Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Einn gistir fangageymslu grunaður um líkamsárás í miðbæ Akureyrar Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Lögreglustöðin á Akureyri. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Einn var handtekinn grunaður um líkamsárás í miðbæ Akureyrar í nótt. Hann gistir fangageymslu og skýrsla verður tekin af honum í dag. Sá sem varð fyrir árásinn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar en áverkar hans eru ekki taldir alvarlegir, segir Kári Erlingsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Hann segir að fjölmennt hafi verið í bænum í nótt en að skemmtanahald hafi að mestu farið vel fram. Fyrir 42 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Snjóflóð féllu ofan við Ísafjörð og í Ólafsfirði Fjögur snjóflóð féllu ofan við Ísafjörð í nótt og eitt stærra í Ólafsfirði. Óvissustig er í gildi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og á Norðurlandi. Rýming er í gildi fyrir atvinnuhúsnæði á Ísafirði og einn bæ í dreifbýli á Siglufirði. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Hótar fjölmiðlum að þeir geti misst útsendingarleyfi sín Formaður eftirlitsnefndar alríkisfjarskipta í Bandaríkjunum hótar fjölmiðlum að þeir geti átt á hættu að missa útsendingarleyfi sín ef þeir birta falsfréttir. Samtök sem beita sér fyrir tjáningarfrelsi gagnrýna þetta harðlega. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Snjóflóð féll yfir veg í Ólafsfirði Snjóflóð féll úr Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði í nótt. Flóðið var nokkuð stórt en féll ekki nærri byggð. Það fór yfir veg og út í sjó. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkjaforseti vill erlend herskip bandaþjóða að Hormússundi Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram á 15. degi. Bandaríkjaforseti heitir því að opna fyrir skipaumferð um Hormússund, en vonast eftir herskipum bandaþjóða að sundinu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Stormur, ófærð og erfið akstursskilyrði Veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands varar við stormi norðvestan- og suðaustan til á landinu. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við ófærð á Vestfjörðum og erfiðum akstursskilyrðum víða annars staðar. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Lítið ljós í þakglugga Áföll geta mótað fólk fyrir lífstíð og það er ekki fyrr en á síðustu árum sem það hefur þótt eðlilegt að tala um hlutina. Fjölskylda sem vann hetjudáð á Eskifjarðarheiði í janúar 1942 ræddi aldrei björgunarafrekið sín á milli. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Formúla 1 Keppnum í Bahrein og Sádí Arabíu aflýst Brynja Dögg Friðriksdóttir Formúla 1-keppninni í Jeddah í Sádí Arabíu 20. apríl 2025. EPA / ALI HAIDER Keppnum í Formúlu 1-kappakstrinum í Bahrein og Sádí Arabíu hefur verið aflýst vegna ótryggs öryggisástands í Mið-Austurlöndum. Keppnirnar áttu að fara fram 12. apríl í Manama í Bahrein og í Jeddah í Sádí Arabíu 19. apríl næstkomandi. Þessi ákvörðun mun hafa þó nokkur áhrif á tekjur keppnisliða og Formúlu 1-kappakstursins, en löndin greiða yfir 100 milljónir breskra punda fyrir að halda keppnirnar. Greiðslurnar skiptast á milli liðanna og Formúlu 1-kappakstursins. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Þrjár landsliðskonur draga umsókn sína um hæli tilbaka Brynja Dögg Friðriksdóttir Íranska kvennalandsliðið í fótbolta á Asíumótinu í fótbolta 8. mars 2026. EPA / DAVE HUNT Íþróttaráðuneyti Írans hefur staðfest að tvær íranskar fótboltakonur og ein kona úr þjálfarateymi liðsins, sem sóttu um stöðu flóttamanns í Ástralíu, hafi hætt við umsókn sína og ætli að snúa aftur til Írans. Íranska kvennalandsliðið í fótbolta keppti á Asíumótinu í fótbolta í Ástralíu fyrir skömmu. Að lokinni keppni sóttu sex landsliðskonur og ein kona úr þjálfarateymi liðsins um stöðu flóttamanns í Ástralíu. Ein landsliðskonan dró fljótlega umsókn sína til baka. Alls hafa því fjórar konur af sjö dregið umsóknir sínar til baka og snúið aftur til Íran. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Sameinuðu arabísku furstadæmin Stjórnvöld keppast við að endurheimta ímynd sína sem öruggt ríki Miklar árásir Írana á Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa ógnað ímynd ríkisins sem eins öruggasta ríki Mið-Austurlanda. Mikið er í húfi fyrir stjórnvöld en ferðaþjónusta er ein mikilvægasta atvinnugrein landsins. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Ís brotnaði undan tjaldi skíðafólks á Helsingjabotni Fólkið ætlaði sér að skíða yfir frosinn Helsingjabotn frá Oulu í Finnlandi yfir til Luleå í Svíþjóð. Ísinn brotnaði undan tjaldi þeirra á miðri leið. 15. mars 2026 kl. 0:25ERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Dulkóðuð skilaboð talin hafa verið send á útsendara Írans utan Írans Alríkisyfirvöld Bandaríkjanna hleruðu dulkóðuð skilaboð sem talin eru koma frá Íran og gætu verið boðun til aðgerða til íranskra útsendara utan Írans. Sérfræðingar telja að Íranir eigi net njósnara bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. 14. mars 2026 kl. 22:30INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á Súðavíkurhlíð og Flateyrarvegi frá miðnætti. Nokkur atvinnuhúsnæði verða rýmd á Ísafirði í fyrramálið. 14. mars 2026 kl. 22:17INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Rúnar leiðir lista Samfélagsins í Norðurþingi Ásrún Aldís Hreinsdóttir Aðsend Rúnar Traustason, rekstrarstjóri Íslandspósts á Húsavík og slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður leiðir M-lista Samfélagsins í Norðurþingi. Í tilkynningu segir að Rúnar hafi verið virkur í ýmsu félagslífi og tómstundum í sveitarfélaginu. Áki Hauksson núverandi bæjarfulltúi tilkynnti fyrr í mánuðinu að hann hyggðist ekki sækjast eftir áframhaldandi setu í sveitarstjórn Norðurþings. Áki mun þó áfram koma til með að starfa með lista Samfélagsins og miðla sinni þekkingu áfram. M – Listi Samfélagsins í Norðurþingi er breiðfylking íbúa í Norðurþingi, óháðra, félagshyggjufólks og Miðflokksfólks. 14. mars 2026 kl. 21:23INNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Þremur verslunum Rammagerðarinnar í Leifsstöð lokað í nótt Isavia lokar þremur verslunum Rammagerðarinnar í Leifsstöð. Í tilkynningu frá Rammagerðinni segir að óvissa ríki um framhald þrjátíu starfsmanna. Rammagerðin heur starfað í flugstöð Leifs Eiríkssonar frá árinu 1975. 14. mars 2026 kl. 20:51ÍÞRÓTTIR Íshokkí SR sópaði Akureyringum og er Íslandsmeistari Skautafélag Reykjavíkur er Íslandsmeistari eftir að hafa unnið 3-0 í einvíginu gegn Skautafélagi Akureyrar. Leikur kvöldsins vannst 3-2 og ógurlegur fögnuður braust út í Skautahöllinni þegar lokaflautið gall. 14. mars 2026 kl. 20:33INNLENDAR FRÉTTIR Tónlist Mikil spenna fyrir tónleikum Laufeyjar: „Ég elska hana“ Meiriháttar fólksflutningar áttu sér stað í Kópavogi fyrr í kvöld vegna stórtónleika skærustu stjörnu Íslands, Laufeyjar. Gert er ráð fyrir um sextán þúsund gestum á tvenna tónleika hennar um helgina. 14. mars 2026 kl. 19:57INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Listi Framsóknar í Norðurþingi samþykktur Ásrún Aldís Hreinsdóttir Aðsend Listi Framsóknarmanna í Norðurþingi var samþykktur á félagsfundi Framsóknarfélags Þingeyinga í dag. Nýr oddviti listans er Eysteinn Heiðar Kristjánsson, verkefnastjóri sjúkraflutninga við Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Í ávarpi á fundinum hvatti hann félagsfólk áfram í aðdraganda kosninga. Hér má sjá hverjir skipa efstu sex sæti listans: Eysteinn Heiðar Kristjánsson, verkefnastjóri. Bylgja Steingrímsdóttir, sjúkraliði. Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi og atvinnurekandi. Elísabet Anna Helgadóttir, geislafræðingur. Eiður Pétursson, vélfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi. Helga Björg Sigurðardóttir, þjónustustjóri GeoSea. 14. mars 2026 kl. 18:51INNLENDAR FRÉTTIR Veður Loka Flateyrarveg og veginum um Súðavíkurhlíð á miðnætti vegna snjóflóðahættu Erla María Davíðsdóttir Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi á Flateyrarveg og veginum um Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu. Með tilliti til veðurspár verður vegunum lokað á miðnætti í kvöld, aðfaranótt sunnudags. Gul viðvörðun tekur gildi á Vestfjörðum klukkan tvö í nótt vegna norðaustanstorms og verður viðvörunin í gildi til níu annað kvöld. Spáð er 15 til 23 metrum á sekúndu, snjókomu eða skafrenningi með lélegu skyggni og versnandi færð. Snjóflóð féll á veginn um Súðavíkurhlíð snemma í gærmorgun. Davíð Pierre Milesi-Gaches 14. mars 2026 kl. 18:29INNLENDAR FRÉTTIR Matur Bjóða upp á soðin slög á Matarmarkaði: „Krakkarnir eru alveg vitlausir í þetta“ Bændur, sjómenn og smáframleiðendur af öllu landinu kynna afurðir sínar á matarmarkaði sem hófst í Hörpu í dag. Þar má meðal annars finna ýmsar vörur úr hunangi, handgerð páskaegg og þurrkað hrossakjöt. 14. mars 2026 kl. 18:22ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ein stærsta olíubirgðastöð Mið-Austurlanda skemmdist í árás Árásir á olíuinnviði ganga á báða bóga milli Írans og Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. Fimm þúsund bandarískir hermenn eru á leiðinni á svæðið með herskipum. 14. mars 2026 kl. 18:18ÍÞRÓTTIR Blak Hamar bikarmeistari — gífurlegur hiti í Digranesi Hamar er bikarmeistari karla í blaki í fimmta sinn eftir sigur gegn Aftureldingu, 3-1. Leikurinn var afar jafn en Hamarsmenn höfðu betur á lykilaugnablikum. 14. mars 2026 kl. 18:00INNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Segist skilja áhyggjur landeigenda Ráðherra orkumála segist skilja áhyggjur landeigenda vegna boðaðra breytinga á raforkulögum. Ekki standi þó til að raska eignarréttinum heldur sé markmiðið að tryggja fyrirsjáanleika í raforkumálum og uppbyggingu innviða. 14. mars 2026 kl. 17:37ERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Viðbúnaður þegar villisvín vafraði inn í verslun Afgreiðslufólki húsbúnaðarverslunar í verslanamiðstöð í þýsku höfuðborginni Berlín brá nokkuð í brún þegar villisvín vafraði þangað inn. Eftir mikinn viðbúnað tókst að koma svíninu til síns heima, þannig að allt fór vel að lokum. 14. mars 2026 kl. 17:19INNLENDAR FRÉTTIR Norðurland Allt að sjö metra þykkt flóð: Með þeim stærri sem menn muna Óvissustig vegna