Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

„Hálf­gerður varnar­sigur“ í byrjun árs

Read Full Article →

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 147 þúsund í nýliðnum febrúar samkvæmt mælingum Ferðamálastofu , og voru um 0,9% færri en í febrúar 2025. Á fyrstu tveimur mánuðum ársins fóru um 267 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi. Um er að ræða 1,3% færri brottfarir en á sama tíma í fyrra. Brottfarir Íslendinga voru um 36 þúsund í febrúar, 11,4% færri en í sama mánuði í fyrra. Frá áramótum hafa Íslendingar farið um 80 þúsund utanlandsferðir, sem er 9,4% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra, sem má að hluta rekja til falls Play. Bretar fjölmennasti hópurinn í febrúar Um 35 þúsund Bretar fóru frá landinu í febrúar, sem samsvarar um fjórðungi allra brottfara. Bretar voru 9,5% færri en í sama mánuði í fyrra. Bandaríkjamenn voru í öðru sæti, um 27 þúsund talsins (18,5% af heild), sem er 15,6% fækkun frá fyrra ári. Kínverjar voru í þriðja sæti með um 15 þúsund brottfarir (10,1% af heild) og voru 44,1% fleiri en í febrúar í fyrra Fer betur af stað en búist var við Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir í færslu á X að tölurnar gefi til kynna að ferðaþjónustuárið virðist ætla að fara skár af stað en greiningardeild bankans óttaðist. Hann lýsir 0,9% fækkun farþega í febrúar sem hálfgerðum varnarsigri miðað við horfurnar undir lok síðasta árs. Ferðaþjónustuárið virðist ætla að fara skár á stað en við óttuðumst. 0,9% fækkun YoY í brottförum um KEF í febrúar er hálfgerður varnarsigur m.v. horfurnar undir lok síðasta árs. Kínverjum að fjölga mikið milli ára en Bretum og Bandaríkjamönnum fækkar. https://t.co/J4sZvxz3aQ pic.twitter.com/qkefmCtajn — Jón Bjarki (@JBentsson) March 10, 2026

Share this article