Félagsbústaðir, dótturfélag Reykjavíkurborgar sem leigir út félagslegt íbúðarhúsnæði, hagnaðist um 7.662 millljónir króna á árinu 2025, samanborið við 1.277 milljóna króna hagnað árið áður. Hagnaðurinn skýrist einkum af því að matsbreyting fjárfestingareigna nam 8,2 milljörðum króna í fyrra, samanborið við 2,6 milljarða árið áður. Sjá einnig Eftirlitsnefnd deilir á matshækkanir Félagsbústaða Leiguverðið 64,3% af markaðsverði Leigutekjur félagisns námu tæplega 6,9 milljörðum króna og jukust um 5% milli ára. Heildartekjur félagsins námu 7,4 milljörðum króna. Félagið rekur 5,1% tekjuvöxt til hækkunar leiguverðs vegna verðlagsbreytinga og 1,5% leiguverðshækkun umfram verðlag sem kom til framkvæmda í júní 2025. Í afkomutilkynningu félagsins segir að leiguverð Félagsbústaða hafi numið 64,3% af markaðsverði á árinu 2025. Í skýrslu stjórnar segir að starfsemin hafi verið fjárhagslega sjálfbær um rúmar 93 milljónir króna á árinu 2025. Fjárhagsleg sjálfbærni Félagsbústaða sé skilgreind þannig að rekstrartekjur hvers árs standi undir rekstrargjöldum, vaxtagjöldum og afborgunum langtímalána sem falla til innan hvers árs. Meirihluti íbúðarkaupa á grundvelli kaupréttar Eignir Félagsbústaða voru bókfærðar á 175,8 milljarða króna í árslok 2025 og eigið fé var um 94 milljarðar króna. Heildarfjöldi íbúða í eigu Félagsbústaða var 3.177 í lok síðasta árs. Fram kemur að hlutfall félagslegra leiguíbúða í borginni séu um 5,2%. Á árinu fjárfesti félagið í 56 nýjum íbúðum, þar af 16 sérstaklega ætluðum fötluðu fólki. Alls voru keyptar 39 íbúðir á grundvelli kaupréttar. Sjá einnig Keypt 185 íbúðir á grundvelli kaupréttar Félagsbústaðir hafa kauprétt fyrir allt að 5% íbúða fyrir félagslegt leiguhúsnæði á föstu verði bundið byggingarvísitölu. Í nýlegri skýrslu um viðskiptalíkan Félagsbústaða kemur fram að þessar íbúðir, sem Félagsbústaðir geta keypt á grundvelli kaupréttar, séu að jafnaði 35% ódýrari en íbúðir á markaði.