Innlent | mbl | 12.6.2026 | 15:50 Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Það tók á Ming að rifja upp atburðarásina fyrir dómi. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sólveig Sigurðardóttir Birta Hannesdóttir Setja bókamerki Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Íhuguðu að kasta sér fram af brú Aðalmeðferð í Edition-málinu hefst í dag Sakborningur sendi yfirlýsingu vegna umfjöllunar Stakk dóttur sína í hjartað Grunur um samverknað » Fleiri tengdar fréttir Emeric og Cathrine Mancel létu lífið fyrrihluta dags 13. júní á síðasta ári samkvæmt krufningarskýrslu. Lögregla var kölluð til á vettvang klukkan átta um morguninn laugardaginn 14. júní vegna alvarlegs atviks á hótelinu. Í krufningarskýrslu kom fram að Cathrine hefði látið lífið klukkan tíu um morguninn og Emeric í kringum hálftólf. Frétt af mbl.is Íhuguðu að kasta sér fram af brú Eins og áður segir bárust fyrstu fréttir af málinu laugardaginn 14. júní þegar lögreglan sendi frá sér tilkynningu um að hún hefði verið kölluð til á Edition-hótelið í Reykjavík vegna alvarlegs atviks. Fjölskyldan skráði sig inn á hótelið sunnudaginn 7. júní, viku áður en lögreglan kom á vettvang þar sem hún fann Cathrine og Emeric látin. Dyrnar ekki opnaðar aftur Í myndavélakerfum hótelsins sást síðast til fjölskyldunnar á hótelinu miðvikudaginn 11. júní klukkan rúmlega sjö um kvöldið þegar þau voru á leið inn á hótelherbergi sitt. Samkvæmt hurðarlæsingakerfi hótelsins voru dyr hótelherbergisins ekki opnaðar aftur eftir þann tíma. Ming sagði fyrir dómi í dag, þar sem aðalmeðferð stendur yfir, að í hennar minningu hafi fjölskyldan farið út að borða á sushi-stað í Reykjavík föstudaginn 13. júní. Eftir kvöldverðinn hafi þau haldið aftur til baka á hótelið og taldi Ming að þau hafi verið þar þar til lögreglan kom á vettvang. Saksóknari spurði hana þá út í það að síðast hafi sést til fjölskyldunnar á göngum hótelsins 11. júní og að hurð hótelherbergisins hafi ekki verið opnuð aftur eftir þann tíma. Ming svaraði að það gæti vel verið að það hafi verið miðvikudaginn 11. júní sem þau fóru út að borða en ekki föstudaginn þrettánda eins og hana minnti. Dómari spurði þá hversu langur tími hefði liðið frá því að fjölskyldan kláraði kvöldverðinn á sushi-staðnum og þar til þau hófust handa við að vinna sjálfum sér mein. Ming svaraði að nokkrar klukkustundir hefðu liðið. Sagði hún að þau hefðu hlustað á tónlist og horft á sjónvarpið áður en þau hófust handa. Rétt er að vara viðkvæma við þeim lýsingum sem hér koma á eftir: Þreif dótturina og hagræddi Eins og áður hefur verið greint frá er Ming ákærð fyrir að bana dóttur sinni í samverknaði við eiginmann sinn. Cathrine, dóttir þeirra, var stungin tvisvar í brjóstkassann. Önnur stungan fór í hjarta hennar. Fyrri stungan var inni á baði hótelherbergisins og sú síðari í rúmi í aðalrými herbergisins. Fyrir dómi lýsti Ming því að eftir að Cathrine var hætt að anda og hún áttaði sig á því að dóttir hennar væri látin þreif hún hana og hagræddi henni í rúminu. Hún lýsti atvikum þannig að eftir að hún bjó um dóttur sína fór hún inn á baðherbergi með eiginmanni sínum Emeric þar sem til stóð að binda enda á líf hennar. Hneppti hún frá skyrtu sinni svo hann gæti stungið hana. Lýsti Ming því að næst hafi Emeric lagt hana í rúmið við hlið dóttur sinnar. Frétt af mbl.is Stakk dóttur sína í hjartað Lögreglumenn tilkynntu um áverka eiginmannsins Ming kvaðst ekki hafa verið með fulla meðvitund allan tímann en sagði að á einhverjum tímapunkti hefði Emeric vakið hana og tilkynnt henni að nú væri röðin komin að honum. Kvaðst hún ekki muna atburðarásina eftir það en sagði að lögreglumenn hefðu tilkynnt henni að Emeric hefði hlotið tvenn stungusár þetta kvöld. Ming sagði fyrir dómi að á einhverjum tímapunkti hefði Emeric vakið hana í annað sinn og þá haldið á skorinni rafmagnssnúru úr lampa á hótelherberginu. Hann hefði þá tjáð henni að hann vildi að þau hjónin myndu haldast í hendur og fá rafstuð úr snúrunni saman og láta þannig lífið í sameiningu, en hann var þá þegar með stungusár. Sú aðferð hefði hins vegar ekki borið árangur. Sagðist hafa drepið feðginin Því næst hafi Emeric farið á salernið. Þegar hann kom aftur fram sagði Ming eiginmann sinn hafa verið orðinn mjög veikburða og fallið í gólfið. Hún sagðist ekki hafa haft kraft til að reisa hann við. Hún hafi sjálf verið veikburða vegna stungusárs. Ming lýsti því þá fyrir dómi að hún hefði tekið hníf og ætlað að stinga sjálfa sig en það hefði ekki haft tilætlaðan árangur. Sagðist hún einnig hafa reynt að stinga hárþurrku í samband og fara með hana í sturtu og fremja sjálfsvíg þannig en það gekk ekki eftir. Ming ákvað í kjölfarið að hringja í móttöku hótelsins þar sem hún sagði þeim hvað hafði gengið á. Hún sagði hótelstarfsmennina ekki skilja sig nægilega vel. Þegar starfsfólkið kom að hótelherberginu sagði hún við starfsfólkið að hún hefði drepið eiginmann sinn og dóttur sína til að kalla fram viðbrögð þeirra þar sem hún taldi þau ekki skilja sig. Sagði hún að þetta mætti ekki túlka sem játningu heldur hefði hún verið að reyna að fá starfsfólkið til að skilja sig. Í kjölfarið var hún handtekin og flutt á sjúkrahús með áverka. Yfir fjögurra tíma skýrslutaka Skýrsla yfir Ming fyrir dómi hófst rétt eftir klukkan tíu í morgun og stendur enn yfir. Þegar þetta er skrifað á verjandi Ming enn eftir að spyrja hana út í málsatvik. Til stendur að vitni beri skýrslu fyrir dómi í dag. Ólíklegt er að öll vitnin komi fyrir dóminn í dag. Samkvæmt áætlun á þinghaldinu að ljúka klukkan 16 en ljóst er að sú tímasetning mun ekki halda. Framhald aðalmeðferðar er áætlað á þriðjudag. Ekki er ólíklegt að einum degi verði bætt við aðalmeðferðina miðað við gang mála. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Pieta samtökin, s. 552-2218, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112. Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og [email protected] , síma Pieta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112. Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Íhuguðu að kasta sér fram af brú Aðalmeðferð í Edition-málinu hefst í dag Sakborningur sendi yfirlýsingu vegna umfjöllunar Stakk dóttur sína í hjartað Grunur um samverknað » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Argentínumaðurinn að fá stórt starf Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Réttar forsendur, rangar ályktanir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verðbólga á sterum frá 2023 Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Ítrekar gagnrýnina: „algjörlega ótímabær“ Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Subway auglýsir verð í evrum Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Er upptaka evru ógn við efnahag Íslands? Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Argentínumaðurinn að fá stórt starf Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Réttar forsendur, rangar ályktanir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Veðurfyrirbærið El Niño er hafið Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom „Þetta eru allt saman nýir skattar“ Samkomulag á lokametrunum Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Subway auglýsir verð í evrum Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Er upptaka evru ógn við efnahag Íslands? Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna