Innlent | Morgunblaðið | 15.3.2026 | 11:30 Skoða viðbúnað við frostrigningu Við vissar aðstæður getur skapast glerhálka á göngustígum. mbl.is/Kristinn Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Til stendur að halda vinnustofu helstu sérfræðinga um viðbrögð við frostrigningu.Er það gert í framhaldi af atburðum sem urðu á höfuðborgarsvæðinu 20. janúar síðastliðinn þegar glerhálka myndaðist skyndilega og olli miklum vandræðum. Meðal annars leituðu fleiri einstaklingar til bráðamóttöku Landspítalans vegna hálkuslysa en áður hefur þekkst í sögu spítalans. Er þessi dagur mörgum í fersku minni. Í framhaldinu beindi fulltrúi Famsóknarflokksins í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, fimm spurningum til embættismanna borgarinnar. Vildi hann m.a. vita hvernig staðið var að hálkuvörnum dagana fyrir og sjálfan 20. janúar, m.a. hvað varðar veðurviðvaranir, vöktun aðstæðna og framkvæmd hálkuvarna. Einnig spurði hann hvaða lærdóm borgin hygðist draga af atburðinum. Sólarhringsvakt í borginni Svar fulltrúa skrifstofu borgarlandsins hjá umhverfis- og skipulagssviði var lagt fram í umhverfis- og skipulagsráði 4. mars sl. Þar kemur fram að Reykjavíkurborg sinnir hálkuvörnum með sólarhringsvöktun í vetrarþjónustu. Vegagerðin er jafnframt með sólarhringsvakt á stofn- og tengibrautum fyrir Reykjavíkurborg, þannig að vöktun og útköll á helstu leiðum eru tvíþætt (stígar annars vegar og götur hins vegar). Í aðdraganda viðburðarins 20. janúar var fylgst með veðurupplýsingum og jafnframt var Reykjavíkurborg í samskiptum við veðurfræðing sem vinnur sem ráðgjafi fyrir borgina. Spár hafi ekki náð að sýna úrkomu/frostrigningu í því umfangi sem raungerðist né þann kulda sem raunverulega varð um nóttina. Engu að síður var ákveðið að kalla út vélar á stíga og götur. Tímalína 20. janúar (samkvæmt vakt og ferilvöktun): Útkall á stíga í þjónustuflokki 1, klukkan 3.45. Útkall í götur (stofn og tengibrautir) klukkan 4.00. Það byrjaði að rigna um kl. 4.30 og rigndi til kl. 8.30. Samkvæmt ferilvöktun var búið að salta stíga og götur um kl. 7.30 (fyrsta umferð). Saltið náði ekki að vinna á frostrigningunni. Klaki myndaðist á stígum þrátt fyrir að búið væri að salta og götur voru einnig flughálar. Að frostrigningu lokinni (um kl. 8.30) var gripið til endurtekinnar söltunar og allt tiltækt lið (verktakar og eigin tæki) kallað út. „Það er mat stjórnenda að brugðist hafi verið rétt við með því að kalla út í söltun á stígum og götum á þeim tíma sem gert var miðað við þær upplýsingar sem lágu fyrir þegar útköll hófust,“ segi í svarinu. Mjög sérstakar veðuraðstæður hafi ríkt þennan morgun sem varð til þess að aðgerðir vetrarþjónustunnar dugðu ekki til að koma í veg fyrir hálku og klakamyndun. Atvikin á Bústaðavegi, þar sem mannlausir bílar fóru af stað í hálku þrátt fyrir söltun, undirstriki eðli aðstæðna. Einnig hafi aðgerðir ISAVIA á Reykjavíkurflugvelli í hálkuvörnum ekki dugað til að tryggja hálkulausa flugbraut og þurfti að vísa flugvélum til Keflavíkur. Fram kemur í svarinu að í samvinnu við Vegagerðina verði haldin vinnustofa. Þar muni helstu sérfræðingar á landinu í vetrarþjónustu leita lausna til að bregðast betur við þegar svona aðstæður skapast. Þetta sé ekki algengur atburður á Íslandi en mögulega verði þetta algengara í framtíðinni. Dæmi um aðgerðir sem hægt er að ráðast í sem fyrst væri að koma á viðbúnaðarstigi fyrir frostrigningu. Koma mætti upp umferðarstýringu og skýrum tilmælum til íbúa. Við slíkar aðstæður sé víða erlendis gripið til lokana á leiðum og almenningur hvattur til að vera ekki á ferðinni. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Nítján ára sigraði Formúlu 1 Umferð eykst og gjaldskrá breytt Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Er þetta besta berjasósa allra tíma? Skoða viðbúnað við frostrigningu Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslyss Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Ekki hægt að segja nei við þessi augu! Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Drukknir menn reikuðu um gólfið „Hélt ég væri game over“ Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Snjóflóð féllu í Ólafsfirði, Súgandafirði og á Flateyri Unnið við lúxushótel á ný Maður með hníf á lofti yfirbugaður og handtekinn Óðinn Svan leiðir L-listann á Akureyri Hættustigi lýst yfir á Flateyrarvegi og Súðavíkurhlíð „Þetta var eins og að vera á jarðsprengjusvæði“ Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Nítján ára sigraði Formúlu 1 Umferð eykst og gjaldskrá breytt Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Er þetta besta berjasósa allra tíma? Skoða viðbúnað við frostrigningu Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Yfir eitt þúsund árásir á dag Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Hvessir á landinu í nótt Vöruflutningabílar illa búnir á þjóðveginum Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Drukknir menn reikuðu um gólfið „Hélt ég væri game over“ Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Snjóflóð féllu í Ólafsfirði, Súgandafirði og á Flateyri Unnið við lúxushótel á ný Maður með hníf á lofti yfirbugaður og handtekinn Óðinn Svan leiðir L-listann á Akureyri Hættustigi lýst yfir á Flateyrarvegi og Súðavíkurhlíð „Þetta var eins og að vera á jarðsprengjusvæði“ Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir