Innlent | mbl | 1.7.2026 | 17:35 „Það þarf ekkert að hvíla stálið“ Halldór er í hópi reynslumestu skipstjóra á landinu. Samsett mynd/mbl.is/Ómar Óskarsson/Árni Sæberg Setja bókamerki Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Ísland og Frakkland ræddu varnarmál Framlög til varnarmála komin í 0,92% Engar upplýsingar um útgjöld til varnarmála „Horfa á Ísland sem traustan vin og afgerandi rödd“ Deildar meiningar um Silfrið á þingi » Fleiri tengdar fréttir Landhelgisgæslan Myndskeið: Ottó aflvana og hættulega nálægt landi Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Sóttu slasaða göngukonu Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði » Fleiri tengdar fréttir Mikið hefur mætt á áhöfn varðskipsins Þórs og Landhelgisgæslunni allri undanfarna daga. Gæslan hefur staðið vaktina og fylgst vökulum augum með miðunum í kringum Ísland í slétt 100 ár. Halldór B. Nellet, fyrrum skipherra á varðskipinu Þór, vekur athygli á því að þrátt fyrir að miklar framfarir hafi orðið á aðbúnaði og skipakosti Gæslunnar frá því að hún tók til starfa þá sé grundvallarveikleiki hennar sá að ekki sé til fjármagn til þess að manna varðskipin Þór og Freyju samtímis. Halldór bendir á þetta í ljósi atburða undanfarinnar viku, þar sem varðskipið Þór hefur fylgt eftir skipi hvalverndunarsinnans Paul Watsons á siglingu þess um íslenska efnahagslögsögu. Ef annað aðkallandi verkefni kemur upp og Þór þarf frá að hverfa getur Bandero þannig átt greiða leið að hvalveiðiskipunum og segir Halldór að erfitt geti verið að bregðast við í tæka tíð. Frétt af mbl.is Skilyrði að hafa varðskip úti fyrir Vestfjörðum Alvarlegt að Gæslan hafi aðeins eitt varðskip Halldór er án efa í hópi reynslumestu skipstjóra á landinu og segist hann hafa talað fyrir því að fjölga varðskipum á vakt í fjöldamörg ár. Erfiðlega hafi þó gengið að fá aukið fjármagn fyrir því. „Mér finnst nokkuð alvarlegt að Gæslan skuli aðeins hafa yfir einu varðskipi að ráða hverju sinni. Þó að við búum nú yfir tveimur prýðisgóðum skipum, þá finnst aldrei fjármagn í að halda meira en einu skipi á sjó,“ segir Halldór. Hann tekur fram að ekki sé við yfirmenn Landhelgisgæslunnar að sakast. Fjárveitingar til hennar séu háðar vilja ríkisvaldsins og segist Halldór meðvitaður um að kostnaðarsamt sé að halda úti mörgum áhöfnum. Hann telur kostnaðinn þó réttlætanlegan þar sem í því felist nauðsynlegt öryggi ekki aðeins fyrir sjómenn heldur landsmenn alla. „Nú er t.d. staðan sú að varðskipið Freyja er í slipp í Noregi, en vanalega er það þannig að annað varðskipanna fer út í 3 vikur og svo þegar það kemur aftur til hafnar fer hitt skipið út. Það eina sem þyrfti að gera er að ráða aukaáhöfn á bæði skipin og þá væru alltaf tvö skip á sjó. Í því fælist gríðarlegt öryggi því það þarf ekkert að hvíla stálið á milli,“ segir Halldór. Frétt af mbl.is Segja þyrlu á Akureyri skipta sköpum Fjöldi daga þar sem ekkert skip sé á sjó Halldór þekkir það vel að hafa þarf hröð handtök þegar útkall berst. Hann segir það þó vera hægara sagt en gert að ræsa út áhöfn heils skips með litlum fyrirvara, t.d. ef upp kæmu aðstæður eins og lýst var hér að ofan. „Segjum sem svo að það þurfi að smala saman áhöfn í snatri. Annað skipið er alltaf staðsett á Siglufirði en við vitum nú alveg hvernig veður og ófærð eru hér á landi þegar veður gerast slæm. Það getur því verið erfitt að smala saman áhöfn á stuttum tíma, enda ekki allir sem búa við hliðina á skipinu,“ segir Halldór. Þá segir Halldór jafnframt það gerast of oft að hvorugt varðskipanna sé á sjó, en með auknum fjárveitingum og þar af leiðandi fleiri áhöfnum væri hægt að draga verulega úr þeim fjölda. „Það koma margir dagar þar sem það er ekki eitt einasta skip á sjó. Ástæða þess er bara fjárskortur og Landhelgisgæslan þarf að halda sig innan fjárveitinga.“ Frétt af mbl.is Skoða hvort áhafnir geti ekið með forgangsljós Menn treysti á guð og lukkuna Þá bendir Halldór jafnframt á að ekki bæti úr skák að varðskipin þurfi að sigla alla leið til Færeyja til þess að taka eldsneyti. Hann spyr jafnframt hver sé reiðubúinn að taka ábyrgð á því ef upp koma aðstæður þegar skipin eru ótiltæk sökum þessa, þar sem hingað til hafi menn bara treyst á guð og lukkuna til að ekkert fari úrskeiðis. „Fjárveitingarnar eru svo naumt skammtaðar að menn eru að spara sér virðisauka og svo er lítraverðið ódýrara í Færeyjum, en það er ansi hart að þurfa að fara til annarra landa til þess að ná sér í eldsneyti. Það er ekki við yfirmenn Gæslunnar að sakast, þeim er stillt upp við vegg. Annaðhvort er það að fara til Færeyja eða úthaldið minnkar. Þetta er því skárri kosturinn af tveimur slæmum.“ „Maður spyr sig hver ætlar að taka ábyrgð á því ef eitthvað kemur upp á, á meðan þetta eina varðskip sem er starfrækt hérna heima er í Færeyjum að taka olíu. Þó að það sé annað varðskip þá í höfn, þá getur bara tekið of langan tíma að koma því út,“ segir Halldór að lokum. Frétt af mbl.is Fylla á í Færeyjum því Ísland er of dýrt Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Ísland og Frakkland ræddu varnarmál Framlög til varnarmála komin í 0,92% Engar upplýsingar um útgjöld til varnarmála „Horfa á Ísland sem traustan vin og afgerandi rödd“ Deildar meiningar um Silfrið á þingi » Fleiri tengdar fréttir Landhelgisgæslan Myndskeið: Ottó aflvana og hættulega nálægt landi Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Sóttu slasaða göngukonu Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þrír fá 680 þúsund í sinn hlut England - Austur-Kongó, staðan er 2:1 „Það þarf ekkert að hvíla stálið“ Hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Þrótt í sumar Íslensku stúlkurnar máttu þola tap Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fimm verkefni fá 600 milljónir Mistök gerð við kynfræðslu Gert að tíunda hval vertíðarinnar „Það þarf ekkert að hvíla stálið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Andlát: Sr. Þórir Stephensen Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Féll fram af svölum og lést Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » Þrír fá 680 þúsund í sinn hlut England - Austur-Kongó, staðan er 2:1 „Það þarf ekkert að hvíla stálið“ Hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Þrótt í sumar Íslensku stúlkurnar máttu þola tap Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Álit kom ráðherra á óvart Búseta og bakgrunnur hafa áhrif Börn niður í sjö ára að skoða klám Ríkisstjórn afgreiðir fjárlög í dag Mest lesið Í gær Í vikunni Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Andlát: Sr. Þórir Stephensen Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Féll fram af svölum og lést Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið