200 mílur | Morgunblaðið | 12.3.2026 | 21:30 Varðskipin verði oftar við gæslustörf Varðskipið Þór við Neskaupstað. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Alþingi hefur nú til meðferðar frumvarp utanríkisráðherra um breytingu á lögum um landhelgi Íslands, aðlægt belti, efnahagslögsögu og landgrunn. Með frumvarpinu er landgrunn Íslands á Reykjaneshrygg og í Ægisdjúpinu afmarkað og Ísland öðlast þannig ótvíræð og lögbundin réttindi gagnvart öðrum ríkjum yfir auðlindum hafsbotnsins utan 200 sjómílna. Landhelgisgæsla Íslands hefur sent Alþingi umsögn um frumvarpið. Þar er minnt á að samkvæmt lögum hafi stofnunin meðal annars það hlutverk að sinna öryggisgæslu, löggæslu og eftirliti á hafinu og vernda fullveldisréttindi Íslands í landhelgi, efnahagslögsögu og á landgrunni. Einnig að tryggja öryggi og vernd auðlinda á og undir hafsbotni og fylgjast með og bregðast við ólögmætri starfsemi í íslenskri lögsögu. Eftirliti með þessum landgrunnssvæðum verði að mestu sinnt með gervihnöttum og eftirlitsflugvélinni TF-SIF eftir atvikum. Eftirlit flugvéla og gervihnatta getur haft það í för með sér að senda þurfi varðskip á svæðin sem eru djúpt úti. Það hefur í för með sér fjarveru varðskips af grunnslóð og kallar því á mikilvægi þess að bæði varðskipin verði gerð út í einu. Tryggja þarf fjármagn „Þetta aukna eftirlit með mikilvægum auðlindum Íslands mun því óhjákvæmilega hafa í för með sér aukinn kostnað fyrir Landhelgisgæslu Íslands og nauðsynlegt er að stjórnvöld tryggi viðeigandi úrræði og fullnægjandi fjármagn til að stofnunin geti sinnt lögbundnu hlutverki á landgrunnssvæðum,“ segir í umsögninni. Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að náttúruauðlindir sem tilheyra landgrunninu séu jarðefnaauðlindir á borð við olíu, gas og málma, aðrar ólífrænar auðlindir hafsbotnsins og botnlaganna, t.d. jarðhiti og lífverur í flokki botnsetutegunda og erfðaefni þeirra. Réttindi strandríkis yfir landgrunninu utan efnahagslögsögunnar hafi ekki áhrif á réttarstöðu yfirlæga hafsins, sem telst úthaf, og nái ekki til fiskstofna né annarra auðlinda þess. Landgrunn Íslands utan 200 sjómílna samanstendur af Ægisdjúpi, suðvesturhluta Síldarsmugunnar, Reykjaneshrygg og Hatton Rockall-svæðinu sem Bretland, Írland og Danmörk/Færeyjar gera einnig tilkall til. Í mars 2025 afgreiddi landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna endurskoðaða greinargerð Íslands um landgrunn á Reykjaneshrygg (vestur-, suður- og suðausturhluti hryggjarins) og hefur nefndin þar með afgreitt og samþykkt mörk landgrunns Íslands. Landgrunnssvæðið er víðfeðmt og nær rúmar 570 sjómílur frá grunnlínum. Vinna Íslands stóð yfir í tvo og hálfan áratug. Samþykki nefndarinnar fyrir landgrunni Íslands í Ægisdjúpi hefur legið fyrir frá árinu 2016. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Hulda tekur við nýrri deild Eimskips „Þetta er sukk og spilling“ Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik Vertíð gæti skilað 30 milljörðum Ofboðsleg ýsugengd og stutt í þorskinn Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Loðnuveiðum lokið hjá Síldarvinnslunni Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Enn vex Wisefish í Kanada Helgafellið í viðgerð Útflutningur ógnar góðu orðspori „Þetta er sukk og spilling“ Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Fékk nótina í skrúfuna Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu Fisk rekur á land á Stokkseyri Farþegamiðstöðin komin með nafn 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Fékk nótina í skrúfuna Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar Verðmætur túr hjá Sólbergi „Það er fiskur úti um allt núna“ „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Fleira áhugavert Drónar féllu til jarðar skammt frá Dúbaí-flugvelli Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Varðskipin verði oftar við gæslustörf Engar ákvarðanir teknar um sjónvarpshlutann Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 12.3.26 703,73 kr/kg Þorskur, slægður 12.3.26 648,34 kr/kg Ýsa, óslægð 12.3.26 389,63 kr/kg Ýsa, slægð 12.3.26 395,37 kr/kg Ufsi, óslægður 12.3.26 353,10 kr/kg Ufsi, slægður 12.3.26 390,01 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 11.3.26 317,00 kr/kg Gullkarfi 12.3.26 329,71 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 12.3.26 Séra Árni GK 135 Handfæri Þorskur 3.456 kg Samtals 3.456 kg 12.3.26 Vigur SF 80 Lína Ýsa 2.053 kg Þorskur 531 kg Langa 405 kg Steinbítur 195 kg Keila 4 kg Samtals 3.188 kg 12.3.26 Sunnutindur SU 95 Línutrekt Þorskur 11.482 kg Ýsa 1.126 kg Langa 130 kg Steinbítur 42 kg Keila 4 kg Samtals 12.784 kg 12.3.26 Hafrafell SU 65 Lína Ýsa 3.220 kg Þorskur 1.186 kg Steinbítur 553 kg Keila 142 kg Samtals 5.101 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Hulda tekur við nýrri deild Eimskips „Þetta er sukk og spilling“ Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik Vertíð gæti skilað 30 milljörðum Ofboðsleg ýsugengd og stutt í þorskinn Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Loðnuveiðum lokið hjá Síldarvinnslunni Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Enn vex Wisefish í Kanada Helgafellið í viðgerð Útflutningur ógnar góðu orðspori „Þetta er sukk og spilling“ Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Fékk nótina í skrúfuna Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu Fisk rekur á land á Stokkseyri Farþegamiðstöðin komin með nafn 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Fékk nótina í skrúfuna Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar Verðmætur túr hjá Sólbergi „Það er fiskur úti um allt núna“ „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Fleira áhugavert Ferðamenn lentu á kafi í vatni Af hverju var dómurinn ómerktur? Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Varðskipin verði oftar við gæslustörf Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 12.3.26 703,73 kr/kg Þorskur, slægður 12.3.26 648,34 kr/kg Ýsa, óslægð 12.3.26 389,63 kr/kg Ýsa, slægð 12.3.26 395,37 kr/kg Ufsi, óslægður 12.3.26 353,10 kr/kg Ufsi, slægður 12.3.26 390,01 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 11.3.26 317,00 kr/kg Gullkarfi 12.3.26 329,71 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 12.3.26 Séra Árni GK 135 Handfæri Þorskur 3.456 kg Samtals 3.456 kg 12.3.26 Vigur SF 80 Lína Ýsa 2.053 kg Þorskur 531 kg Langa 405 kg Steinbítur 195 kg Keila 4 kg Samtals 3.188 kg 12.3.26 Sunnutindur SU 95 Línutrekt Þorskur 11.482 kg Ýsa 1.126 kg Langa 130 kg Steinbítur 42 kg Keila 4 kg Samtals 12.784 kg 12.3.26 Hafrafell SU 65 Lína Ýsa 3.220 kg Þorskur 1.186 kg Steinbítur 553 kg Keila 142 kg Samtals 5.101 kg Skoða allar landanir »