Hrafnarnir telja töluverð tíðindi felast í nýrri skoðanakönnun sem Samtök iðnaðarins gerðu meðal aðildarfélaga sinna um afstöðu þeirra til aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Niðurstaða könnunarinnar er afgerandi og felur í sér skýr skilaboð til Sigurðar Hannessonar, framkvæmdastjóra SI, og hans fólks. Þannig eru 57% félagsmanna samtakanna andvíg inngöngu Íslands í sambandið og hefur þeim fjölgað mikið á undanförnum árum. Það kæmi hröfnunum ekki á óvart ef sambærileg könnun hjá Samtökum atvinnulífsins myndi sýna sambærilega niðurstöðu. Nýleg könnun Gallup sýnir svo að þjóðin er klofin í afstöðu sinAðildarni til aðildar. Ekki er marktækur munur á þeim sem ætla að greiða atkvæði með því að aðildarviðræðum verði framhaldið og þeim sem eru því andvíg. Hrafnarnir hafa töluverðar áhyggjur af afleiðingum þess að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur leggi í þessa vegferð verði umboðið frá þjóðinni jafn veikt og kannanir gefa til kynna, sérstaklega í ljósi þeirra efnahagslegu áskorana sem stjórnvöld standa frammi fyrir. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 11. mars 2026.