Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Flytja EES-mál í húsakynnum Hæstaréttar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 10.3.2026 | 20:40 Flytja EES-mál í húsakynnum Hæstaréttar Frá málflutningskeppni síðasta árs sem haldin var í gamla sal Oslóarháskóla. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) heldur málflutningskeppni sína í tíunda skipti í ár, og að þessu sinni verður hún haldin í dómstólum Reykjavíkur dagana 13.-15. mars næstkomandi þar sem íslenskir og norskir háskólanemar munu spreyta sig á að flytja EES-réttarmál í dómsal. Alls taka 20 lið þátt, sem er metfjöldi, en samtals taka um 90 laganemar frá Íslandi og Noregi þátt í keppninni. Að þessu sinni verða viðfangsefni keppninnar samkeppnisréttur og heilbrigðisþjónusta og þau álitamál sem komið geta upp í því samhengi. „Málflutningskeppnin er kjörið tækifæri til að spreyta sig á eftirlíkingu af EES-réttarmáli í dómsal og nemendur frá háskólum Íslands, Noregs, Liechtenstein og víðs vegar um Evrópska efnahagssvæðið geta tekið þátt,“ segir Hrafnhildur Steingrímsdóttir, samskiptastjóri hjá ESA. Hæstiréttur Íslands, þar sem úrslit keppninnar munu fara fram. mbl.is/Eggert Jóhannesson Fer fram í Hæstarétti Íslands og Héraðsdómi Reykjavíkur Markmið keppninnar segir Hrafnhildur það að endurskapa eins nákvæmlega og mögulegt er málsmeðferð og málflutning eins og hann fer fram fyrir EFTA-dómstólnum. „Keppnin í ár fer fram í Hæstarétti Íslands og Héraðsdómi Reykjavíkur og það munu tuttugu lið taka þátt, sem er mesta þátttaka síðan keppnin var fyrst haldin árið 2015,“ segir Hrafnhildur. Í ár taka mörg lið frá Noregi þátt, en af norsku liðunum átján koma sautján frá Háskólanum í Bergen. Frá Íslandi taka tvö lið þátt, bæði þeirra frá Háskólanum í Reykjavík. Markmið keppninnar segir Hrafnhildur það að endurskapa eins nákvæmlega og mögulegt er málsmeðferð og málflutning eins og hann fer fram fyrir EFTA-dómstólnum. mbl.is/Karítas Boðið í fræðsluferð til Brussel Með þátttöku í keppninni fá nemendur þjálfun í málflutningi, endurgjöf frá sérfræðingum í lögfræði og hagnýta reynslu af EES-rétti að sögn Hrafnhildar. „Sigurliðinu er boðið í fræðsluferð til Brussel og Lúxemborgar, þar sem meðal annars ESA, stofnanir Evrópusambandsins, EFTA-dómstóllinn og Dómstóll Evrópusambandsins eru heimsótt,“ segir hún. Keppnin stendur yfir í nokkra daga og felur einnig í sér kynningar og heimsóknir til íslenskra stofnana. Þátttakendum gefst meðal annars kostur á að heimsækja Alþingi, Samkeppniseftirlitið og Háskólann í Reykjavík, auk þess sem móttaka er haldin til að bjóða þátttakendur velkomna. „Sjálfar málflutningsumferðirnar fara fram um helgina, þar sem opnunarlotur keppninnar fara fram á laugardag í Hæstarétti Íslands og Héraðsdómi Reykjavíkur. Á sunnudag fara síðan fram undanúrslit og úrslit í Hæstarétti Íslands, þar sem sigurlið keppninnar verður tilkynnt.“ Keppendum býðst að heimsækja Alþingi. mbl.is/Karítas Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bandaríkin ráðast til atlögu vegna tundurdufla Ótrúlegt atvik í spænsku höfuðborginni Flytja EES-mál í húsakynnum Hæstaréttar Þyrla kölluð út vegna göngumanns í sjálfheldu Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Hvers vegna þessar blekkingar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Drumbarnir frá NATO Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Fleiri muni fara á örorku Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Ósáttur við ummæli ráðherra Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Sagðist ætla að sprengja upp byggingu Þorgerður heldur til Washington Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Bandaríkin ráðast til atlögu vegna tundurdufla Ótrúlegt atvik í spænsku höfuðborginni Flytja EES-mál í húsakynnum Hæstaréttar Þyrla kölluð út vegna göngumanns í sjálfheldu Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Hvers vegna þessar blekkingar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gátu ekki rökstutt þörf á gæsluvarðhaldi Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Ósáttur við ummæli ráðherra Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Sagðist ætla að sprengja upp byggingu Þorgerður heldur til Washington Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar

Share this article