Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Utan­lands­ferðir Ís­lendinga dragast saman um tæp 13%

Read Full Article →

Brottfarir Íslendinga um Keflavíkurflugvöll á fyrri helmingi ársins drógust saman milli ára samkvæmt tölum Ferðamálastofu og Isavia. Í heildina voru brottfarir Íslendinga 316.161 á fyrstu sex mánuðum ársins, sem er 12,7% samdráttur frá fyrstu sex mánuðum 2025 þegar brottfarir voru 361.967. Talningarnar sýna fjölda ferða en ekki fjölda einstaklinga sem ferðuðust til útlanda. Brottförum fækkaði í öllum mánuðum fyrri árshelmings miðað við árið 2025. Langmestur var samdrátturinn í apríl. Þá fóru 53.513 Íslendingar frá landinu um Keflavíkurflugvöll, samanborið við 77.906 í apríl í fyrra. Fækkunin nam um 31,3% og skýrði ein og sér meira en helming heildarfækkunarinnar á tímabilinu. Þrátt fyrir samdrátt milli ára var fjöldinn yfir spám Isavia alla mánuðina, fyrir utan í apríl þegar fjöldinn var 19,1% undir spá en gert var ráð fyrir 66.130 farþegum. Farþegafjöldinn var 15,5% yfir spám í júní og 11,3% í mars. Fyrir fyrstu sex mánuðina hafði Isavia gert ráð fyrir 309.407 brottförum Íslendinga og voru brottfarir því 6.754 eða um 2,2% fleiri en spáin gerði ráð fyrir. Fyrir júlí gerir Isavia ráð fyrir 61.309 brottförum Íslendinga, 7,8% færri en í júlí í fyrra, og 55.692 í ágúst, sem yrði 5,5% samdráttur milli ára. Isavia gerir ráð fyrir að brottfarir Íslendinga verði 601.831 á árinu öllu, samanborið við 694.310 árið 2025. Fækkunin yrði þá 13,3%. Vert er að taka fram að árið 2025 var metár og samanburður við árið 2024 sýnir að utanferðir Íslendinga eru enn talsvert fleiri en þá. Tölurnar benda því fremur til þess að utanferðir Íslendinga séu að færast nær því sem tíðkaðist árið 2024 en að um skyndilegt hrun í ferðalögum sé að ræða. Að sögn Tómasar Ingasonar, framkvæmdastjóra tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair, skýrir brotthvarf Play að miklu leyti samdrátt í brottförum Íslendinga en hjá Icelandair sé mikil fjölgun í hverjum mánuði. „Okkar markaðsrannsóknir staðfesta að það er ennþá mjög mikill ferðavilji hjá Íslendingum og þeir eru að forgangsraða ferðalögum umfram flest annað sem væri hugsanlega hægt að skera niður,“ segir Tómas. „Það var mjög sterk eftirspurn hjá okkur á íslenska markaðnum og er áfram.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article