Fordæmalaus húsleit Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) hjá Tosku ehf., Lyfjum og heilsu og Skel fjárfestingafélagi haustið 2024 var lögmæt. Þetta er niðurstaða EFTA-dómstólsins, sem kvað í dag upp dóm í sameinuðum málum félaganna þriggja gegn ESA og hafnaði kröfum þeirra um að ógilda ákvarðanir stofnunarinnar um framkvæmd húsleitar. Húsleitin fór fram 14. október 2024 á grundvelli tveggja ákvarðana ESA um vettvangsrannsókn. Málið tengist rannsókn ESA á meintum brotum gegn 53. gr. EES-samningsins (samkeppnishamlandi samvinnu) á smásölumarkaði lyfja á Íslandi. Sjá einnig Skel: Engin ástæða til að ætla brot á samkeppnislögum Félögin héldu því meðal annars fram að ákvarðanir ESA hefðu ekki verið nægilega rökstuddar, að ekki hefðu legið fyrir nægar vísbendingar til að réttlæta húsleit, að háttsemin gæti ekki haft áhrif á viðskipti milli EES-ríkja og að ESA skorti lögsögu þar sem málið hefði þegar komið til skoðunar hérlendis í tengslum við samrunameðferð Samkeppniseftirlitsins. Sjá einnig ESA att út í veiðiferð fyrir áeggjan innlendrar stofnunar Þá var einnig byggt á rökum um réttaröryggi og bann við endurtekinni málsmeðferð (ne bis in idem). Dómstóllinn taldi einnig að ESA hefði haft nægilega alvarlegar vísbendingar til grundvallar húsleitinni. Í því sambandi var áréttað að tilgangur húsleitar væri einmitt að afla gagna sem gætu staðfest eða hnekkt slíkum vísbendingum, en að önnur möguleg skýring á háttsemi og önnur gögn yrðu metin á síðari stigum rannsóknarinnar, meðal annars þegar fyrirtækin nýta andmælarétt sinn. Að því er varðaði skilyrðið um áhrif á viðskipti milli EES-ríkja taldi dómstóllinn að ESA hefði á þessu stigi máls haldbærar ástæður til að ætla að háttsemin gæti haft slík áhrif, meðal annars í ljósi þess að stór hluti lyfja á Íslandi er innfluttur og markaðurinn á höfuðborgarsvæðinu vegi þungt. Um lögsögu ESA vísaði dómstóllinn til þess að sú háttsemi sem ESA rannsakar sé bæði annars eðlis og víðtækari að umfangi , í tíma og rúmi, en það sem var til skoðunar í samrunamáli hér á landi. Af þeim sökum stæði samrunameðferð íslenskra yfirvalda ekki í vegi fyrir rannsókn ESA á grundvelli EES-reglna og rannsóknin bryti hvorki gegn réttaröryggi né banninu við endurtekinni málsmeðferð.