Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ekkert er ráðið í Olísdeild karla fyrir lokaumferðina

Read Full Article →

Baráttan um deildarmeistaratitilinn Valur, FH og Haukar berjast um titilinn. Valur vann HK í kvöld með 33 mörkum gegn 26 og er á toppnum með 32 stig. FH lagði KA á Akureyri, 30-25, og fylgir í humátt stigi á eftir. Haukar unnu svo Selfoss, 35-28, og eru í þriðja sæti með 30 stig. Valur verður deildarmeistari með sigri á ÍBV í lokaumferðinni. Tapi Valur getur FH náð toppsætinu með sigri á ÍR. Tapi bæði lið geta Haukar náð deildarmeistaratitlinum, en þeir mæta HK í Kórnum. Barátta um sæti í úrslitakeppninni Tap HK gegn Val og sigur Þórs Akureyri á Aftureldingu, 26-24 í Mosfellsbæ, galopnaði þessa baráttu. HK er í 8. sæti með 14 stig en nú eru Þórsarar með 13 í sætinu fyrir aftan. Þessi tvö lið berjast um 8. og síðasta sætið í úrslitakeppninni. HK fær Hauka í heimsókn í lokaumferðinni og fær granna sína í KA í heimsókn. Fram getur svo komist upp fyrir Aftureldingu í lokaumferðinni og Afturelding getur komist upp fyrir KA sem getur svo komist upp fyrir ÍBV, allt eftir úrslitum lokaumferðarinnar. Lokastaðan, og hvaða lið mætast í úrslitakeppninni, er því fullkomlega óljós enn. Baráttan um fall og umspil Eitt lið fellur og eitt lið fer í umspil um sæti í deildinni við lið úr Grill66-deildinni. ÍR er neðst og hefur verið lengi en í kvöld mætti liðið Stjörnunni, sem er í umspilssætinu, og vann með 30 mörkum gegn 26. ÍR er nú með 9 stig og Stjarnan með 10. ÍR mætir FH í Kaplakrika í lokaumferðinni og verður að ná í stig og vona um leið að Stjarnan misstígi sig gegn Fram. Stjarnan getur enn sloppið við umspil og gerir það með sigri gegn Fram og tapi Selfoss gegn Aftureldingu. Lokaumferðin er öll leikin á fimmtudag klukkan 19:30 og leikirnir eru þessir: Stjarnan - Fram HK - Haukar ÍBV - Valur Þór - KA Selfoss - Afturelding FH - ÍR

Share this article