrá er þingsályktunartillaga utanríkisráðherra sem snýr að þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. Meira 11:15 Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Að 173 dögum liðnum liggur fyrir hvort Ísland hefji aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið? Hvaða sjónarmið munu liggja til grundvallar þegar þjóðin ákveður hvort leggja skuli út í þá vegferð? Meira 10:20 Segja „samningaviðræður“ vera villandi hugtak Í upplýsingabæklingi sem Evrópusambandið hefur gefið út til upplýsingar um stækkun sambandsins (e. Understanding Enlargement) kemur fram að ekki sé í boði að semja um reglur ESB og í því tilliti geti hugtakið samningaviðræður verið villandi. Meira 06:40 Hitafundur í þinginu í dag Óhætt er að búast við miklum hitafundi á Alþingi í dag, en á dagskrá þingfundar er, að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma, þingsályktunartillaga Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um „framhald viðræðna“ um aðild að Evrópusambandinu. Meira í fyrradag Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Utanríkisráðuneytið er fallið á fyrsta prófinu. Þetta skrifar Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra á heimasíðu sína og beinir spjótum sínum að upplýsingasíðu ráðuneytisins um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB. Meira 7.3. Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Hjörtur J. Guðmundsson Evrópufræðingur gerir athugasemd við þýðingu sem birtist í fréttum í Ríkisútvarpinu þar sem hann telur að hugtakaskilningur hafi misfarist. Meira 6.3. Telur áhrif Viðreisnar algjör: „Viðreisn ræður för“ Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, telur forgangsröðun ríkisstjórnarinnar vera ranga fyrir íslenska þjóð. Meira 6.3. Sigmundur: „Uppgjöf af hálfu ríkisstjórnarinnar“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir ríkisstjórnina vera að setja af stað plan, sem hann segir greinilegt að hún hafi unnið með einhverjum í Brussel. Meira 6.3. Segir tímasetninguna vonda Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ákvörðun ríkisstjórnarinnar, um að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna að ESB fyrr en búist var við, hafi komið sér á óvart. Meira 6.3. Í „anddyri evrunnar“ eins og Danir Ef íslenska þjóðin samþykkir í þjóðaratkvæðagreiðslu að halda viðræðum áfram um inngöngu í Evrópusambandið og segir í framhaldinu já við aðildarsamningi er ekki ólíklegt að við gætum farið svipaða leið og Danir og verið í „anddyri evrunnar“. Meira 6.3. Erlend íhlutun verður ekki liðin Þorgerður Katrín Gunnardóttir utanríkisráðherra segir verulegar áhyggjur uppi um að erlendir aðilar muni reyna að hafa áhrif á niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið. Meira 6.3. Viðræður gætu hafist í kringum áramótin Ef þjóðin samþykkir í þjóðaratkvæðagreiðslu að halda viðræðum áfram um inngöngu í Evrópusambandið sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra á blaðamannafundi ekki ólíklegt að viðræðurnar gætu hafist í kringum næstu áramót. Meira 6.3. ESB: Mikilvæg ákvörðun fram undan fyrir Ísland Talsmenn Evrópusambandsins sögðu í dag að „mikilvæg ákvörðun væri fram undan“ fyrir Ísland eftir að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra lagði í dag til þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst um það hvort það ætti að hefja aðildarviðræður við sambandið að nýju. Meira 6.3. „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Mjög eðlilega spyr fólk hvað hefur breyst, kannski vill fólk setja þetta saman við það ferli sem síðast átti sér stað en ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir [fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar] og þetta er ekki ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna eftir fjármálahrunið. Það er önnur staða,” sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á blaðamannafundi. Meira 6.3. Boða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald á aðildarviðræðum Íslands að Evrópusambandinu verður haldin 29. ágúst næstkomandi. Meira Sýna meira Nýjast á mbl.is » Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu Mikið áfall fyrir Liverpool Stöðugleikareglan ekki hert á þessu ári „Ég ólst upp við að steikja hamborgara í fjölskyldufyrirtækinu“ „Ég mun deyja, þannig er það“ Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Feimni við að leggja fyrir heimanám Hver er Mojtaba Khamenei? Sá handtekni starfsmaður verktaka Heitir nýjum leiðtoga „óhagganlegum stuðningi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Farþegamiðstöðin komin með nafn Kröfur til nemenda á undanhaldi Feimni við að leggja fyrir heimanám Missti stjórn á bílnum vegna hálku Færð getur spillst hratt Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu Mikið áfall fyrir Liverpool Stöðugleikareglan ekki hert á þessu ári „Ég ólst upp við að steikja hamborgara í fjölskyldufyrirtækinu“ „Ég mun deyja, þannig er það“ Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Færð getur spillst hratt Alltof margir fengið rangar rukkanir Minni væntingar, minni árangur Feimni við að leggja fyrir heimanám Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Farþegamiðstöðin komin með nafn Kröfur til nemenda á undanhaldi Feimni við að leggja fyrir heimanám Missti stjórn á bílnum vegna hálku Færð getur spillst hratt Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason