Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Óhugnanlegar lýsingar á Edition-málinu í farbannsúrskurði

Read Full Article →

Franska konan, sem er grunuð um að hafa stungið bæði eiginmann sinn og dóttur til bana á Edition-hótelinu síðasta sumar, verður í farbanni til 30. mars. Héraðsdómur Reykjavíkur telur að enn sé margt á huldu um hvað gerðist. Konan hefur breytt framburði sínum um hvað raunverulega gerðist. Edition-málið er fordæmalaust. Rannsókn lögreglu hefur teygt sig til Írlands, Frakklands og Nýju Kaledóníu, eyjaklasa í Kyrrahafinu, en þaðan er maðurinn ættaður. Fjölskyldan var auðug, skildi eftir sig erfðaskrá upp á milljarða en harðar deilur höfðu staðið um þann pening hjá fjölskyldu mannsins. Þau voru ekki á neinum samfélagsmiðlum, afar litlar upplýsingar er að finna um þau á leitarvélum og lögregla fann varla nein rafræn gögn á farsímum þeirra. Þau komu hingað í frí, pöntuðu herbergi á einu dýrasta hóteli Reykjavíkur og fjölskyldan fannst, sama dag og hún átti pantað far aftur heim til Írlands þar sem hún hafði búið um nokkurra ára skeið. Það er enn margt óljóst hvað raunverulega gerðist. Þegar lögregla kom á vettvang sagði konan á greinilegri ensku að hún hefði drepið tvær manneskjur. Þegar hún ræddi við hjúkrunarfræðing á gjörgæsludeild Landspítalans sagði hún, þannig að lögreglumaður heyrði til, að eiginmaður hennar væri með alvarlega nýrnarbilun og dauðavona og hún hefði ekki viljað að dóttir þeirra yrði ein eftir lifandi. Hún hefði sjálf ætlað að svipta sig lífi með því að stinga sig í hjartað. Í nýbirtum farbannsúrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur er svo að finna nýjar upplýsingar um hvað konan segir að hafi gerst. Í honum er til að mynda vitnað í fyrstu skýrslutöku sem lögregla tók af konunni á gjörgæsludeild. Þar sagði hún fjölskylduna hafa tekið þá ákvörðun að fremja sjálfsvíg saman; dóttirin hafi verið fyrst og það hafi tekið langan tíma. Hún vildi ekki tjá sig frekar um þetta en lýsti sjálfri sér sem skrímsli. Eiginmaður hennar hafi síðan stungið hana, hann hafi ætlað að stinga hana í hjartað en ekki hitt. Hann hafi síðan ætlað að stinga sjálfan sig en af ónefndum ástæðum hafi hann beðið hana um stinga sig. Fjórum dögum seinna gaf hún aftur skýrslu og greindi frá því að Íslandsferðin hefði átt að vera síðasta samverustund fjölskyldunnar eftir að þau tóku þá ákvörðun að deyja saman. Eiginmaðurinn hafi glímt við erfið veikindi og erfið fjárhagsleg erfðamál tekið mjög á fjölskylduna. Þau hjónin hefðu gefið dóttur sinni fullt frelsi til að ákveða sín eigin örlög og hún verið ákveðin í að deyja með foreldrum sínum. Eiginmaður hennar hafi tekið ákvörðun um að stundin væri nú runninn upp, dóttirin hafi beðið um að fara fyrst og hafi pabbi hennar stungið hana með hníf þar sem hún lá í rúminu. Hann hafi síðan stungið hana og þau legið hlið við hlið í rúmi á hótelherberginu. Hún hafi sofnað meðvitundarlítil en síðan vaknað, breytt lak yfir líkin og reynt að þrífa þau. Í þeirri skýrslutöku neitaði hún hafa stungið eiginmann sinn og dóttur með hníf en hún hefði hins vegar þráð að deyja með þeim. Hún kvaðst hafa verið í uppnámi þegar hún hefði sagst hafa stungið þau. Í þriðju skýrslutöku sinni bætti hún því við að hún hefði rankað við sér um nóttina og þá hefði eiginmaður hennar verið að fá hana til að taka utan um rafmagnskapal með honum til að fá rafstuð og deyja þannig saman. Hún hefði sömuleiðis reynt að svipta sig lífi um morgunin með því að kveikja á hárblásara í sturtunni. Þegar lögregla fékk hana í skýrslutöku í nóvember kvaðst hún ekki vilja bæta neinu frekar við fyrri framburði sína. Fréttastofa greindi frá í lok janúar að rannsókn lögreglu væri lokið og málið hefði verið sent til héraðssaksóknara en það er embættið sem tekur ákvörðun um hvort ákæra verði gefin út eða ekki. Héraðssaksóknari fór þess á leit við lögregluna viku seinna að hún rannsakaði málið betur og sendi fyrirmæli þess efnis í þrettán töluliðum. Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að dómurinn telji að enn sé margt á huldu um hvað gerðist þessa nótt og því verði að veita saksóknara ákveðið svigrúm þar til rannsókn ljúki og ákvörðun verði tekin um saksókn. Athygli vekur að konan lýsti því yfir að yrði hún ekki úrskurðuð í farbann myndi hún yfirgefa landið.

Share this article