Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Valur deildarmeistari og ÍR féll

Read Full Article →

Mikil spenna var fyrir lokaumferð deildarkeppninnar í kvöld þar sem Valur, FH og Haukar áttu öll möguleika á því að verða deildarmeistarar. Valur hafði 32 stig fyrir leiki kvöldsins, FH með 31 stig í 2. sæti og Haukar höfðu 30 stig í 3. sæti. Þar sem Valur vann ÍBV 34-28 tryggðu Valsmenn sér deildarmeistaratitilinn. FH endar í 2. sæti þar sem FH-ingar unnu líka sinn leik sem var á móti botnliði ÍR. Fyrir vikið er ljóst að ÍR er fallið niður í næstefstu deild því ÍR þurfti að sækja stig í kvöld til að eiga möguleika á því að forðast neðsta sætið, sem er jafnframt beint fall. HK gulltryggði síðasta lausa sætið inn í úrslitakeppnina með þriggja marka sigri á Haukum 26-23. Úrslit lokaumferðarinnar ÍBV - Valur, 28-34 HK - Haukar, 26-23 Þór - KA, 31-31 FH - ÍR, 34-28 Selfoss - Afturelding, 27-27 Stjarnan - Fram, 24-26 Þessi lið mætast í úrslitakeppninni Valur - HK FH - Fram Haukar - Afturelding ÍBV - KA Þór og Selfoss hafa lokið keppni á Íslandsmótinu í ár, Stjarnan fer í umspil með þremur liðum úr næstefstu deild um sæti í efstu deild á næstu leiktíð, en ÍR er fallið.

Share this article