Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Innra með mér var önnur manneskja sem vildi alltaf gera uppreisn“

  • What: Art exhibition about life under Iranian regime
  • Impact: Cultural and political discussion, not security-related
Read Full Article →

„Ég vil vera rödd kvenna í landinu mínu,“ segir íranska listakonan Marzieh Amiri sem opnaði í síðustu viku málverkasýningu um upplifun hennar af kúgun í íslömsku samfélagi, valdbeitingu og ofbeldi. Sýning hennar er í SIND gallery og heitir Líf í óhlýðni. Marzieh flutti hingað til lands fyrir þremur árum til að læra myndlist við Listaháskóla Íslands. Guðrún Sóley Gestsdóttir kynnti sér verkin og ræddi við listakonuna í Kastljósinu á RÚV rétt áður en Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran. „Mér finnst ég njóta frelsis hérna til að tala um ástandið. Fallega landið mitt, Íran, var hernumið af íslamskri öfgastjórn. Ég varð að vera eins og hinar, ganga stundum með hijab, en innra með mér var önnur manneskja sem vildi alltaf gera uppreisn.“ Mátt ekki tala um ástandið List Marzieh fjallar um líf kvenna undir íslömskum lögum og þann þrýsting sem þær reglur skapa. „Með málverkum mínum og myndskreytingum reyni ég alltaf að henda gaman að þessum grimmilegu reglum, íslömsku reglunum.“ „Þegar þú elst upp í íslömsku ríki, í íslömsku menntakerfi, er þér sífellt sagt að það megi ekki tala um ástandið,“ lýsir hún. Það séu sífelld boð og bönn en hún vilji vera rödd kvenna heimalands síns. Í verkunum má sjá þekktar táknmyndir fyrir íslam á borð við búrkur, hijab og moskvus, sem Marzieh setur í samhengi við kúgun kvenna, ritskoðun og þöggun. „Að hylja höfuðið er eins og að breiða yfir hugann.“ „Þeir reyna að forða því að við sjáum sannleikann. Þeir leggja fyrir okkur sitt sérstæða sjónarhorn til lífsins og við verðum að samþykkja það. Þetta er eins og búr. Þú verður að hlýða, annað er ekki í boði.“ „Þetta var eins og fangelsi fyrir mig,“ segir Marzieh. Hefur áhyggjur af fjölskyldunni heima í kjölfar árása Á Íslandi segist Marzieh hafa vettvang til að tjá skoðanir sínar, fólk sé farið að hlusta meira á raddir eins og hennar. „Sérstaklega vegna yfirstandandi atburða í Íran.“ Rætt var við Marzieh í fréttum RÚV skömmu eftir innrás Bandaríkjanna og Ísraels í Íran. Þar sagðist hún hafa miklar áhyggjur af fjölskyldu sinni sem býr í Íran og er því í hættu. „Bæði vegna þessa stríðs og ríkisstjórnarinnar.“ „Það eru of margar tilfinningar, of blendnar tilfinningar fyrir mig.“ Íslamstrú eins og hnífsblað sem getur skorið þig og drepið Í verkunum er valdbeiting gegn konum í Íran skrásett, heimildir sem Marzieh segist vona að verði að liðinni tíð eftir stjórnarskipti og atburði síðustu daga. Eitt verkanna ber heitið Blað íslams því fyrir Marzieh er íslamstrú eins og hnífsblað. „Það er alltaf sá möguleiki að það skeri þig og að því loknu, smám saman, getur það drepið þig. Þú missir alla sjálfsvitund.“ Hafði ekki kjark til að fara út á göturnar en stígur fram með list sinni Það tekur þó mikinn kjark að stíga fram og fara gegn reglunum. Hún segist hafa fengið mikinn kjark vegna Mahsa-mótmælanna árið 2022 þegar ung kona að nafni Mahsa Amini lést eftir að hafa verið handtekin af siðgæðislögreglunni. „Þá sá ég hvernig fólk flykktist út á göturnar, mótmælti og kom ekki aftur heim. Íslamska stjórnin drap mótmælendur og margar konur voru drepnar í þessum mótmælum. Konum var rænt á götum úti, þær voru handteknar og hengdar,“ rifjar hún upp. „Ef satt skal segja þá hafði ég ekki kjark til að fara út og taka þátt í þeim mótmælum en fyrst ég gat ekki farið út gat ég gert eitthvað með listsköpun minni.“ Loka augum þeirra fyrir veruleika lífsins Árið 2022 fordæmdu Sameinuðu þjóðirnar meðferð kvenna í Íran. Stöðu þeirra hélt þó áfram að hraka og í fyrra var bann við því að raddir kvenna heyrðust á almannafæri hert með handtökum, refsingum og aftökum í kjölfarið. „Þeir loka eiginlega augum okkar fyrir veruleika lífsins. Fyrir því að hægt sé að njóta lífsins í raun og veru.“ Snærós Sindradóttir er sýningarstjóri og eigandi SIND gallery. Hún segir sýninguna henta mjög vel inn í rýmið sem sé femínískt gallerí og skuldbundið því að standa vörð um tjáningar- og sköpunarfrelsi listamanna. „Það er pínu hressandi þegar hún talar og er að skapa. Þá finn ég að það kviknar einhver hræðsla hjá mér sem ég hef ákveðið að elta frekar en að forðast. Það er kannski pínulítið afhjúpandi fyrir það hvernig við nálgumst ákveðna hluti hérna á Íslandi,“ viðurkennir Snærós. „Við eigum pínulítið erfitt með að tala um ákveðna hluti og vera gagnrýnin á eitthvað sem við gjörþekkjum ekki. En hún gjörþekkir það.“ Íranska listakonan Marzieh Amiri heldur einkasýningu í SIND gallery um kúgun kvenna í heimalandi sínu. Hún segist vilja vera rödd þeirra kvenna og benda á óréttlætið. „Þetta var eins og fangelsi fyrir mig.“ Rætt var við Marzieh Amiri í Kastljósinu á RÚV. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article