Innlent | Morgunblaðið | 15.3.2026 | 12:51 Áforma þrjár virkjanir við Blöndu Aðrennslisskurður virkjunar. Horft er af stíflu Blöndulóns niður veituskurð væntanlegra virkjana. mbl.is/Sigurður Bogi Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Landsvirkjun hefur lengi haft áform um að auka raforkuframleiðslu á svæði Blönduvirkjunar. En vegna þess hve veikt flutningskerfið er hefur verið vandkvæðum bundið að koma raforkunni frá svæðinu en nú hillir undir betri tíma í þeim efnum. Og þá er hreyft við málinu á ný eftir 13 ára bið og vinna er hafin við gerð deiliskipulags. Matsáætlun vegna áhrifa virkjananna var gefin út í apríl 2013. Hugmyndin er að nýta allt að 69 metra fall á núverandi veituleið Blönduvirkjunar, frá Blöndulóni að Gilsárlóni, sem í dag rennur um veituskurði á um 20 kílómetra (km) kafla. Þessar athuganir eru liður í áætlunum fyrirtækisins um að bæta nýtingu á núverandi aflsvæðum Landsvirkjunar. Áætlanir gera ráð fyrir að reisa þrjár virkjanir sem hefðu heildarorkugetu um 194 gígavattstundir á ári og samanlagt afl þeirra yrði allt að 31 megavatt (MW). Kosturinn er í nýtingarflokki rammaáætlunar. Verkhönnun lauk 2014 Verkhönnun og mati á umhverfisáhrifum lauk árið 2014. Gert er ráð fyrir virkjununum á aðalskipulagi Húnavatnshrepps. Skipulagsstofnun mat á sínum tíma áhrif framkvæmda að mestu óveruleg til nokkuð neikvæð. Ekki liggur fyrir skýr tímalína um framhaldið, segir Ragnhildur Sverrisdóttir upplýsingafulltrúi Lansdsvirkjunar. Takmarkanir flutningsgetu í flutningskerfi Landsnets hamla því að hægt sé að fara í þessa virkjunarkosti að svo stöddu. Blönduvirkjun, sem er búin að vera í rekstri síðan 1991, er 150 MW að stærð en flutningsgeta í kerfi Landsnets á sama stað er í kringum 130 MW. „Því er verið að bíða eftir styrkingum á flutningskerfinu áður en tekin er ákvörðun um að ráðast í þessa virkjunarkosti,“ segir Ragnhildur. Landsnet vinnur nú að því að styrkja flutningsnetið á Norðurlandi, eins og fram hefur komið í fréttum. Sú vinna hefur gengið hægt enda hefur hún mætt andstöðu víða. Landsvirkjun vinnur að gerð deiliskipulags fyrir vatnsaflsstöðina Blöndustöð í landi Eiðsstaða í Húnabyggð. Núverandi starfsemi stöðvarinnar verður skilgreind í deiliskipulagi ásamt fyrirhugaðri frekari uppbyggingu. Skipulagslýsing hefur verið birt á skipulagsgáttinni, skipulagsgatt.is. Þar getur almenningur kynnt sér framkvæmdina. Athugasemdafrestur er til 26. mars 2026. Fram kemur á heimasíðu Landsvirkjunar að efsta virkjunin nefnist Kolkuvirkjun og kæmi til með að virkja fallið úr Blöndulóni niður í Þrístiklu. Stöðvarhús Kolkuvirkjunar er fyrirhugað við stíflutá nálægt norðurenda núverandi Kolkustíflu. Að inntakinu sem er nánast sambyggt stöðvarhúsinu yrði grafinn um 0,4 km langur aðrennslisskurður í lónstæði Blöndulóns. Frá stöðvarhúsinu yrði grafinn um 1 km langur frárennslisskurður sem að hluta til yrði breikkun á núverandi veituskurði eftir að þeir sameinuðust, næst Þrístiklu. Frá Þrístiklu rynni vatn um núverandi veitu í Smalatjörn. Önnur virkjunin nefnist Friðmundarvirkjun og kæmi hún til með að virkja fallið milli Smalatjarnar og Austara-Friðmundarvatns. Úr Smalatjörn yrði vatni veitt um nýjan veituskurð í inntakslón virkjunarinnar, Friðmundarlón, um 0,4 fermetra (fm) lón sem gert er ráð fyrir að myndað verði með 1,4 km langri jarðvegsstíflu vestan Friðmundarvatnsbungu. Niðurgrafin aðrennslispípa Frá inntakslóninu er gert ráð fyrir um 2,5 km löngum aðrennslisskurði að inntaki við enda hans. Frá inntaki tæki við stutt niðurgrafin aðrennslispípa að stöðvarhúsi virkjunarinnar sem yrði niðurgrafið og því lítt sýnilegt. Frá stöðvarhúsinu yrði vatnið leitt um 0,3 km löng frárennslisgöng sem opnuðust út í 0,5 km langan frárennslisskurð sem veitti vatninu út í Austara-Friðmundarvatn. Þriðja og neðsta virkjunin nefnist Þramarvirkjun og myndi hún virkja fallið frá Austara-Friðmundarvatni niður í Gilsárlón, inntakslón Blönduvirkjunar. Vatni yrði veitt eftir 2,6 km löngum aðrennslisskurði að inntaki Þramarvirkjunar við enda hans. Þaðan yrði vatni veitt um stutta aðrennslispípu að stöðvarhúsi virkjunarinnar sem líkt og í tilfelli Friðmundarvirkjunar er að mestu niðurgrafið og lítt sýnilegt. Við neðri hlið stöðvarhússins er gert ráð fyrir sveifluþró en frá henni lægju um 1,2 km löng göng sem opnuðust út í 2 km langan frárennslisskurð sem veitti vatninu norður í Gilsárlón og til Blönduvirkjunar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Áforma þrjár virkjanir við Blöndu Stýrir stærsta safni íslenskra rita í Ameríku „Er við góða heilsu“ Þýskur landsliðsmaður í Kiel Hvað leynist undir ísnum? Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Fólkinu hefur verið bjargað af jöklinum Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ekki hægt að segja nei við þessi augu! Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Drukknir menn reikuðu um gólfið „Hélt ég væri game over“ Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Unnið við lúxushótel á ný Snjóflóð féllu í Ólafsfirði, Súgandafirði og á Flateyri Maður með hníf á lofti yfirbugaður og handtekinn Varðskipið Þór í viðbragðsstöðu í Ísafjarðardjúpi Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Óðinn Svan leiðir L-listann á Akureyri Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Áforma þrjár virkjanir við Blöndu Stýrir stærsta safni íslenskra rita í Ameríku „Er við góða heilsu“ Þýskur landsliðsmaður í Kiel Hvað leynist undir ísnum? Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir Pútín hjálpa Írönum „dálítið“ Ekki hægt að segja nei við þessi augu! Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslyss Fólkinu hefur verið bjargað af jöklinum Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Drukknir menn reikuðu um gólfið „Hélt ég væri game over“ Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Unnið við lúxushótel á ný Snjóflóð féllu í Ólafsfirði, Súgandafirði og á Flateyri Maður með hníf á lofti yfirbugaður og handtekinn Varðskipið Þór í viðbragðsstöðu í Ísafjarðardjúpi Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Óðinn Svan leiðir L-listann á Akureyri Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir