Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Við sögðum nei við ESB – næst þarf þjóðarsátt

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 14.9.2026 | 9:00 Við sögðum nei við ESB – næst þarf þjóðarsátt Elías Elíasson. Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Að loknum nýliðnum kosningum leikur enginn vafi á því að þjóðin vill og telur sig í menningarlegu tilliti standa við hlið þjóða Evrópu, sem er út af fyrir sig rík ástæða til að ganga inn í Evrópusambandið. Varla leikur vafi á að flestir þeir sem sögðu nei 29. ágúst sl. vilja ekki ganga inn í ESB. Þar skipti örugglega máli samningsformið sem ESB hefur sett upp en samkvæmt því er innganga í bandalagið í raun ákveðin fyrst og síðan samið um aðlögunarferli sem jafnframt fer fram undir eftirliti ESB. Þetta er óaðgengilegt form fyrir Ísland. Því er rétt að draga núverandi aðildarumsókn til baka en sækja má um að nýju ef ESB fellst á að ljúka samningum fyrst og hafa aðlögun og inngöngu á eftir. Ísland getur ekki gengið inn í bandalagið fyrr en ljóst er hvernig milda má áhrif af sérstöðu landsins: fáar auðlindir, sem Evrópa þarf þó á að halda, fátt fólk, færra en svo að muni um á innri markaði Evrópu, og fjarlægð frá hinum miklu samgönguásum Evrópu sem draga til sín iðnað, verslun, fólk og fjármagn frá jaðarsvæðum. Samgöngur skópu innri markað Evrópu Öldum saman efldust listir, menning og iðnaður á verslunarsvæðum í dölum helstu samgönguása Evrópu, stóránna, hvar af Rín, Dóná og Pó eru oftast nefndar. Iðnaðurinn byggðist á auðlindum svæðanna, landbúnaði, kolum, viði og stáli. Samgönguásarnir drógu að sér fólk og fjármagn frá jaðarsvæðum og upp risu stórveldi studd af siglingum frá hafnarborgum í ósum fljótanna. Eftir litlu ísöld tengdust þessi svæði, fyrst með járnbrautum og síðan bílvegum. Markaðssvæðin og iðnaðarsvæðin stækkuðu og drógu til sín enn meira fólk og fjármagn svo framleiðslueiningar gátu stækkað. Auðveldara varð að fá sérhæft vinnuafl til tímabundinna verka en um leið þurfti að samræma aðbúnað og réttindi. Samningarnir um innri markað Evrópu voru í raun rökrétt afleiðing þessarar þróunar sem fékk afl frá og stýrðist af samgöngum og tækniframförum á því sviði. Sérstaða Íslands Samgöngur eiga sinn þátt í bættum lífskjörum á Íslandi á sama hátt og í Evrópu. Auðlindir Íslands eru hins vegar aðrar og þjóðin lítil. Ef ekkert er að gert verður Ísland við inngöngu að jaðarsvæði innan ESB sem leggur til fólk, fjármagn og hráefni til iðnaðar nær samgönguásum Evrópu. Iðnaður okkar byggist á orku, sjávarafurðum og afurðum landbúnaðar á landi sem gefur minna af sér en land á suðlægari slóðum. Landbúnaðinn þarf því að vernda vegna fæðuöryggis. Annað það sem hér þarf að gera er að halda samgöngum það góðum að sá iðnaður sem hér er geti sérhæft sig og stækkað framleiðslueiningar ásamt því að ráða bót á þeim efnahagslega óstöðugleika sem fælir hann frá landinu til stöðugra umhverfis nærri samgönguásum Evrópu og mörkuðum sem þar eru. Bættar samgöngur og aukinn stöðugleiki eru samofin verkefni hér á landi. Vaxtarbroddar Sem dæmi um vaxtarbrodda tengda sjávarauðlindinni má nefna Marel með tækni til að auka framleiðni og Kerecis með nýsköpun í nýtingu afurða. Bæði fyrirtækin byggðu í upphafi á nánd við fiskvinnslu en með vexti þeirra urðu góð samgöngutengsl við stærri markað og stöðugt fjármálaumhverfi mikilvægari. Bæði geta þessi atriði orðið afgerandi í þeirri merkingu að hvort um sig getur velt öllum áætlunum um framhald þróunar og vaxtar hvernig sem hinu er varið. Bæði fyrirtækin hafa nú höfuðstöðvar erlendis. Í hugverkaiðnaði eru fleiri sprotafyrirtæki sem þurfa stöðugt fjármálaumhverfi en byggjast á sérhæfðum mannauði og þá er nánd við sterka samgönguása á köflum mikilvæg. Flugsamgöngur bæta þar aðeins að nokkru úr. Staðan nú Hagkerfi Íslands þarf að gera stöðugra með þjóðarsátt, um það eru allir sammála. Varðandi samgöngur á landi eru smávægilegar tafir á umferð oft taldar merki góðs hagvaxtar en fari þær yfir mörk hamla þær hagvexti. Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu einu eru að ná þeim mörkum. Við bætist kostnaður vegna tafa á umferð um vegi utan þéttbýlis þar sem viðhald skortir. Flutningar um þá vegi eru forsenda fiskmarkaða á landinu sem eru undirstaða hagræðingar í fiskiðnaði. Samgönguásar Íslands eru hálfstíflaðir vegna vanrækslu og skila ekki sínu inn í hagkerfið. Framtíðin Bæði þessi atriði, stöðugleika og samgöngur, þarf að bæta svo haldið verði uppi þeim hagvexti sem stendur undir fjölgun fólks og batnandi lífskjörum næstu áratugi og bæði atriðin er auðveldara að laga meðan þjóðarbúið stendur sæmilega vel, sem það gerir núna þrátt fyrir allan barlóm. Enginn veit nú hvernig heimurinn verður eftir örfá ár, hvað þá eftir að fólki fer að fækka á jörðinni, væntanlega innan tíu ára. Við getum þurft áratugi til að laga samgöngukerfið og vitum í raun ekki hve langan tíma við höfum þar til við þurfum að takast á við ný krefjandi vandamál. Óstöðugleiki efnahags og vanræktar samgöngur eru mál sem brýnt er að leysa, ESB má bíða. Þjóðarsáttin þarf því að ná yfir bæði stöðugleika og samgöngur. Elías Elíasson er verkfræðingur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kristinn Levý nýr fjármálastjóri Enginn handtekinn í kjölfar hópslagsmálanna Viðurkenna mistök á Old Trafford Fyrsta haustbrælan stóð stutt yfir Aðsend grein: Við sögðum nei við ESB – næst þarf þjóðarsátt Umræðan Kosningapólitík Við sögðum nei við ESB – næst þarf þjóðarsátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump biður Selenskí að hætta árásum Munar aðeins einum þingmanni Trump sussar á gervigreindargagnrýnendur Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Mest lesið Í gær Í vikunni Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Hópslagsmál í bílakjallara „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ Björgunarsveit komin upp við vegg Of tímafrekt að nota alvöru kú Hitinn gæti náð 15 stigum „Fyrsta ferðin í svona glæsikerru“ Fagna endurskoðun vaxtarmarka Aflmikill Otter skilar sínu Björgunarsveit komin upp við vegg Þriðjudagarnir urðu heilagir Fjórir slökkviliðsbílar sendir í Hafnarfjörð Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf Taka höndum saman: 1.800 fermetra stækkun Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Átti von á góðri þátttöku flugvirkja Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Rannsakað sem alvarlegt atvik Nýjast á mbl.is » Kristinn Levý nýr fjármálastjóri Enginn handtekinn í kjölfar hópslagsmálanna Viðurkenna mistök á Old Trafford Fyrsta haustbrælan stóð stutt yfir Aðsend grein: Við sögðum nei við ESB – næst þarf þjóðarsátt Umræðan Kosningapólitík Við sögðum nei við ESB – næst þarf þjóðarsátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikilvæg viðskiptatengsl þjóðanna í sjónmáli Of tímafrekt að nota alvöru kú Átti von á góðri þátttöku flugvirkja Munar aðeins einum þingmanni Mest lesið Í gær Í vikunni Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Hópslagsmál í bílakjallara „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ Björgunarsveit komin upp við vegg Of tímafrekt að nota alvöru kú Hitinn gæti náð 15 stigum „Fyrsta ferðin í svona glæsikerru“ Fagna endurskoðun vaxtarmarka Aflmikill Otter skilar sínu Björgunarsveit komin upp við vegg Þriðjudagarnir urðu heilagir Fjórir slökkviliðsbílar sendir í Hafnarfjörð Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf Taka höndum saman: 1.800 fermetra stækkun Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Átti von á góðri þátttöku flugvirkja Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Rannsakað sem alvarlegt atvik

Share this article