Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ný björgunarmiðstöð á Borg

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.3.2026 | 10:30 Ný björgunarmiðstöð á Borg Fyrstu skóflustungur teknar í gær. Frá vinstri: Jóhannes Þ. Guðmundsson formaður Tintrons, Fjóla St. Kristinsdóttir sveitarstjóri í Grímsnes- og Grafningshreppi og Pétur Pétursson slökkviliðsstjóri. Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Stór áfangi var tekinn í gær með fyrstu skóflustungu að björgunarmiðstöð sem reist verður á Borg í Grímsnesi. Framkvæmdin er samstarf Hjálparsveitarinnar Tintrons, Brunavarna Árnessýslu og Grímsnes- og Grafningshrepps. Björgunarmiðstöðin verður í heildina 1.135 fermetrar að flatarmáli og skiptingin er sú að Tintron verður í 60% af húsinu og slökkvistöð Brunavarna Árnessýslu hefur 40%. „Verkefnið er afar mikilvægt því starf sveitarinnar hefur fyrir nokkru sprengt utan af sér núverandi húsnæði. Með slökkvistöð hér á Borg verður líka tryggara og skjótara viðbragð en verið hefur. Við stefnum að því að húsið verði tilbúið í lok þessa árs,“ segir Jakob Guðnason varaformaður Tintrons. Björgunarsveitin hefur átt samstarf með Brunavörnum Árnessýslu síðustu ár. Samæfingar hafa verið teknar og aðstoð verið veitt þvert á sveitir og lið í útköllum. Þá hafa björgunarsveitarmenn fengið kynningu í notkun slökkvitækja hjá þeim fyrir flugeldasölu á hverju ári. Til langrar framtíðar „Verkefnið er krefjandi fyrir litla björgunarsveit. Við viljum byggja til framtíðar með það í huga að Tintron geti haldið áfram að eflast. Við reisum því hús sem á að duga til langrar framtíðar. Björgunarsveitin hér er öflug og á útkallsskrá eru nærri 30 manns. Til okkar kasta koma gjarnan útköll við Kerið hér í Grímsnesi þegar flytja þarf slasaða. Einnig eru þetta verkefni á Lyngdalsheiði, Þingvöllum, Langjökli og inni við Kjalveg,“ segir Jakob Guðnason. Jafnhliða því sem skóflustungan var tekin í gær var undirrituð viljayfirlýsing um sölu á núverandi björgunarmiðstöð til Grímsnes- og Grafningshrepps. Þannig fær Tintron peninga til nýbyggingarinnar, verkefnis sem nú þegar hefur verið fjármagnað að stórum hluta. Jakob Guðnason úr Tintron á eldgosavakt við Grindavík. Ljósmynd/Sigurður Ólafur Sigurðsson Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Elías fær mikið hrós Fékk Volkswagen-rafbíl í vinning Myndir: Allt að verða klárt fyrir stórtónleika Laufeyjar í Kórnum Fjórir látnir eftir að flugvél Bandaríkjahers fórst Ný björgunarmiðstöð á Borg Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Á mörkum framleiðslu og þjónustu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Slæmt ástand grunn- og leikskólabygginga í borginni Spá hækkun vaxta og verðbólgu Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Vopnaður hnífi eftir rán í verslun Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þórir Einarsson Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Holtavörðuheiði er lokuð Flytur mál fyrir Hæstarétti Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Guðmundur Fertram kaupir sig inn í hótelrekstur Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna 18 mánuðirnir byggja ekki á formlegum samtölum Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Elías fær mikið hrós Fékk Volkswagen-rafbíl í vinning Myndir: Allt að verða klárt fyrir stórtónleika Laufeyjar í Kórnum Fjórir látnir eftir að flugvél Bandaríkjahers fórst Ný björgunarmiðstöð á Borg Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Á mörkum framleiðslu og þjónustu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Borga ekki umferðarsektir Slæmt ástand grunn- og leikskólabygginga í borginni Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Varðskipin verði oftar við gæslustörf Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þórir Einarsson Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Holtavörðuheiði er lokuð Flytur mál fyrir Hæstarétti Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Guðmundur Fertram kaupir sig inn í hótelrekstur Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna 18 mánuðirnir byggja ekki á formlegum samtölum Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu

Share this article