Evrópusambandið hefur hótað að draga úr fjárframlögum sínum til Feneyjatvíæringsins ef fulltrúum Rússa verður leyft að sýna á hátíðinni í ár. Rússar hafa ekki sýnt á tvíæringnum eftir að stríðið í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Þjóðarskáli þeirra í Giardini stóð tómur á hátíðinni 2022 eftir að listamenn og sýningarstjóri hættu við þátttöku. Fyrir tveimur árum sýndi fulltrúi Bólivíu í skálanum. Listi yfir þátttakendur á næsta myndlistartvíæringi sem haldinn verður í sumar var birtur fyrr í þessum mánuði . Þar sést að Rússar ætla að snúa aftur í Giardini. Á fjórða tug listamanna kemur að framlagi þeirra í ár. Opnunardagur listahátíðarinnar er 9. maí og hún stendur fram til 22. nóvember. Fulltrúi Íslands í Feneyjum í ár er Ásta Fanney Sigurðardóttir. Pólitísk ákvörðun Ítala Þetta hefur mætt mikilli mótstöðu, ekki síst meðal úkraínskra stjórnvalda og andstæðinga rússneskra stjórnvalda úr lista- og menningargeira landsins. Meðal þeirra sem hafa mótmælt þessu er pönksveitin Pussy Riot. Í færslu sveitarinnar á Instagram segir að þó að Rússar eigi bygginguna, þá standi hún í Giardini sem sé eign ítalska ríkisins og Feneyjaborgar. Engin starfsemi geti farið fram í húsinu nema með samþykki stjórnar tvíæringsins og formaður hennar er kjörinn af ítölskum stjórnvöldum. Skálinn sé hvorki sendiráð né hafi diplómatíska stöðu. Því geti ítölsk stjórnvöld, borgaryfirvöld og fulltrúar tvíæringsins neitað Rússum að taka þátt. „Ef Rússar taka þátt á tvíæringnum þá er það pólitísk ákvörðun Ítala,“ segir í færslunni. Undir hana ritar Nadezhda Tolokonnikova sem hlaut íslenskan ríkisborgararétt á síðasta ári. Gætu glatað styrk frá Evrópusambandinu Menningarmálaráðherrar 22 Evrópuríkja sendu stjórn tvíæringsins bréf á dögunum þar sem það var sagt senda slæm skilaboð að veita Rússum aðgang að jafn mikilsvirtu sviði innan alþjóðlegs menningarlífs. Ráðherrarnir hvöttu því stjórnina til að endurskoða þátttöku Rússa á sýningunni. Í gær fordæmdu svo Henna Virkkunen, tæknimálastjóri Evrópusambandsins, og Glenn Micallef, menningarmálastjóri sambandsins, ákvörðunina um að hleypa Rússum aftur inn í skálann. Í yfirlýsingu þeirra segir að aðildarríki ESB og stofnanir þeirra verði að fylgja sambandinu að málum í refsiaðgerðum sem beinast gegn Rússum. Standi ákvörðunin um að leyfa Rússum að sýna á hátíðinni þá ætli sambandið að taka frekari aðgerðir til greina, þar á meðal frestun eða riftun á styrktarsamningi ESB til tvíæringsins. Feneyjar eigi að vera „vettvangur samtals“ Í frétt Reuters segir að styrkurinn hljóði upp á 2 milljónir evra, sem samsvarar nærri 300 milljónum króna. Hann sé til þriggja ára og ætlaður til að fjármagna kvikmyndaframleiðslu. Styrktarfé hátíðarinnar nemur um 19 milljónum evra árlega, nærri 2,8 milljörðum króna. Megnið af þeim peningum kemur frá ítalska ríkinu. Stjórn tvíæringsins sendi frá sér yfirlýsingu í síðustu viku í kjölfar harðra viðbragða við þátttöku Rússa. Þar segir stjórnin meðal annars að Feneyjar eigi að vera „vettvangur samtals“ þar sem áhersla sé lögð á „stöðvun stríðsátaka og þjáninga,“ að því er segir í frétt The Art Newspaper .