Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Magnús hættir sem for­stjóri Orkusölunnar

Read Full Article →

Magnús Kristjánsson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Orkusölunnar, dótturfélags Rarik, eftir nær tvo áratugi í starfi. Hann lætur af störfum þann 1. apríl en verður áfram til ráðgjafar eftir þörfum. Heiða Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu- og markaðsmála hjá Orkusölunni, mun taka tímabundið við starfi forstjóra frá 1. apríl. Heiða hóf störf hjá Orkusölunni árið 2019. „Magnús verið í fararbroddi félagsins nánast frá stofnun þess, eða frá janúar 2008, og haft mikil og góð áhrif á starfsemi þess og menningu,“ segir í tilkynningu Orkusölunnar sem fagnaði 20 ára afmæli sínu nú á dögunum. „Ég lít til baka með miklu þakklæti. Það hefur verið sannkallaður heiður að fá að leiða Orkusöluna öll þessi ár og vinna með hæfileikaríku og kraftmiklu starfsfólki. Ég vil þakka samstarfsfólki mínu innilega fyrir samfylgdina, traustið og öll þau verkefni sem við höfum tekist á við saman. Sjálfur hlakka ég mikið til að takast á við ný og spennandi verkefni,“ segir Magnús . „Magnús hefur átt stóran þátt í uppbyggingu Orkusölunnar og þeim sterka grunni sem félagið stendur á í dag. Við þökkum honum fyrir framúrskarandi störf og óskum honum velfarnaðar í því sem fram undan er,“ segir Magnús Þór Ásmundsson , stjórnarformaður Orkusölunnar. Orkusalan selur og framleiðir rafmagn til heimila og fyrirtækja um land allt. Virkjanir Orkusölunnar eru : Skeiðsfossvirkjun, Lagarfossvirkjun, Grímsárvirkjun, Smyrlabjargarárvirkjun, Rjúkandavirkjun og Búðarárvirkjun. Heiða Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu- og markaðsmála hjá Orkusölunni, mun taka tímabundið við starfi forstjóra. © Aðsend mynd (AÐSEND)

Share this article